Leita í fréttum mbl.is

Epla- og valhnetubaka

Vorum í paró og ţar var ţessi baka í eftirrétt, mjög góđ međ ţeyttum rjóma:

Epla- og valhnetubaka
Gerir eina köku

  • 2,5 bollar valhnetur (ég miđa viđ 250 ml bolla)
  • 1,5 bolli döđlur
  • 2-3 epli, međalstór (grćn eđa ljósrauđ)
  • Safi af 1 sítrónu í 2 bollum af vatni
  • 1/2 tsk kanill
  • 1/4 tsk negull
  • 2 msk hunang (acacia) eđa hreint hlynsíróp
  • 1/2 bolli hreinn eplasafi
  • 1/4 bolli rúsínur (má nota döđlur)

    Ađferđ:
  • Blandiđ valhnetunum og 1,5 bolla af döđlum saman í matvinnsluvélinni. Blandiđ í um 40 sekúndur eđa ţangađ til allt er orđiđ grófhakkađ án ţess ađ verđa ađ mauki.
  • Ţrýstiđ botninum í 20cm kringlótt form (gott ađ setja bökunarpappír undir). Ţrýstiđ bćđi botn og kanta. Kćliđ í ísskáp í um klukkutíma.
  • Skeriđ kjarnann úr eplinu og sneiđiđ frekar ţunnt.
  • Helliđ sítrónuvatninu yfir og geymiđ í smá stund.
  • Sigtiđ sítrónuvatniđ vel frá eplunum.
  • Setjiđ eplasneiđarnar á stóra pönnu ásamt kanil, negul, rúsínum, hunangi og eplasafa.
  • Hitiđ vel í um 15-20 mínútur eđa ţangađ til eplin verđa frekar mjúk.
  • Takiđ eplasneiđarnar og rúsínurnar af pönnuni götóttum spađa ţannig ađ vökvinn leki af.
  • Látiđ vökvann malla á pönnunni í um 5 mínútur viđ frekar háan hita.
  • Kćliđ.
  • Dreifiđ eplasneiđunum jafnt yfir botninn. Helliđ eđa pensliđ vökvanum af pönnunni yfir eplin.
  • Dreifiđ ađeins meiri kanil yfir ef ţiđ viljiđ.
  • Ţađ má stinga bökunni í ofninn og hita í um 20 mínútur. Ţađ er gott ađ bera fram bökuna međ hollum ís eđa ţeyttum rjóma fyrir ţá sem borđa slíkt.

Uppskrift fengin á CaféSigrún.com

Mćli eindregiđ međ henni!! 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurđardóttir

mmmmmmmmmmmm hljómar vel

Hrönn Sigurđardóttir, 5.5.2008 kl. 09:18

2 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Ef ţú ert ekki sú myndarlegasta á landinu ţá veit ég ekki hver

Ásdís Sigurđardóttir, 5.5.2008 kl. 13:11

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Ég átti víst ekki heiđurinn af eftirréttinum í gćr...en ég á pottţétt eftir ađ gera svona! T.d. ţegar ţiđ Selfoss-konur komiđ í kaffi til mín

SigrúnSveitó, 5.5.2008 kl. 14:09

4 identicon

hćhć. datt inn á síđuna. held ađ ţu hafir veriđ međ mér i húsó en ekki 100% viss :P

bensa (IP-tala skráđ) 5.5.2008 kl. 16:32

5 Smámynd: JEG

Ććjjj ţessi er sennilega einum of holl fyrir mig. Er ekki ađ finna mig á CafeSigrún.

Knús á ţig samt.

JEG, 5.5.2008 kl. 17:06

6 Smámynd: SigrúnSveitó

Bensa...hef aldrei veriđ í húsó...

JEG...mér fannst "svona" kökur ekki spennandi fyrr en eftir ađ ég hćtti ađ borđa sykur, núna langar mig bara í "svona" kökur.  

SigrúnSveitó, 5.5.2008 kl. 17:13

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband