Leita í fréttum mbl.is

Kökur og smá meir...

Hæ hó.

Jæja, ég er mætt!!  Er búin að bardúsa ýmislegt í dag, m.a. fara bloggvinarúntinn.  Svo er ég búin að taka til hjá strákunum, fasteignasalinn er með opið hús á sunnudaginn svo það þarf að vera fínt.  Ég er að vinna alla helgina, svo ég þarf að gera þetta klárt...

Ég skrifaði upp tvær Sollu-uppskriftir úr vikunni um daginn.  Ég er ekki búin að prófa þær en reikna fastlega með að þær séu góðar.  Svo ég ætla að leyfa ykkur að vera memm.

Gulrótarkaka með súkkulaði

250 gr rifnar gulrætur
1öö gr möndlur, þurrristaðar og malaðar
325 gr spelt
2 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
1/2 tsk engiferduft
1/4 tsk kardimommuduft
salt á hnífsoddi
100 gr gróft saxaðar döðlur
2 dl kókosolía
1½ dl Agave síróp
2-3 egg
sesamfræ eða kókos

Hitið ofninn í 180°, smyrjið kökuform og stráið sesam eða kókos í botninn. Setjið rifnar gulrætur, malaðar möndlur, spelt, lyftiduft, kanil, engifer, kardimommur, salt og saxaðar döðlur í skál og blandið með sleif.  Setjið kókosolíu og agave í hrærivél (eða matvinnsluvél) og þeytið vel saman, bætið eggjum út í, einu í einu og blandið vel í 5-10 mín.  Hrærið blönduna varlega saman við mjölið og setjið deigið síðan í formið og bakið v. 180° í 45-55 mín.

Súkkulaði

1 1/4 dl hreint kakó
3/4 dl kókosolía
1/2 dl agave
1/2 dl vanilluduft

Allt sett í skál og hrært vel saman. Síðan er kreminu hellt yfir kökuna.

Gott er að bera kökuna fram með ávaxtasalati (t.d. jarðarberjum, granateplum og rifsberjum) og þeyttum rjóma.

Gulrótarmúffur

5 dl spelt (50/50 fínt og gróft)
1½ dl þurristað kókosmjöl
2 dl rifnar gulrætur (ca 100 g)
1½ tsk lyftiduft
1 tsk kanill
1/4-1/2 tsk salt
1½ dl mjólk
1 msk möluð hörfræ eða 1 egg
3/4 dl kókosolía
1½ dl agave

Hitið ofninn í 180°. Blandið spelti, kókos, gulrótum, lyftidufti, kanil og salti í skál. Setjið mjólk, hörfræ (eða egg), kókosolíu og agave í matvinnsluvél og hrærið smá stund. Hellið blöndunni saman við þurrefnin og blandið saman. Setjið í smurð múffuform og bakið v. 180° í 20-25 mín.

----------

Þetta var matarhorn dagsins Wink

Annars er lítið að frétta í dag.  Það rigndi geðveikt áðan.  Var fegin að vera ekki úti í þeirri dembu.

---------

Var ég búin að segja ykkur að ég er komin í tvo saumaklúbba??  Einn er með "Valkyrjum", konum sem ég kynntist á netinu meðan ég bjó í Danmörku.  Kynntist þeim í Yahoo-grúppu sem heitir "Íslenskar mæður í útlöndum".  Nú erum við nokkrar sem erum fluttar heim og við erum búnar að hittast einu sinni og ætlum að hittast aftur núna seinnipartinn í september.  Svo buðu föðursystur Einars mér að vera með í "frænkuklúbbi", sem ég þáði auðvitað með þökkum.  Ég elska svona "kom-sammen".   Alveg búin að klára félagsfælnina (sem stjórnaðist af ótta við álit annara) og ELSKA að hitta fólk og spjalla.  Finnst fátt skemmtilegra en að halda stórar veislur, fá marga í heimsókn.  Ég komst upp á lagið með það þegar við bjuggum í Danmörku og vinirnir úr Jónshúsi voru að hittast.  Það voru oft margir. 
Þegar við fluttum heim s.l. sumar þá héldum við einmitt kveðjupartý, og það komu hátt í 80 manns og áttum við yndislegan dag með vinum okkar, innan um alla flyttekassana og með gám í hlaðinu.  Þetta var á laugardegi 8. júlí, en við fluttum heim 12. júlí. 

Jamm, partý-on Wizard!!!  Lífið er of stutt til að láta sér leiðast LoL

Ást&Friður... 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Njóttu, mín kæra.

SigrúnSveitó, 6.9.2007 kl. 18:50

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Namm - það koma svo margar góðar uppskriftir frá þér!!

Hrönn Sigurðardóttir, 6.9.2007 kl. 19:08

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk :) Enda er ég mikill sælkeri ;) og hef gaman af að deila með öðrum.

Knús... 

SigrúnSveitó, 6.9.2007 kl. 19:11

4 identicon

mmm, þarf að prófa þessa.r

ást til þín elskan mín c",) 

jóna björg (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 19:57

5 identicon

HVAR ER SÚKKULAÐIÐ ?

María Katrín (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 21:24

6 Smámynd: SigrúnSveitó

Jóna: sömuleiðis

María:

Súkkulaði:

1 1/4 dl hreint kakó
3/4 dl kókosolía
1/2 dl agave
1/2 dl vanilluduft

Allt sett í skál og hrært vel saman. Síðan er kreminu hellt yfir kökuna.

Knús...

SigrúnSveitó, 6.9.2007 kl. 21:30

7 identicon

Mér verður seint hrósað fyrir að vera dugleg að baka, ég kann það samt alveg og baka góðar kökur við "MJÖG" hátíðleg tækifæri  Líst rosavel á gulrótakökuna, prufa hana við tækifæri, um að gera að reyna að vera pínu heilsusamlegur, ég er óþolandi mikill sælkeri og sykurfíkill. Knús í hús.

Hófý Sig (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband