Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

GOD PÅSKE!

Eða bara;

GLEÐILEGA PÁSKA, elskurnar mínar nær og fjær.

Hér er páskaeggjaátið hafið! Lilja bjó til "skattejagt" fyrir börnin svo þau byrjuðu daginn á að gera húsleit.  Sem lauk inni í herbergi Eysteins og Bergs þar sem hrúga af páskaeggjum var falin í kommóðunni.  

Svo var stefnan sett á stofuna, þar sem búið var að yfirdekkja sófann með laki...

--

Annars er hálfgert spennufall.  Seinni fermingarveislunni lokið, við vorum komin heim um 19.30 búin að skúra allt út úr dyrum.  Dagurinn heppnaðist vel og fermingardrengurinn ánægður með daginn.

Í dag förum við svo loksins inn í sveit.  Hef aldrei komið á Norðfjörð áður og verið í 6 daga án þess að fara inn í sveit!  Mamma og Jón Þór bjóða okkur öllum í mat.  Væri nice ef minn heittelskaði væri með.

EN hann, Einarinn minn, er aldeilis búinn að vera duglegur í húsinu þessa daga.  Hann er búinn að setja grind í allt loftið (í þeim hluta sem við ætlum að flytja fyrst inn í) og það var byrjað að leggja fyrir rafmagninu í loftið í gær og komið ljós í forstofuherbergið!  Þannig að þessir dagar hafa ekki farið til spillis!

--

Jæja, darlingurnar mínar.  Megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur um páskana. Heart


Smá frá Nobbó

Bara smá frá mér svo þið haldið ekki að ég hafi yfirgefið ykkur LoL

Fermingin gekk vel og var drengurinn alsæll með daginn sinn, sem var mikilvægast og þar með tilgangnum náð.

Þegar við systur komum heim um kl. 20, eftir að hafa gengið frá salnum hafði allt logað í óeirðum heima fyrir og m.a. eldri börnunum mínum lent saman...og stóra systir hafði klesst tyggjói í hárið á litla bróðir sínum...þeim eldri af þeim...EKKI GOTT...en með hjálp tókst að redda því.

Í gær brölluðum við ýmislegt, bökuðum, fórum út með krakkana, í kaffibolla til Aðalsteins bró. og svo heim að borða afganga. Eftir hádegismatinn voru Lilja og Eysteinn svo komin með lykla að hinum salnum í hendurnar og fórum við í að skreyta hann.  Það gekk vel, enda margar hendur að vinna verkið.  Fyrir utan okkur tvær var María sys., Salný mágkona okkar og mamma og Gugga frænka (systir mömmu).  Svo við vorum fljótar að þessu.  Eysteinn setti upp vídjóaðstöðu fyrir börnin og þau dunduðu sér þar yfir Dýrunum úr Hálsaskógi og blöðum og litum.

Seinnipartinn fórum við sð að heimsækja Gumma og strákarnir eru ALSÆLIR! Gummi, ef þú lest þetta; ÁSTARÞAKKIR!  Gummi tók lagið með okkur inni í stofu, eins og hann hafði talað um og strákarnir höfðu bæði sterkar skoðanir á því hvað hann ætti að synga og leiðréttu hann ef hann söng "vitlaust". 

Ég ætla ekki að setja inn myndir fyrr en heim kemur...en þá LOFA ég að gera vel!

En nú ætla ég að halda áfram að hjálpa syssu minni...það er jú önnur ferming í dag ;)

Njótið dagsins, ef þið viljið, það ætla égHeart


Hlaupabólubæli með meiru

Hér á bæ er verið að leggja lok á fyrri fermingarveisluna.  Búið að baka 3xfranskar súkkulaðikökur í morgun og skreyta síðusta marenstertuna. 

Í skrifðum orðum er verið að ferma drenginn.

Hér heima eru ég, Tóta (vinkona Lilju sys.), Jón Ingvi, Jóhannes og svo hlaupabóludrengirnir; Bergur og Ýmir. 

Jamm, það spratt sem sagt upp hlaupabóla á heimilinu á mánudaginn.  Tveimur sólarhringum fyrr en áætlað hafði verið...

Jæja, ég ætla að gefa drengjunum hádegismat...og setja krem á kökurnar.

Eigiði dásamlegan skírdag, elskurnar mínar nær og fjærHeart


Tanni...

...ofurbloggari er með spurningu á blogginu sínu sem ég var meðin að koma áfram og geri það hér með:

VINSAMLEGA FARIÐ HÉR INN OG LESIÐ...OG SVARIÐ EF ÞIÐ GETIÐ!

ást...


Alveg að koma að...

...fermingu!

Allt að verða klárt. Á morgun, meðan fermt verður, ætla ég að baka 3 franskar súkkulaðikökur og þá er þetta nú eiginlega komið.

Lilja var búin að baka þvílíkt mikið og búin að gera heitu réttina og frysta.  Snilld!  Gaman að fylgjast með dugnaðnum í syssu minni. 

Pabbi kom í dag.  Og Maríus, sonur Eysteins.  Hann fermdist á sunnudaginn og verður veisla fyrir hann á laugardaginn.  Svo veisluhöldum er ekki lokið á morgun... Ég er fegin að verða bara með eina fermingu næsta vor...

Heyrði í Einari áðan...sakna hans.  Fékk smá tilfinningakast þegar pabbi og Maríus voru komnir því Einar átti að vera með sama flugi...og hann væri því kominn...EN...húsið er sko mikilvægt og hann alveg einstaklega duglegur, finnst mér.  Þessi elska.

Darling...ef þú lest...ÉG ELSKA ÞIG!!! 

Jæja...ætla að hræra í grautarpottinum...

Lifið í lukku en ekki í krukku.


Örstutt...

...get sko ekki sleppt því...

Í dag:

- búið að dúka salinn og gera hann klárann að mestu, aðeins eftir að leggja lokahönd á skreytingar. Það fer lygilega langur tími í að klippa til dúka og dúlla við þetta...sérstaklega með 8 börn á hlaupum kringum okkur Tounge

- ég fór í klippingu...þarf að fá myndatöku helst í dag svo ég geti sýnt ykkur...allavegana fljótlega Wink

- skoðuðum leikskóla strákanna.

- borðaði yfir mig af SS-pylsum...enda orðin glorsoltin eftir daginn.

- sit svo og blogga...

Ekki meir í bili...

Enn og aftur, elskurnar mínar; Fly on the wings of Love...ef þið viljið...það ætla ég allavegana að geraHeart


Flogin...

Jamm, ég er flogin. 

Flugið austur var stórkostlegt! Tók bara 45 mínútur, heiðskýrt og gott flugveður í alla staði.  Fyrir utan hristinginn yfir Lagarfljótinu hreyfðist vélin ekki...mér til mikillar gleði og hamingju.  Er ekki sú kjarkaðasta þegar kemur að flugi...vantaði alveg hendina á mínum heittelskaða til að kremja...svo ég sökkti mér í prjónaskap og viðtal við Ragga Bjarna.  Hann er sko alger draumur!

--

Jamm, svo get ég sagt ykkur að það er bara æði að vera komin heim í sveitina.  Búin að drekka slatta af kaffi með familíjunni og tala mikið.  Alger sæla.  Það eina sem skyggir á hamingjuna er að ástin mín er ekki með.  En...sé hann eftir viku InLove

Svo er brjálað action næstu daga, baka og skreyta sal og gera salat og allskonar fyrir fermingarnar. Síðan eru heimsóknir á döfinni, t.d. til Gumma R.  Strákarnir að farast úr spenningi að hitta goðið sitt Smile 

Jæja, ætla að drekka enn einn kaffibollann og sýna Lilju hattana sem ég prjónaði spes fyrir hana! Eins gott að þeir falli í kramið!

Fly on the wings of Love, elskurnar mínar.


Góðan dag, elskurnar.

Þá er páskafríið byrjað fyrir alvöru.  Ég búin á bakvakt og alles, jamm FRÍÍÍ!!! 

Veit hins vegar af reynslu að ég á eftir að sakna míns heittelskaðaInLove En vika er bara vika og það verður best að kúra í hans faðmi aftur.

--

Kíkti á mbl.is áðan og sá þá þessa grein. Nafna mín Sigurðardóttir vann meistararitgerð frá HA, hún er hjúkrunarfræðingur og rannsakaði konur sem hafa lent í kynferðisofbeldi.

Í stuttu máli get ég sagt að ég kannast við margt sem hún talar um, eða þær niðurstöður sem hún fékk.  

Og minnist þess enn á ný að það skiptir ekki máli hversu lítið eða hversu mikið, afleiðingarnar á sálinni eru þær sömu.  

Mikið er ég þakklát Stígamótum fyrir að hafa gefið mér lífið.   

--

En núna; loka tösku og Fly on the wings of LoveHeart


Held bara...

...að þetta hafi ekki gerst áður! Ekkert blogg frá mér í 3 daga!  Vóóó...!! LoL

Í stuttu máli þá sprakk ég ekki þarna um daginn.  En hef bara ekki nennt að setjast við tölvuna...eða eiginlega bara ekki haft tíma.  Hef verið að vinna um helgina, svo hef ég verið að taka til og þvo þvott fyrir ferðina okkar (mína og barnanna) á Norðfjörð. 

Svo í dag fórum við í fermingar.  Þ.e. ég og strákarnir fórum í fermingarveislu hjá Birgi Elís, syni Erlu sys., í Borgarnesi.  Mjög vel heppnuð veisla í alla staði og held ég að fermingardrengurinn hafi verið alsæll með daginn.

Einar og stelpurnar fóru hins vegar í veislu hjá frænda Einars (og barnanna auðvitað), sem var í Reykjavík.  Einnig mjög vel heppnaður dagur þar, eftir þvi sem mér er sagt.

Nú er sem sagt fermingarhrinan byrjuð...og sér ekki fyrir endann á henni alveg strax...

Frekar skondið að hugsa til þess að þessi ár sem við hjónakornin höfum verið saman höfum við farið í 2 fermingar (fyrir utan auðvitað hjá Bárunni okkar)...og bara núna þessa viku eru FJÓRAR á dagskránni og allt í okkar nánustu familíju!!!

Jamm. 

Hvað get ég sagt...jú, ég get sagt ykkur að ég prjónaði mér lopapeysu...og hún er alltof stór!!!  Er að spá í að þvo hana aftur og teygja hana út...ekki suður...og sauma hana svo inn hér og þar...eða ekki...veit eigi hvað gjöra skal.  Einhverjar hugmyndir?????

Læt þetta nægja...ætla að koma drengjunum í bælið...þeir eru þreyttir og pirraðir...svangir og eflaust hálf máttlausir af sykuráti...Jón Ingvi gat lítið borðað í fermingunni...annað en smá brauð og litlar pizzur...og svo náttúrlega KÖKU!!!

Veit ekki hvenær ég blogga næst...er að fara í páskafrí og tek kannski páskafrí frá blogginu...eða amk blogga minna...ok, ég hætti núna...

Ást til ykkar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband