Leita í fréttum mbl.is

Óvæntir gestir

Veðurguðirnir sjá okkur fyrir gestum þessa dagana.  Fyrst komu Erla og Birgir Elís, veðurteppt í nokkra tíma.  Í gær var svo bankað og úti stóðu Benni (tengdapabbi) og Jóna.  Á leið heim til Akureyrar, en voru veðurteppt.  Svo við græddum fengum að hafa þau í heimsókn í nótt...og ef til vill áfram í dag (Benni er að tala við veðurstofuna).  Gaman að fá gesti.  

Ég tók mig til og hrærði í bollur í gærkvöldi, skellti deiginu í ísskápinn og vaknaði 6.15 til að skella bollum á plötu og kveikti á ofninum.  Skreið svo inn í rúm í korter...fram aftur til að setja bollurnar inn og svo inn í rúm í 18 mínútur!!  Svo fórum við á fætur og gátum gætt okkur á nýbökuðum bollum.  Þvílík snilld.  Svo eru þær ekkert sérlega óhollar heldur, svo ekki er það verra.  

Hér kemur uppskriftin ef þið viljið: 

 

Haframjölsbollur bollur

1½ dl haframjöl
3 dl vatn
1/2 pk þurrger (eða 25 gr pressuger)
2 dl rifin gulrætur
1-2 dl jógúrt
2 msk olía
1 tsk salt
ca 500 gr hveiti

 

Setjið haframjöl og vatn í pott og sjóðið í 1-2 mín og hrærið í á meðan.  Þegar þetta er orðinn hafragrautur er potturinn tekinn af hellunni.

Kælið grautinn þar til hann er kaldur.  Setjið gulrætur, jógúrt, olíu og salt í og hrærið vel saman.  Blandið hveitinu og gerinu saman og hrærið saman við grautinn.  Deigið á að vera frekar blautt og klístrað.  Setjið svo deigið í ísskápinn og látið hefast þar yfir nótt.

Formið bollur með skeið.  Látið þær hefast á bökunarplötu í 15 mín. 

Bakið v. 200°C í ca 18 mín. í miðjum ofni.

Gerðu þína eigin uppskrift:
Prófaðu að setja
1 dl rúsínur í deigið eða
4 msk hörfræ eða
1 dl heslihnetuflögur.

Mæli með þessari.  Hún sló amk í gegn hérna hjá okkur í morgun.  Svo er Latte ómissandi...að mínu mati!! 

Benni og Jóna eru farin af stað.  Ætla að freista þess að komast yfir Holtavörðuheiði áður en fer að hvessa meira...það er sannkallað vetrarríki hér á Fróni þessa dagana. 
Skafrenningur

Það er víst skafrenningur bæði á Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði...en þau lofuðu að ana ekki út í neina vitleysu, frekar snúa við og vera aðra nótt!!!  Svo við treystum á að þau hagi sér skynsamlega Wink

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband