Leita í fréttum mbl.is

Múslíkonfekt og súkkulaði

Múslíkonfekt

2 ½ b haframjölsmúslí m/lífrænu súkkulaði*
½ b agave*
½ b hnetusmjör*
¼ b kókosolía*
¼ b kakóduft*
smá vanilluduft*

allt sett í matvinnsluvél – kælt í 15 mín
mótað konfekt – líka frábært sem kökubont
geymist besti í kæli eða frysti.

 

Heimatilbúið súkkulaði

 

1 dl. Agave
2 dl. Hreint kakóduft
2 dl. Kókosolía 

Látið heitt vatn renna í skál og setjið kókosolíuna þar í svo hún verði fljótandi, blandið allri uppskriftinni í skál og hrærið saman. Tilbúið!

Þetta má setja í konfektform og inn í frysti eða kæli til að búa til súkkulaðimola, einnig má nota þetta sem súkkulaðisósu, hjúpsúkkulaði til að dýfa konfektkúlum í eða blanda þessu út í konfektkúludeig til að gera súkkulaði-effect og fleira og fleira.

Mér finnst þetta súkkulaði mjög gott út á epla- og valhnetubökuna.  

Ég ætla að taka köku með í vinnuna á fimmtudaginn...þess vegna er ég að spá í uppskriftir núna...

Annars er allt gott að frétta, var að vinna í dag eftir 7 daga frí. Fannst ég eins og álfur út á hól í vinnunni...hvernig verð ég eftir 5 vikna frí??!!!! LoL

Jæja, ætla að smella mér á smá fund...Later...!! 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mjög gott konfekt, hef prófað það.

Annað, ertu til í að senda mér 4 spors listann á maili, tölvan mín er biluð og allt fast þar. Thanx my dear. 

jóna björg (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 21:20

2 Smámynd: JEG

Hólý mólý ég er sko greinilega gamaldags hehehe.... Er svo ekki inn á þessu nýja og holla hihihi......  En það er líka kanski góð og gild ástæða ........ég prófa ekki eitthvað svona nema hafa smakkað fyrst.  Ææææjj svo held ég bara að ég sé allllltof jarðbundin sko vil bara þetta gamla góða - hrædd við tilbreitingar. Jammm.....

En svona er að vera sveitakerling og illa menningarsinnaður hahaha..... Knús og kveðja úr sveitinni mín kæra.

JEG, 27.5.2008 kl. 22:00

3 Smámynd: Linda litla

Hvernig væri nú að þú kæmir með smá smakk hérna á bloggið handa okkur ??

Kveðja í draumaheiminn.

Linda litla, 28.5.2008 kl. 01:13

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

díj Hvað þetta hljómar girnó....... slurrp

Hrönn Sigurðardóttir, 28.5.2008 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband