Leita í fréttum mbl.is

Lifrarbuff

Ragga, sem er að vinna með mér, spurði mig í gær hvort ég ætti ekki uppskrift að lifrarbuffi. Gamaldags og góður matur...og ódýr. Ég man að mér þótti lifur hreint út sagt viðbjóður þegar ég var krakki og unglingur og held ég hafi ekki smakkað hana síðan ég var unglingur. Mér er sérstaklega minnistætt þegar ég 16 ára, og nýflutt heim til þáverandi kærasta míns. Það var steikt lifur í matinn og ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að segja að mér þætti lifur vond. Meira að segja þótti mér hún svo ógeðsleg að ég kúgaðist ef ég tuggði hana... EN í þetta skipti skar ég bitana MJÖG smátt og gleypti þá svo ótuggða... Næst þegar það var lifur í matinn var ég farin að kynnast foreldrunum betur og þorði að segja að ég bara gæti ekki borðað þetta...
 
En ég sendi mail á múttu mína í gær, því ég man að hún gerði lifrarbuff hér í denn.  Þau voru alveg hreint ágæt ef ég man rétt og mikill munur að borða þau samanborið við steikta lifur. Lifur er sögð mikið holl, svo það væri sniðugt að taka upp þann sið á ný að leggja sér slíkt til munns. 
...reyndar heyrist mér að familíjan mín sé ekkert upprifin...sjáum hvað setur.
 
Hér kemur uppskriftin:
 
Lifrarbuff
 
300 gr hráar kartöflur
300 gr lifur
1 lítill laukur
1/2 paprika
1 egg
1 tsk salt
1/2 tsk pipar
Hakkið lifur og kartöflur einu sinni.
Setjið fínhakkaðan lauk og fínhakkaða papriku saman við.
Setjið eggin og kryddin saman við hræruna.
Mótið buff og steikið á pönnu.
 
Jæja, ætla að taka til eftir kvöldmatinn. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Lifrarbuff hef ég einu sinni reynt að gera en heppnaðist ekki vel og finnst mér það ekki gott.  Sem krakki borðaði ég ekki lifur né lifrapylsu.  En í dag borða ég lifur og þá bara steikta og geri gurmet sósu með rjóma og piparosti og sveppum nammm......  Annars er það nú þannig að ef maður er hár í Járni (blóðinu) þá er nú ekki sniðugt að vera að borða mikið af lifur og þar sem ég er há þá vil ég meina að það sé ástæðan fyrir því að ég var ekki hrifin af lifur í denn.

kveðja og knús úr sveitinni. 

JEG, 17.10.2008 kl. 21:16

2 Smámynd: Þóra Elísabet Valgeirsdóttir

Ég held að ég verði nú bara að prufa þetta lifrabuff þó svo að það séu ekki margir hrifnir að lifur á mínu heimili;)

En svona til að svara spurningu þinni, að þá er ég á næturvöktum í þjónustuíbúðum fatlaðra.  Bara rosalega fínt. En það getur líka verið einmannalegt að vinna alltaf ein.

kveðja Þóra E. 

Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 17.10.2008 kl. 22:35

3 Smámynd: Úrsúla Manda

Ummm þetta finnst mér hljóma girnilega!! Ég elskaði lifur hér í denn, langt síðan ég hef borðað það. Amma steikti alltaf lifur og lauk, og svo var kartöflumús og brún sósa með. Mikið svakalega fannst mér það gott.

Úrsúla Manda , 17.10.2008 kl. 23:16

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Jóna, ég held það sé alveg rétt að líkaminn VEIT hvað hann vantar og hvað hann vantar ekki. Ég fékk mega lifrarkæfuæði á meðgöngu 2...og var sjúk í banana á 1. meðgöngu...

Já, þið nobbastelpur, endilega prufið og segið mér svo hvernig þetta var. :)

Knús...

SigrúnSveitó, 18.10.2008 kl. 00:32

5 Smámynd: Tína

Hrollur......... segi það bara með þér Sigrún mín að lifur er barasta e-ð sem ég get ekki ofan í mig látið. Aldrei að vita hvað tíminn ber í skauti sér samt, því ég man að einu sinni gat ég engan vegin borðað soðnar gulrætur en finnst þær bara alveg þrælgóðar núna.

Knús á þig fallegust

Tína, 18.10.2008 kl. 09:34

6 Smámynd: Dísa Dóra

Verð að prófa þessa uppskrift einhverntíman

Dísa Dóra, 18.10.2008 kl. 10:24

7 identicon

Mér líst rosalega vel á þessa uppskrift og ætla að prófa hana við tækifæri. Ég hataði lifur líka mjöl langt frameftir aldri en eftir að ég smakkaði hana eins og Valdimar eldar hana þá finnst mér lifur æðisleg.

Jóhanna (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband