Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Klukkustundir óskast!

Ég auglýsi hér með eftir fleiri klukkustundum í sólarhringinn LoL Ef ég á að ná öllu sem mig langar þá vantar mig fleiri klukkustundir!!!

En það er ekki hægt.  Svo ég læt þessar sem ég hef duga og nota þær eins vel og ég get!

Var að vinna í dag, svo ná í drengina, upp í hús í kaffibolla hjá mínum heittelskaða og svo að versla, heim að ganga frá, elda og margt fleira.  Núna ætlum við hjónakornin hins vegar að leggjast í kúrerí og glápa á einhverja vellu!

Mikil gleði framundan á morgun...og hinn...meira af því síðar.

Ást til ykkar þarna úti Heart


Í ofnæmiskasti...!

Jæja, dagurinn í dag hefur boðið upp á ýmislegt.

Í morgun fór ég upp í vinnu í tvo tíma, að mæla blóðsykur hjá samstarfsfólki mínu.  En í næstu viku er heilsuvika og var sem sagt byrjunin á heilsunni í dag og í gær.  Það var mældur blóðsykur, blóðþrýstingur og svo kom starfsfólk frá Rannsókn á SHA og tók blóðprufur, m.a. kólesteról.

Það var frábær þátttaka, ca 80% af starfsfólkinu mætti!!!  Eða rúmlega 70 manns.  

--

Svo fór ég heim, en vinkona mín var að koma í kaffi og spjall.  Við áttum góða stund saman áður en hún dreif sig í vinnuna.

--

Ég fór út í búð, keypti hádegismat og fór upp í hús til míns heittelskaða, sem var að verða búinn að setja upp vegg sem skilur gestaherbergið frá forstofunni.  

Þegar þarna var komið var ég komin með heiftarlegan höfuðverk..

--

Fór í búð, keypti beikon (beikonbollurnar eru fyrst núna í matinn...), sótti drengina og heim.

--

Ég held ég viti alveg orsökina fyrir þessum höfuðverk mínum...hann byrjaði að herja á mig þegar ég var að mæla blóðsykur hjá einni kerlunni...sem hafði líklega dottið ofan í ilmvatnsglasið sitt í morgun...

--

En ég held ég hafi það af að elda kvöldmat og svo verð ég að muna að taka ofnæmislyf...amk vera með þau á mér svo ég geti tekið þau þegar ég lendi í svona aðstæðum...

--

Þannig að...ef þið ætlið að koma í heimsókn þá væri ég afskaplega þakklát ef þið mynduð setja sem minnst af ilmefnum á ykkur...

Best að reyna að gera eitthvað...

Ást... 


Fallegur dagur

Snjór og sól.  Það er svo fallegt úti.  Fjallasýnin.  Yndislegt.  Ísland er svo fallegt!! 

Í gær, þegar við vorum í höfuðborginni fórum við og fengum okkur hammara á Olís rétt hjá Guðbjörgu frænku...hvað heitir nú hverfið...þarna á leið út úr bænum í átt að Hveragerði...?!!!  

En sem við keyrðum þarna ca í austurátt þá blöstu við okkur snævi þakin fjöll.  

Þvílík fegurð!!

Ég persónulega, þurfti að flytja til Danmerkur í 9 ár til að læra að meta Ísland...eða til að hreinlega sjá það!!  

Núna nýt ég þess!!  

Þegar ég horfi kringum mig og sé þessa fegurð þá sönglar alltaf í höfðinu á mér:

"Ísland er land þitt og ávallt þú geymir..."

Þetta lag er í miklu uppáhaldi hjá mér og Jóni Ingva InLove

Jæja...þarf að græja mig fyrir vinnu...

Ást til ykkar allra... 


Borgarferð

Við hjónakornin fórum í höfuðborgina í dag.  Þurftum að skoða næturljós (sem eiga að vera á svefnherbergisganginum) og fleira.  M.a. fara í Toys ´r us og kaupa Spiderman Flexitrax sem strákarnir eru búnir að vera að safna sér fyrir síðan um áramót.

Ég verð að hrósa manninum mínum og Toys ´r us!!  Þegar ég hringdi í byrjun janúar fékk ég að vita að þetta dót kostaði 5999 kr. og drengirnir söfnuðu þeirri upphæð.  Svo í dag, þegar við ætluðum að fara að borga þá kostaði þetta 7299...við ekki alveg sátt.  En ég of meðvirk...en ekki Einar.  Hann sagðist nú ekki sætta sig við þetta.  Stúlkan á kassanum sagði; "Þetta hefur verið á tilboði í janúar en ekki núna...núna erum við með aðra hluti á tilboði".  Ok...nei...EKKI OK!!!  

Einar vildi fá að tala við yfirmann...sem hann fékk...Einar var tilbúinn að æsa sig...sagði manninum að hvað væri málið og hann sagði; "Þið fáið þetta á því verði sem ykkur var sagt"!!!!

Búið mál!

Svo fórum við í Egg...ætlum ekki að versla innréttingu þar!!  Að fá tilboð kostar 5000 krónur!!  Sem gengur upp í ef maður verslar hjá þeim...annars bara too bad.  Svo var konan bara frekar hrokafull og dónaleg...

Þannig að við fórum í Ikea!!!  Og það fyrsta sem við sáum var innréttingIN!!!  Í eyjunni var snilldarlegur ísskápur...eða öllu heldur ísskúffur!!  Og ég kolféll!!!  Svo ef við skiptum ekki um skoðun aftur þá verður þetta sú innrétting sem við munum velja.  Ætlum að teikna eldhúsið í forritinu þeirra og fara og fá tilboð.  

Þetta er svo spennó að það hálfa væri nóg!!!

En nú held ég að ég ætli að fá mér kvöldmat...og fara svo út og hitta fólk!!!  Gaman, gaman. 


Í kvöldmatinn...

...í kvöld er Einn fljótgerður.  Á morgun eru hins vegar beikonbollur!  Hér kemur sú uppskrift:

 

Beikonbollur (frá Maju)
500-600 gr nautahakk
100 gr beikon, saxað
1 egg
½ dl mjólk
3 tsk
kød&grill
100 gr smurostur m. sveppum
pipar

 

Allt hrært saman, mótið bollur og steikið á pönnu, takið af pönnunni.

Sósa:
200 gr hreinn rjómaostur
2 ½ dl rjómi
2 dl vatn

 

Bræðið rjómaost og rjóma saman, þynnið með vatni, setjið bollurnar út í og látið malla í 10-15 mín.

Borið fram með gulrótum, blómkáli og kartöflum.

Þessar bollur eru algert lostæti!!  Slá alltaf í gegn á mínu heimili!! 


Konudagurinn

Ég var spurð að því nokkru sinnum í gær hvort maðurinn minn hefði ekki gefið mér blóm í tilefni dagsins.  Þegar ég svaraði því neitandi komu athugasemdir eins og; "Jiii hvað hann er mikil lumma" eða "En hann leiðinlegur"...eða "En hann órómantískur" og bla bla bla.

Ég svaraði einni svona; "Hann gefur mér ást alla daga og mér finnst það yndislegra en nokkur blóm".  

Og þannig er það!  

Afhverju er sá sem ekki kaupir blóm á konudaginn endilega ömurlegur...leiðinlegur...órómantískur?  Eins og einhver sagði; ég kaupi ekki blóm á "þar-til-gerðum-degi" heldur frekar alla hina dagana!

Við áttum kósí-sjónvarps-þátta-kvöld í gær og borðuðum Dominos pizzu með! Sem við fengum frítt í ofan á lag!  Einar pantaði á netinu og fór svo að sækja...fékk þá að vita að það væri eitthvað að tölvukerfinu svo pantanir gegnum netið bærust ekki á Skagann...þess vegna fékk hann pizzurnar fríar. Við vorum sátt við það!  Pöntuðum samt bara pizzu af því að það var mega-vika og allar pizzur á 1150.  Ég fékk mér Dominos Extra, sem ég er búin að vera í nettri þráhyggju yfir síðan einhver í vinnunni var að dásama þessa tilteknu pizzu...ok, búin að prófa hana og geri það EKKI aftur!! Fannst hún ekki góð.  Bara best að fá með pepperoni, sveppum og gráðosti!!

Nóg um pizzutal...ætla að elda hádegismat handa ofur-virka manninum mínum...hann fór upp í hús 5.30 í nótt!!!  Hafði vaknað 4.30 og ekki getað sofnað aftur...hann virðist geta lagt inn svefn...svaf eitthvað frameftir laugardag og sunnudag...og er greinilega búinn með svefnkvótann í bili!!!  

Jamm, ég skil þetta ekki...en svona er það nú samt!

Eigiði yndislegan dag, elskurnar mínar. 


Jæja...

...12 tímar eftir af helgarvaktinni...

Búin að vinna sem sagt helgina og hef því ekkert bloggað.  Kom heim í gær og fór að elda og kósíast.  Við borðuðum íslenskt lambalæri með ofnsteiktum kartöflum...og sætri kartöflu...og karrísósu að hætti Sollu á Grænum Kosti.  Snilldargóð máltíð!!

Núna er ég að bíða eftir að Jón Ingvi klári eplið sitt...svo eru þeir bræður að fara í bælið.

--

Jæja, búin að lesa "Stolt Simba" og syngja alveg helling.  Og nú segir Jóhannes að hann sé þreyttur en geti samt ekki sofnað...þessi elska, hann vill ekki fara að sofa þessa dagana...en sofnar ef hann bara þagnar í smá stund LoL

Annars er helgin búin að vera góð.  Ég og strákarnir mínir þrír horfðum að Laugardagslögin í gær og tókum þátt í kosningunni og alles...og vorum ekki sammála!!  En hvorki "mitt" lag né Einars vann!!  

Kósí kvöld með strákunum! En Ólöf Ósk var í Eurovisjón partýi með sundhópnum og skemmti sér konunglega!  Stóra stelpuskottið okkar!

Í dag komu svo tengdapabbi og Jóna í kaffi, þegar ég var búin að vinna.  Ólöf Ósk tók út köku með kaffinu.  Svo birtust Valli, frændi Einars, og Sigrún, konan hans óvænt.  Mjög gaman.  

Fyrir þá sem ekki hafa tekið eftir því; ég ELSKA að fá gesti!! 

Á morgun er Valkyrju-saumó hjá mér.  Þessi sem var aflýst um daginn þegar ein af lægðunum gekk yfir suðvestur hornið.  Gaman, gaman.  

Jamm.

ImageChef.com - Custom comment codes for MySpace, Hi5, Friendster and more


Vinakönnun

1.Hvað er klukkan? 19.14

2. Hvert er fullt nafn þitt? Sigrún Jóhannesdóttir

3. Við hvað ertu hræddust/hræddastur? Mjög lofthrædd...komst að því þegar ég stóð uppi á stillasa áður en þakið var sett á húsið...

4. Fæðingarstaður? Odense

5. Uppáhaldsmatur? Íslenskt lamb...mexíkanskur matur...slafr...

6. Hver er þinn náttúrulegi hárlitur? Íslenski sauðarliturinn...með gráu ívafi.

7. Hefurðu einhvertíma verið með tiltektaræði? Nei, ALDREI!! 

8. Hefurðu farið nakin að synda? Neibb...en hef farið nakin í heita pottinn á Reyðarfirði...

9. Hefurðu elskað einhvern svo mikið að þú hefur grátið? Já.

10. Lent í bílslysi? Árekstri en ekki bílslysi.

11. Croutons (Brauðmolar) eða beikonbitar? Beikonbitar takk :)

12. Uppáhaldsdagur vikunnar? Dagurinn í dag!

13. Uppáhalds veitingahús? ??

14. Uppáhaldsblóm? Sólblóm.

15. Uppáhalds íþrótt að horfa á? ENGIN!!

16. Uppáhaldsdrykkur? Blár Kristall og hvítur Toppur!

17. Uppáhalds ís? Einhver sykurlaus ís sem ég geri.

18. Warner brothers eða Disney? Disney

19. Hefurðu ferðast með skipi? Jamm, Akraborginni og Herjólfi...

20. Hvernig er baðmottan þín á litinn? Á enga baðmottu.

21. Hversu oft féllstu á bílprófinu? Aldrei.

22. Hjá hverjum afritaðirðu þetta? Sameiginlegt verkefni hjá mér og Ásdísi...sem hún sá samt meira um en ég ;)

23. Hvað gerirðu þegar þér leiðist? Mér leiðist eiginlega aldrei.

24. Hvenær ferðu í rúmið á kvöldin? Fer eftir hvort ég hef verið á kvöldvakt eða ekki...

25. Uppáhalds sjónvarpsþáttur? CSI NewYork

26. Með hverjum fórstu síðast út að borða? Mínum ástkæra eiginmanni.

27. Almenningsgarður eða dýragarður? Almenningsgarður!!

28. Uppáhaldslitur? Rauður og Grænn

29. Hvað ertu með mörg tattú? Eitt, og hef haft það s.l. 14 ár!!

30.  Hvað áttu mörg gæludýr? Núll!

31. Hvað kom á undan eggið eða hænan? Næsta spurning takk!!!

32. Hvað langar þig að gera áður en þú deyrð?  Halda áfram að njóta lífsins með þeim sem ég elska

33. Hefurðu komið til Hawaii?  Nei. 

34. Hefurðu komið til annarra landa en Bandaríkjanna? Já en aldrei til Bandaríkjanna.  

35. Hvað áttu marga bloggvini? 48

Kæru vinir, endilega vera dugleg að afrita þennan lista inn á ykkar blogg, þurrka út mín svör og setja ykkar inn. Við getum fræðst helling um hvert annað.


Kjóllinn og ég

Og það eru fleiri myndir af okkur á Flickrinu mínu...ef ykkur langar að kíkja ;)

kjóllinn og ég...ooohhh yeah!!


Var á kvöldvakt...

...og er nýkomin heim.  Syfjuð og held ég fari upp í fljótlega. 

Ætla að æða á fætur með krökkunum og fara svo að æfa kl 8.00  Fór líka í morgun en hef ekki verið alveg nógu dugleg undanfarið.  Nú er mál að standa mig betur!!!  Svona til að kortið borgi sig... ;)

Annars er föstudagur á morgun og helgarvinna framundan.  Gaman að því.  Vonast þó eftir þokkalega rólegri helgi...bara svona...jamm...kemur í ljós.

Fékk uppskrift að franskri súkkulaðiköku hjá Lilju sys. í fyrradag og ætla ég mér að prófa að breyta henni mér í hag.  Ef hún heppnast vel þá ætla ég að deila með ykkur uppskriftinni...og jafnvel hafa hana í desert þegar við fáum gesti í mat 1. mars!!  Nú eða ekki...

Ok...ætla í bælið...

Ást og friður. 


Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband