Leita í fréttum mbl.is

Andlaus...

Ég er eitthvað ótrúlega andlaus...verð það af því að liggja bara meira og minna fyrir.  En verð sennilega bara að lifa með því í dag...og kannski á morgun líka.  Er að reyna að passa mig líka að ofgera ekki hnénu en hnéð mitt er skynsamlegt og segir til þegar ég er að verða búin að gera nóg...og lætur mig finna fyrir því að nú sé kominn tími til að leggjast og slaka aðeins.  

Leyfði pabba að snúast í kringum mig í dag þegar hnéð sagði STOPP!!  Hann uppvartaði mig með kaffi og með´í, náði í kodda og teppi...og síðan sæng líka þar sem mér var enn kalt.  Gott að eiga góðan pabba.

Núna er fiskur að hætti tengdapabba að malla í ofninum...nammi namm...held ég smelli inn uppskriftinni Wink

 

Ýsa í karrý og grænmeti  images

600 gr ýsa
½ sítróna
200 gr broccoli
100 gr sveppir
1 dl majónes
1 dl rækjuostur
1dl rjómi
2 tsk karrý
salt og pipar
1 bolli rifinn ostur

Fiskurinn settur í eldfast mót, ásamt sveppum og mýktu broccolíinu.  
Restinni (nema rifna ostinum) blandað saman og hellt yfir.  Rifna ostinum stráð yfir og inn í ofn.

Borið fram með kartöflum og salati.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ummm, girnileg uppskrift, ég elska gott karrí. Þegar þú segir mýkt brokkolí, áttu þá við soðið í smástund?

Láttu mig vita ef ég get dekrað eitthvað við þig ... en mér sýnist þú vera með góðan pabba ...

Guðríður Haraldsdóttir, 3.2.2007 kl. 23:56

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Jamm, soðið í smá stund.

Takk fyrir það, reyndar held ég að ég fari alveg að geta séð um mig sjálf.  Pabbi ætlar út í Skagaver á eftir og ath hvort það sé til málningarlímband svo ég komist í sturtu...farin að lykta illa, finnst mér...!!

SigrúnSveitó, 4.2.2007 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband