Leita í fréttum mbl.is

Síðasti sunnudagur janúar-mánaðar!!!

Góðan sunnudag, elskurnar mínar til sjávar og sveita!

Hér í koti fóru sumir snemma á fætur (minn heittelskaði kl. 5.15), aðrir aðeins seinna (strákarnir rönkuðu við sér til að horfa á danska barnatímann kl. 7.40)...á meðan enn aðrir lágu á sínu græna fram undir hádegi (ég sko...).  Dí hvað ég er svakalega morgunsvæf.  Og morgunlöt.  Mér finnst bara ótrúlega notalegt að liggja undir sæng þegar ég get og má.  Jóhannes kom reyndar um níu-leitið og sagði; "Mamma, viltu hjálpa mér, ég ætla að fá mér í gogginn" (algert krútt).  Ég fór og gaf honum súrmjólk með púðursykri og cheerios...og skreið undir sængina aftur.  Dormaði eiginlega eftir það.  Mjög notó.  

--- 

Held svei mér að kvefið sé á undanhaldi.  Hélt það reyndar líka í gærmorgun...en var mjög stífluð allan daginn.  Svo er ég líklega með vökva í eyrunum...undarleg tilfinning.  Það eru allskonar skruðningar og læti í eyranu á mér og svo heyri ég frekar illa.  Veit núna hvernig börnunum mínum hefur liðið á þeirra yngri árum...

--- 

Ég tók mér það bessaleyfi að STELA uppskrift frá Hugarflugunni minni kæru.  Svona svo ég týni ekki uppskiftinni...vona að Hugarflugan fyrirgefi mér...; 

"...Útbjó svo kartöflur, sem ég tvíbakaði; þ.e. bakaði þær fyrst, lét þær kólna og tók svo innan úr þeim og blandaði saman við sýrðan rjóma, blaðlauk, papriku og beikon og stráði svo Mozzarellaosti yfir og oregano og bakaði aftur."

Hljómar guðdómlega, finnst ykkur ekki???  Mér finnst það amk.  Enda hef ég löngum verið kartöfluglöð kona!

--

Haldiði ekki að mér hafi verið boðið á Tupperware kynningu í dag?!!!!  Hef ADLREI orðið svo fræg að fara á slíka kynningu.  Eina kynningin sem ég hef farið á, er kynning á hjálpartækjum ástarlífsins.  Minnist þess þó ekki að hafa keypt neitt.... Man hins vegar að það var mikið flissað...Blush

 

myspace layouts


Ég er eiginlega búin að ákveða hvað ég ætla...kannski...að kaupa.  Og ég ætla EKKI að kaupa neitt annað!!!  Segi ykkur seinna hvað ég keypti...ef ég keypti það...!!!

 

Best að fara að prjóna....

pimp myspace profile



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Það væri ábyggilega þræl gaman að fara á svona kynningu um hjálpartæki ástarlífsins

Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.1.2008 kl. 16:57

2 identicon

Vona þér fari að hressast pestin sem allra fyrst.  Hér á bæ hjá mömmu&pabba er dekstrað við mann hægri vinstri .. þurfum heldur betur að passa línurnar eða taka extra vel á því í ræktinni :D  Endalaust verið að troða í mann mat :)   knús á ykkur!

ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband