Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Jólabrauð Rakelar

3 bollar hveiti
1 bolli grahamsmjöl (eða annað gróft mjöl)
3-4 tsk lyftiduft
2 msk olía
pínu salt
ca 1 bolli soðið vatn (volgt)
safi úr 2 mandarínum
börkur af 1 mandarínu

Smellt í form og bakað í ofni ca 175°c þar til bakað...

Rakel (sem vinnur með mér sko) segist borða þetta brauð m.a. með hangikjeti og sé þetta snilldargott.  Ætla að prófa þetta brauð líka. 

Eddubrauðið var mjög gott, gott ristað líka.


Froskur eða prins?


Þú fellur fyrir froskum.


Sé karlkynið flokkað í prinsa, froska, proska og frinsa leikur enginn vafi á hvaða manngerð/dýrategund þú fellur fyrir. Þú laðast að froskum eins og segull að stáli, fluga að mykjuhaug, minniháttar stjarna að ljósmyndara Séð og heyrt. (Hvers vegna að segja hlutina einu sinni þegar hægt er að segja þá þrisvar).

Froskar sýna sjaldan rómantíska tilhneigð og geta átt það til að vera ansi óhugulsamir. Láttu þér ekki bregða þótt froskurinn gleymi afmælisdeginum þínum, brúðkaupsdeginum eða jólagjöfinni. Þótt þú gengir með post-it miða á enninu sem á stæði "ég vildi að froskurinn minn myndi koma mér á óvart og kaupa handa mér blómvönd" stæði blómavasinn tómur á stofuborðinu um ókomna tíð.

Þeir sem hyggja á samband við frosk þrátt fyrir það geta endanlega kvatt sjónvarpsfjarstýringuna. Froskar deila henni ekki með neinum. Búðu þig undir löng kvöld yfir íþróttum og Jean-Claude van Damme. Búðu þig einnig undir dimm kvöld því ekki láta þig dreyma um að froskur skipti um ljósaperu.

Finnist þér skemmtilegt að tína skítuga sokka eftir aðra upp af gólfinu átt þú sannarlega samleið með frosknum. Þyki þér það hins vegar ekki hápunktur tilverunnar og þú gerist svo djörf að biðja froskinn að hirða sjálfan upp eftir sig sokkana máttu eiga von á að hann hækki í iPodinum sínum og láti sem hann heyri ekki í þér.

Fellur þú fyrir prinsum eða froskum?

Mér finnst þetta svolítið fyndið.  Sko, minn heittelskaði er greinilega froskur...eða var...hann hefur breyst í prins...svona smá amk.  Hann er orðinn rómantískari með árunum.  Hann reyndar æðir sjaldan út og kaupir blóm handa mér, man eftir afmælinu mínu seinnipartinn, brúðkaupsafmælinu gleymir hann EKKI.  Hann Á fjarstýringuna, er - að mestu - hættur að liggja yfir íþróttum (nema eitthvað alveg sérstakt standi til), og hann fyrirlítur leikarahæfileika Jean-Claude van Damme!

Sokkana er ég hætt að týna upp, hann gerir það orðið sjálfur...eftir að hafa upplifað að eiga enga hreina því þeir lágu allir skítugir í honnunum!  Það er sko vel hægt að kenna gö.... ..... að sitja...og týna upp óhreina sokka sjálfur.

Eitt er víst, ég á samleið með mínum manni, hvort sem hann er froskur eða prins!!!   


"Vonda" mamman ÉG

Sl. vetur, og kemur fyrir núna líka, þá vilja elskuleg börnin mín hafa jógúrt og svoleiðis með í skólann. Ég var alltaf tuðandi um hvað þetta væri óhollt, stútfullt af sykri.  Jóni Ingva þótti töluvert óréttlæti í því fólgið að "hinir" krakkarnir fengu að hafa með sér óhollustu í skólann en ekki hann...og þá var þessi elska að tala um "jógúrt og svoleiðis". 

Í morgun beið mín tölvupóstur með eftirfarandi myndum...sem styðja mál mitt!!!

En það er ekki bara jógúrt og þess háttar...það er auðvitað líka hinir ýmsu drykkir...og morgunkorn! 

mynd 1

 mynd 2
 mynd 3mynd 4


Nóttin, nóttin hún er yndisleg...

...mikið hlakka ég til að skríða upp í rúmið okkar á eftir, kúra undir stóru sænginni okkar, á öxlinni á mínum heittelskaða og ekki nein gjá að detta í!!!  Hafiði heyrt þetta áður?

Jamm, ég er gífurlega lukkuleg - og við reyndar bæði - með nýja rúmið og glöð með þessa reynslu.  Nú þurfum við aldrei að spá í að kaupa tvískipt rúm aftur!!!

Annars er kvöldið búið að vera gott.  Fór á mannamót áðan, ásamt mínum heittelskaða.  Það var æði.  Svo kaffihús á eftir.  Góður lattebolli í góðra vina hópi, með Einarinn minn mér við hlið.  Gerist vart betra.

Nema auðvitað að sitja með ormana okkar líka.

--

Í fyrramálið ætlum við Jóhannes að eiga góða stund saman.  Svo ætlar hann á leikskólann öðru hvoru megin við hádegið.  Einar sækir hann svo en ég fer á kvöldvakt. 

Jón Ingvi var heima í dag, hann kvartaði undan magapínu í morgun...eða bar sig aumlega alveg þar til ég sagði að hann skildi bara vera heima í dag.  Þá varð minn galvaskur og albata.  Hann þurfti greinilega bara á frídegi að halda.  Ég finn á honum að hann er farinn að þurfa á fríi að halda, svo það er gott að það er ekki mjög langt í jólafríið!   

---

Í hjartanu mínu heyrist; "Í rigningu ég syng, í rigningu ég syng, það er yndislegt veður og mér líður vel".  Og mér líður auðvitað sérstaklega vel yfir að vera inni í hlýju og þéttu húsi meðan það rignir úti og rokið fer hratt yfir Skagann...

Bíð ykkur góða nótt...Sleeping


Jæja...

...komin heim úr vinnunni...skrapp upp í hús eftir vinnu.  Einar er búinn að klára að glerja og er byrjaður að einangra loftið!!  Svo verður sett járn á þakið um helgina...ef lognið fer nógu rólega yfir Wink

Við stefnum á að flytja 1. mars!!  Ákváðum áðan að setja dagsetningu á þetta, það er alltaf verið að spyrja mig svo nú get ég svarað því!!  Það er líka mjög gott að vera með tímamörk á þessu.  

---

Ég skellti í eitt Eddu-brauð áðan (hálf uppskrift) og hlakka til að vita hvort það er Jóni Ingva þóknanlegt...sem er auðvitað alls ekki víst.  Mikið svakalega vildi ég óska að hann gæti farið að borða MAT!!!  Hætt þessari endalausu matvendni, en þetta virðist algerlega eitthvað sem hann ræður ekki við.  Þetta kemur víst í beinan karllegg...Einar vildi ekkert nema pylsur og bjúgu...og kjötfars úr Einarsbúð þegar hann var pottormur.  Hann var enn töluverður "kenjaskítur" (eins og Lára vinkona mín í Dk orðar það) þegar ég kynntist honum, en hann hefur mannast mikið og borðar nánast allt í dag...meira að setja lauk í mat!!  

Svo það er von fyrir Jón Ingva Tounge

---

Jæja, best að rjúka í bili...alltaf nóg að gera hjá mér.  Knúzzzzzz....


Gamaldags brauð

Þessi uppskrift er fengin hjá Eddu, sem ég vinn með. 

1 kg. hveiti
12 sléttfullar tsk. lyftiduft
1 ltr. mjólk+súrmjólk
2 tsk. salt
pínulítill sykur

Passar í tvö stór form, sem eru fyllt rúmlega hálf.  Þegar brauðið fer að lyftast þá er skorið í það, ca. 3 rispur þversum (til að það springi síður).

175°C í ca. 1 klst.

Vafið inn í blautt stykki og látið kólna þannig.  Má vel frysta. 

---

Ég ætla að prófa þetta...kannski getur gikkurinn minn, hann Jón Ingvi borðað svona brauð... Prófa kannski með spelti.

Later...


Örstutt

Vinna í dag.  Gaman að því.

Jóhannes í fótboltaskólann...Ólöf Ósk fór með honum...ég og Jón Ingvi "skruppum" í Krónuna á meðan og ætluðum svo heim að elda svo við gætum borðað strax og þau kæmu heim...nema hvað, við hittum þar konu sem ég þekki ekki mikið en sem ég hef hitt af og til gegnum lífið, þekki dóttir hennar alveg ljómandi vel...og viti menn, við töluðum og töluðum...og möluðum og möluðum...Jón Ingvi fór í Eymundsson og svo aftur í Eymundsson...og enn möluðum við...  Jóhannes var 50 mín í fótboltanum og ég var að borga vörurnar (mjólk, safa og pylsur...það var allt) þegar Ólöf Ósk hringdi og sagði að þau væru búin...sem sagt töluðum við og möluðum í ca 35 mín...

I Love It!!!

Þetta er lífið, að skreppa út í búð og hitta fólk sem ég þekki (lítið eða mikið) og spjalla.  Sveitatúttan ég elska svona líf!!  

Eitt grunar mig, og það er að ég eigi eftir að rekast oft á þessa konu þar sem ég feta mig áfram í lífinu á mínum vanalegu slóðum...if you know what I mean...!! Mikil hamingja í því fólgin!!

Best að koma yndislegu drengjunum mínum í rúmið.

Fékk ástarjátningu frá þeim stutta áðan, var að þurrka honum eftir baðið og hann gaf mér knús, hjúfraði sér upp að mér og sagði; "Ég er svo hrifinn af þér" InLove

Getur lífið orðið dásamlegra?  Held ekki.  En alltaf þegar ég held það, þá gerist eitthvað sem sýnir mér að þó lífið sé dásamlegt að þá getur það alltaf BEST-nað!!!

Ást... 


Góðan daginn!!

Nývöknuð...eða fyrir hálftíma.  Fór að sofa 21.30...og er samt þreytt!  Ætli ég venjist því einhverntímann að vakna snemma á morgnana?  Samt er þetta ekki snemmt miðað við hvenær við þurftum að vakna meðan við bjuggum í Dk og ég var í skólanum...

En áður en ég æði af stað út í daginn langar mig bara að óska ykkur gleðilegs miðvikudags Heart

Með kærleika... 


Núna ætla ég...

...að leggjast í heitt bað og slappa af.  Svo ætla ég að skríða upp í stóra, góða rúmið okkar - þetta nýja sem kom í gær og inniheldur enga Helvítisgjá!!!  Uuuuuhhh, nice.  Jiiiii, hvað við erum lukkuleg.  Nú vitum við betur og þurfum aldrei aftur að kaupa tvískipt rúm!!! 

Been there, done that!!!

Ást... 


Stend varla...

...undir sjálfri mér.

Mörgum finnst ég svo orkumikil og afkastamikil...þannig líður mér amk ekki núna!!!  Ég er svo búin eftir svona kvöldvakt-morgunvakt.  Sofna seint og vakna snemma.  Ekki alveg fyrir mig, þarf mína 8 tíma...amk!!!

En mikið svakalega var gaman í vinnunni í dag.  Svo gefandi og hvað ég finn hjartað mitt fyllast af kærleika.  

Stundum er allskonar í gangi, neikvæð orka, kergja út af launum og/eða vinnuskýrslum.  Þessi neikvæða orka smitar ótrúlega út frá sér og ótrúlegasta fólk sogast inn í þetta og verður pirrað yfir "hlutskipti" sínu.  

Við höfum val!!!

Ég t.d. - eins og margir aðrir (aðallega þó "margar aðrar") hef valið mér þetta nám, þessa vinnu, því mig langar að vinna við þetta.  Ég elska vinnuna mína, elska að hjúkra og vinna með fólk.

Ég væri að ljúga ef ég segði að ég hefði eitthvað á móti því að fá hærri laun.  Hins vegar er það þannig að ég vil frekar vera á lægri launum og vera í vinnu sem ég elska, heldur en t.d. vera að vinna í peningaheiminum - passa peninga - og fá góð laun fyrir.  

Þegar þessi pirringur og kergja kemur upp í vinnunni þá hef ég líka val um að taka þátt eða sleppa því að taka þátt.  Ég vel að "fjarlægja" sjálfa mig frá þessari neikvæðu orku.  

---

Ok...þetta var sem sagt það sem mér lá á hjarta í dag (eða amk það sem puttarnir létu mig skrifa...).

Ást og kærleikur... 


Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband