Leita í fréttum mbl.is

Örnu-snakk

Helló!!

Til að ég týni ekki "uppskriftinni" eða öllu heldur hugmyndinni ætla ég að smella henni hér inn.

Arna sem vinnur með mér, var að segja mér frá góðu meðlæti með Doritos-snakki, og mér leist afar vel á hugmyndina:

Þetta er sett í eldfast mót: Kotasæla, Salsasósa og svo er smáttbrytjaður rauðlaukur og smátt söxuð gúrka stráð yfir.  Sett í ísskáp í 2 tíma og SLAFRRRRRRRRR........!!!!!!!!!!

How about it?!!!

---

Annars er lítið sem ég get sagt ykkur.  Var að vinna í gærkvöldi og kom heim rétt fyrir hálf eitt.  Mikil gleði að hitta loksins ástina mína, en hann er búinn að vinna á næturnar þessa vikuna svo við höfum ekki haft mikinn séns á að spjalla.  Svo við náttúrlega spjölluðum...og spjölluðum...

Enda skildi ég ekkert hvaða skrítna hljóð þetta var í morgun þegar klukkan hringdi...SleepingLoL

Eitt af því sem við spjölluðum um var svo kallaður þurrkhjalli...tvær í vinnunni voru að segja mér frá þurrkhjalla, sem notaður er til að þurrka föt úti all year round!!  Og mér leist svona líka glimrandi vel á hugmyndina!!!  Snilldin ein. 
Einar varð ekki eins upprifinn og ég...enda eru þvottamálin MITT mál!!  Og ég er mjög sátt við það.  Enda húsið okkar hannað kringum þvottahúsið MITT!!!

Sumt verð ég að fá að eiga út af fyrir mig Tounge

---

Jæja, ætla að leggjast fyrir framan imbann með gaurunum mínum þremur.  Stelpuskottið okkar fór í afmæli í gær...gisting og stuð...og hún er ekki komin heim enn...ætlar að gista aftur í nótt!!!  Langt afmæli það!  Og greinilega gaman!

Knús á ykkur... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Þið eruð soddan dúllur!! Þegar þú nefndi "þurrkhjalla" hélt ég að þú værir að tala um einhvern skapillan óvirkan alka! hahaha

Líst vel á Doritossnakkið. Hef reyndar oft gert þetta en nota þá rjómaost í staðinn fyrir kotasælu og reyndar sleppi gúrkunni. Ætla að prófa þetta næst ... virkar muuun hollara!

Knús kona!! 

Hugarfluga, 12.1.2008 kl. 20:45

2 Smámynd: SigrúnSveitó

meira slafr... þín uppskrift hljómar líka VEEEEL!!

Knús tilbaka! 

SigrúnSveitó, 12.1.2008 kl. 20:59

3 Smámynd: Hugarfluga

Ó, ég fattaði bara eitt núna. Þín uppskrift er ekki sett í ofn .. mín er það. Þannig að þarna er um tvær ólíkar uppskriftir að ræða. Mæli ekki með rjómaostinum óbræddum, skiljú mí.  Smjúts.

Hugarfluga, 12.1.2008 kl. 21:21

4 identicon

Allt með salsasósu er gott .. það er bara þannig :)

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 23:52

5 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

uuummm líst vel á uppskriftina!

Þvottahjallur! það er skal ég segja þér bara frábært, hef búið við að hafa svoleiðis dýrð, og ég mæli sannarlega með þeirri byggingu

Guðrún Jóhannesdóttir, 12.1.2008 kl. 23:55

6 identicon

Mmm girnó uppskrift. Hlakka til að prófa.

Bryndís R (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 09:09

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrikalega góð hugmynd þessir þurrkhjallar!! Mig hefur lengi langað í slíkan. Er að vísu næstum með einn búinn til af náttúrunnar hendi - svona þegar ég hugsa málið.

En þeir eru snilldarhugmynd.

Knús á þig

Hrönn Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband