Leita í fréttum mbl.is

Morgunbollurnar okkar

Þær heppnuðust mjög vel, "uppskriftin" er þessi:

½ pk ger, stór skeið af salti og slurkur af hunangi settur út í aðeins meira en ½ líter af köldu vatni. Hveiti hrært út í (blandað fínt og gróft að vild) þar til þetta er þykkt sem MJÖG þykkur hafragrautur. 

Látið standa í 5-10 tíma - eða yfir nótt - í ísskáp.

Sett með matskeið á bökunarpappír og bakist á hæsta hita í ofninum í ca 10 mínútur.

Ég prófaði að setja múslí út í líka.

Very góðar bolls, if I may say so!!!

--

Við systur fórum í Ikea í dag, mikið gaman hjá okkur, alveg bara tvær og barnlausar. Alger sæla. Eysteinn Þór, mágur, var heima með öll börnin. 

Verð að segja ykkur, Jóhannes fór að sofa um kl. 23.30 í gærkvöldi, eins og hin börnin.  Hann vaknaði svo kl. 9 í morgun...eins og hinir...nema hann var svo þreyttur að ég spurði hvort hann vildi kúra sér svolítið í mínu rúmi...sem hann vildi...og gerði...og sofnaði...og svaf til kl....já, haldið ykkur fast...til kl. 14.15, og þá VAKTI Eysteinn Þór hann!!!
Takk fyrir kærlega!  Svo sagði hann; "Mamma, ég var bara þreyttur"!!! Ja, maður skildi ætla það...SleepingSleeping

Það má kannski fylgja sögunni að hann er úthvíldur og sprækur þegar þessi orð eru skrifuð...LoL

Knús inn í draumalandið, elskurnar mínar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, stundum er maður bara þreyttur  nú var ég búin að ná mér í nammi áður en ég las matarfærslu hjá þér svo ég hef eitthvað að kroppa í, trúi vel að bolludýrin hafi verið bragðgóð.  Skemmtu þér vel með fólkinu þínu 

Ásdís Sigurðardóttir, 23.7.2008 kl. 22:44

2 identicon

áááá......þá er mágur þinn fundinn,það var nebblega verið að lýsa eftir kauða!!! Kveðja til ykkar og sansan....snúsnú.....eða hvað þetta hedder nu allesammen á jappamáli.

Hertoginn á Bjarti NK (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 03:56

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hljómar ógó pókó girnilega! Hvað er gerpakkinn stór hjá þér? 11 g?

Verð að prófa........

knús og kram 

Hrönn Sigurðardóttir, 24.7.2008 kl. 08:37

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Jamm, gerpakkinn er 11 g (eða 50 g pressuger ef ég væri í Dk sko...) 

SigrúnSveitó, 24.7.2008 kl. 09:35

5 identicon

Ég fæ yfirleitt vatn í munninn þegar ég les bloggið þitt, sælkeri ;)

Valdís Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 09:57

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ókí.......

Hrönn Sigurðardóttir, 24.7.2008 kl. 11:11

7 identicon

Hlakka til að sjá ykkur á laugard.

jóna björg (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 12:43

8 Smámynd: SigrúnSveitó

Very much i lige måde, elskan mín!

SigrúnSveitó, 24.7.2008 kl. 14:52

9 Smámynd: JEG

Girnilegt mín kæra.

Já stundum er maður bara þreyttur það er bara þannig.  Ekki eru mín börn svona það er sko ekkert kúr eftir að vaknað er. Því miður stundum.

Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 24.7.2008 kl. 16:35

10 Smámynd: Úrsúla Manda

Líst vel á þessar bollur, en finnst þetta nú samt aðeins of mikið "slump"  en aldrei að vita nema að ég prufi

Og já, til hamingju með nýja starfið! Svakalega spennandi.

Úrsúla Manda , 24.7.2008 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband