Leita í fréttum mbl.is

Jónu-ís

Hellúúú!!!

Langar að skella hérna inn uppskrift að ís, frá Jónu (tengdó).  Aðallega svo ég týni henni ekki...en um leið getið þið haft ánægju af henni, ef þið viljið.  Þessi uppskrift er með sykri, reyndar ekki miklum, en ég mun að sjálfsögðu notast við Agave-síróp í staðinn.

- 1 msk. sykur móti 1 eggi
- 6 egg í 1 ltr. rjóma
(hægt er að nota ½ ltr. soyarjóma móti ½ ltr. rjóma)

Sykur og egg þeytt saman, rjómi þeyttur. Síðan er þessu blandað varlega saman.

Svo er hægt að setja Daim út í fyrir þá sem það vilja, eða t.d. 70% súkkulaði, eða eitthvað allt annað.

---

Hér er sól og blíða.  Var reyndar grenjandi rok og rigning um hálf 11 í morgun...þegar ég skreið undir sæng að leggja mig...ég er að fara á kvöldvakt...svo ég afsaki mig Wink

Einar sefur, hann var á næturvakt.

Ingvar og vinnumaður eru komnir og eru að vinna í húsinu.  Vonandi að þeir nái að setja sperrurnar á íbúðahlutann...þá fer að styttast í að hægt verði að steypa aftur.  Og þá sannast það sem Jóhannes segir; "Það er stutt í þakið!"!!!

Held ég bruni á pósthúsið og sendi vettlingana hans Ýmis af stað.  Ég var sko búin að prjóna þá fyrir helgi og tók þá með norður...en átti eftir að gera snúru í þá og klikkaði á að taka garnið með mér...ætlaði mér að búa til snúruna á leiðinni...!!!  Svo ég tók þá með aftur, gerði snúruna í gær svo nú er bara eftir að senda þá!!

Þarf líka að versla smá...svo við eigum morgunmat á morgun!

Alltílagitakkbless... 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ skvís.  Ætli ég fari ekki bara á rúntinn í kvöld og kaupi mér ís !! nenni ekki að búa til geri þá svo mikið og borða yfir mig  :):)  kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 18.9.2007 kl. 16:09

2 identicon

Híhí

Get alveg sagt þér hvernig þú getur bætt út þessu með söknuðin. En ég veit þú veist. Paradís Paradís Paradís.

Knús 

María sys (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 21:01

3 identicon

Fann húfuna hans Jóhannesar og er búinn að koma henni í póst , sendi líka peysu sem ég held að hann hafi átt!

kv

Eysteinn (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 22:36

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Ásdís: ég skil þig vel.  en ég borða ekki þennan ís sem hægt er að kaupa í sjoppunum...svo fyrir jólin bý ég til ísinn sjálf...en BARA fyrir jólin...

Ella: Endilega prófaðu, og láttu mig heyra.

María: Ég veit þú veist  Það verður líklega ekki...hvað á ég þá að gera við fína húsið sem við erum að byggja? Svo þegar húsið er komið þá verður líka mikið pláss fyrir ykkur öll að heimsækja okkur OFT, OFT!!

Eysteinn: Þú ert draumur , geturðu ekki smitað eiginkonuna af þessari framtakssemi?? .  Mikið verður Jóhannes glaður.  Ég er líka búin að setja vettlingana hans Ýmis í póst! Og svo er umslag til Jóns Þórs í umslaginu líka...betra er seint en aldrei.

SigrúnSveitó, 18.9.2007 kl. 22:50

5 identicon

Hæ hon.

Takk fyrir þessi fallegu orð. Það sem mér finnst samt ansi ósanngjarnt er að við búum alltaf í þessari miklu fjarlægð frá hvor annari svo við sjáumst örsjaldan á ári hverju. En þetta er víst eitthvað sem veljum sjálfar.

Ég er ekki eins flink í fallegum orðum og þú - eitt af því ólíka við okkur. En þú veist hvað býr í huganum. Það er eitt af því sem tengir okkur saman, þ.e. hvernig við þekkjum hvor aðra.

En næsta sumar verður húsið vonandi klárt og þá stoppum við vonandi lengi hjá ykkur. Þá verður nóg pláss fyrir mig og mína risavöxnu fjölskyldu

Lilja Guðný Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 08:10

6 Smámynd: SigrúnSveitó

Ég er strax farin að hlakka til, búin að benda Einari á að það liggi á!!

En já, það er rétt, við veljum víst sjálfar hvar við búum, en eitt er víst Akranes varð ekki fyrir valinu með það í huga að vera langt í burtu frá þér!

Knús&kærleikur

SigrúnSveitó, 19.9.2007 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband