Leita í fréttum mbl.is

Matarblogg...

Ég hef lesið einhverjar athugasemdir þess efnis að ekki sé ráðlegt að lesa bloggið mitt þegar fólk er svangt...þannig að ég aðvara ykkur hér með: Farið og borðið, komið svo aftur Tounge

Ég ætla sem sagt að deila með ykkur hvað við ætlum að borða á eftir:

Bakaðar kartöflur með káli, papriku, gúrku, rifnum osti, sýrðum rjóma, steiktu beikon og steiktri skinku. Þetta er sjúklega gott, finnst okkur, en vorum bara búin að gleyma þessum mat. Ólöf Ósk kom með hugmyndina þegar hún kom heim frá Danmörku, og fannst langt síðan við höfðum haft þetta í matinn, sem er alveg rétt.

Í eftirrétt, jamm, við ætlum að hafa eftrirétt í kvöld, gerist ekki oft:

Ávaxtagrautur:

250 g þurrkaðir ávesxtir, t.d. sveskjur, þurrkuð epli eða blandaðir ávextir.
1 L vatn
2-3 msk sykur ég nota að sjálfsögðu AGAVE sýróp
6 msk maísenamjöl
1 dl kalt vatn

Aðferð:  Leggið ávextina í bleyti í vatnið í 1/2 - 1 sólahring. Sjóðið með 1-2 msk af sykri þangað til hægt er að hræra ávextina í sundur.
Bragðið og bætið sykri í að vild.
Hrærið maísenamjöli út í köldu vatni. Jafnið grautin. Hrærið í á meðan og þangað til suðan kemur aftur upp. Sjóðið í 1-3 mín. Hellið grautnum í skál og stráið sykri yfir svo að ekki myndist skán. Borið fram volgt eða kalt með kaldri mjólk eða rjómablandi.

SLAFRRRR....

Svo ætla ég á kaffihús, södd og sæl, fá mér kaffilatte með vinnufélögum sem þangað vonandi mæta sem flestir!!!

Annars veit ég ekki hverju fleiru ég get logið að ykkur núna...er smá farin að telja niður þar til ég hætti í vinnunni...get samt ekki talið þar sem ég veit ekki hvenær ég get hætt...hlakka til, en það verður samt leiðinlegt að segja bless við vinnufélagana sem flestir eru alveg súper yndislegir Heart En ég hlakka til að reyna fyrir mér á nýjum stað, þó hann sé ekki alveg nýr...

Meira síðar...KNÚÚÚSInLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Knús til baka á þig

Hrönn Sigurðardóttir, 13.8.2008 kl. 21:17

2 Smámynd: JEG

OMG kona þú ert nú bara met sko.  Matgæðingur sem þú ert.

Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 14.8.2008 kl. 00:43

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég þurfti ekki að borða núna, klukkan er orðin svo margt og ég hef ekki lyst á mat á nóttunni.  Þú er algjört æði yndið mitt.  Hafðu það gott elskan Dolled Up  Heart Beat Good Night 

Ásdís Sigurðardóttir, 14.8.2008 kl. 01:26

4 Smámynd: Hugarfluga

Mmmmm eeeelska krappppbullur og þá sérstaklega svona bakaðar með gumsi í!   Knús inn í daginn!

Hugarfluga, 14.8.2008 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband