Leita í fréttum mbl.is

Góð terta

Ég fékk þessa hjá Erlu sys. í janúar.  Í upphaflegu uppskriftinni, eins og ég fékk hana, þá er sykur - 1 bolli - fyrir þá sem vilja hafa hana þannig.  Ég breytti því sem sagt aðeins.  
Pabbi smakkaði svo tertuna, því hann ku elska þessa tertu...og hann fann engan mun, svo ég sé ekki ástæðu til að nota hvítan sykur.
 
En uppskriftin kemur hér:  
 
4 egg og ½ bolli Agave sýróp og ½ bolli döðlumauk þeytt vel saman. (Döðlumaukið geri ég með að láta döðlur liggja í bleyti í sjóðandi heitu vatni í ca 10 mín. og mixa svo vel saman)
 
1 bolli hveiti og 1 tsk lyftiduft hrært varlega saman við eggjablönduna.
 
1 bolli döðlur og plata af 75% súkkulaði brytjað niður og sett út í hræruna í lokin (sumir setja möndlur líka - það er mjög gott).
 
2 botnar. 
 
Bakað við 180° gr í "ég man ekki hvað langan tíma" (kannski 20 - 30 mín), en það fer ekki á milli mála þegar botnarnir eru tilbúnir.
 
Þeyttur rjómi blandaður með tveimur stöppuðum bönönum sett á milli botnanna.  Svo má setja rjóma og ef til vill súkkulaðispæni ofan á, en mér finnst það ekki nauðsynlegt.
 
Hreinasta snilld með kaffinu á góðum sunnudegi W00t...eða með Latte a la Sigrún Wink

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Mmmm! Hljómar vel! Ætla svo sannarlega að prófa við tækifæri. Takk takk

Hugarfluga, 7.2.2007 kl. 21:46

2 Smámynd: SigrúnSveitó

verði þér að góðu

SigrúnSveitó, 7.2.2007 kl. 21:50

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Namm. Búin að visa í uppskriftum, baka um helgina, kannski, ef ég má vera að því....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.2.2007 kl. 23:16

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Hún er amk góð og alveg þess virði að taka sér tíma í að baka hana

SigrúnSveitó, 8.2.2007 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband