Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Sæludagur

Allir dagar eru á einhvern hátt sæludagar.

Í dag svaf ég lengi (jamm...kemur ykkur örugglega ekki á óvart...finnst ég alltaf vera að segja ykkur að ég hafi sofið lengi...ætti kannski að skoða "svefnpurkur anonymous"Tounge).

Minn heittelskaði kom og vakti mig rétt fyrir hálf 12...þá var ég reyndar vöknuð...!  Við ákváðum að það væri tímabært fyrir mig að drattast framúr þar sem við ætluðum að fara á fjölskyldudag Norðuráls. Norðurál fagnar 10 ára starfsafmæli á þessu ári og var sem sagt fjölskyldufögnuður þar í dag. Við fengum m.a. að skoða starfsemina, reyndar úr rútum en við sáum t.d. vinnustaðinn hans Einars sem er skautsmiðjan. Gaman að því. Ég vissi lítið um þetta en er örlítið fróðari eftir daginn Wink

Ég fór svo heim á meðan familíjan mín fór í afmæli hjá bróðursyni Einars. Ég "á" þessa helgi (í vinnunni) en fékk skipti í dag. En er á bakvakt núna eftir kl. 16, svo ég gat ekki farið úr bænum. Þannig að ég er í rólegheitum heima, búin að setja í þvottavél og er að hugsa um að smella mér í smá föndur Smile Keypti mér ný skæri áðan, og get vonandi notað þau. Svo vantar mig sárlega almennileg sníðaskæri (helst Fiskars...) og er ég að vonast eftir að þau séu fáanleg í einhverri verslun hér á Skaganum...ætla að athuga í Ævintýrakistuna tomorrow!

Ást...Heart

Ps. mig langar enn í berjamó...kannski ég breggði mér í vikunni...


Ég var klukkuð!

Renata klukkaði mig....

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina
  • afgreiðslustörf hjá Kaupfélaginu Fram, Neskaupstað 
  • klinka hjá Pálma tannsa, Neskaupstað
  • starfsstúlka á leikskólanum Múlaborg, Reykjavík
  • hjúkka á dvalarheimlinu Höfða, Akranesi

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á

  • Grease
  • Dirty Dancing
  • Fjögur brúðkaup og ein jarðarför
  • Pretty Woman

Fjórir staðir sem ég hef búið á

  • Norðfjarðarhreppur (ekki til lengur)
  • Reykjavík
  • Græsted, Danmark
  • Akranes

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar

  • Friends!
  • Desperat housewives 
  • Sex and the city
  • ER

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum

  • Amsterdam (fórum í útilegu þangað 2002)
  • Jylland, Danmark
  • Holmestrand, Norge
  • Ísland (er land þitt og ávallt þú geymir...)

 

 

  • Fernt sem ég held uppá matarkynns
  • Lambakjöt
  • Kjúklingur 
  • lax
  • sykurlausar kökur að hætti Sollu og CaféSigrúnar

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft

  • úff, hef ekki lesið annað en skólabækur í svo mörg ár...
  • En sem krakki las ég t.d. Ævintýrabækurnar eftir Enid Blyton svakalega oft, og líka Öddu-bækurnar eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson.
  • Bókin sem ég er að lesa þessa dagana heitir; "Psykiatr, en grundbog"...undirbúningur fyrir nýju vinnuna.
Fjórir bloggarar sem ég klukka  

Góða skemmtun.  


Skipulag!

Nú förum við bráðum að telja niður fram að fermingu og nú ætla ég að vera tímanlega í ýmsu sem hægt er að gera með góðum fyrirvara. T.d. að búa til myndasjóv fyrir skottuna Smile

Ég er svo lánsöm að eiga systir sem er mega skipulögð og bý ég að hennar reynslu, þar sem hún fermdi sinn elsta í vor sem leið Wink

Afhverju er ég að spá í þetta núna? Jú, vegna þess að prentarinn okkar er bilaður og okkur vantar nýjan og þá kom upp spurningin hvort það þyrfti skanna...eða Einar kom með spurninguna...!!! Og AUÐVITAÐ þurfum við skanna! Kommon!!

En ég skil svo sem vel að hann spyrji því við höfum lengi verið með prentara með skanna...en hann hefur ekki verið mikið notaður undanfarin ár...en nú verður sem sagt breyting á...amk. tímabundið...Tounge

Af öðru get ég sagt ykkur að ég léttist um 10 kg áðan...fór sko í klippingu...!!! LoL Og er alsæl með það. Ég er svoooo ánægð með klippikonuna mína, hana Önnu Júlíu. Hún veit nákvæmlega hvernig ég vil hafa hárið og það er náttúrlega bara snilllllld!

Jæja, best að ráðast út í rokið og sækja Jón Ingva í skólann...ekki viljum við að hann fjúki til fjalla... eða á haf út (veit ekki hvaða átt er....LoL)


Eintóm hamingja

 Þannig er líka best að lifa, með gleði og þakklæti í Heart´nu Smile

Ég hef svo mikið af allskonar til að vera þakklát fyrir, svo ég ætla t.d. ekki að æsa mig núna þegar drengirnir okkar koma inn úr fótbolta...urrandi út í hvorn annan LoL

--

Við héldum fjölskyldufund áðan og ákváðum matseðilinn fyrir næstu viku. Alger snillllld þegar við gerum þetta! Þá er svo miklu skemmtilegra að elda, þegar ég þarf ekki að brjóta heilann um of...gæti brætt úr honum...hohoho...Grin

En vitiði...nú er ég að hugsa um að narra eldri son okkar til að dratta sér í sturtu...ótrúlegt hvað börnum getur þótt leiðinlegt að fara í sturtu, eins og það er næææææse!!!

---

Svo verð ég að monta mig, ég eignaðist yndislega frænku í fyrradag! Þar eiginlega bara að lokka mynd út úr mæðrunum til að sýna ykkur. Hún er alger draumur! Mikið hlakka ég til að knúsa hana og finna lyktina af henni...elllllska lyktina af brjóstabörnumInLove

Jamm, það var það sem ég hafði að segja ykkur í dag.

Knús...

 


Lífið er yndislegt...

...lalalala...

Jamm, er lífið bara ekki dásamlegt? Ég er búin að eyða stærstum hluta dagsins með mínum heittelskaða og það er bara ljúúúftHeart Hann er svo beeeestur!  Lánsöm ég að vera gift bestasta vininum mínumInLove

--

Jón Ingvi krútt lenti í smá leiðindum í gær, hjólinu hans var stolið fyrir utan skólann Frown en gleðin var stór í dag þegar hjólið kom í leitirnar. Einhver (óprúttinn) hafði tekið það að láni en greinilega skilað því, því það fannst á skólalóðinni, þeirri sömu og var margskoðuð í gær! Svo nú er búið að kaupa nýjan lás, svo það er bara lukkan.

--

Ég brá mér í borgina, með Einari, og keypti mér m.a. efni í 3 pils! Hlakka til að ráðast í það verkefni! Ódýr pils...keypti efni og rennilása fyrir um 4000 kr!!!

Jæja, best að klára að ganga frá...var sko að versla... 


Bloggleti

Stundum finnst mér að ég VERRRRÐI að blogga, og blogga eitthvað ægilega gáfulegt...En svo man ég að ég blogga fyrir mig, af því að mér finnst það gaman...svo er auðvitað stóóóór plús að einhverjir nenni að lesa...og jafnvel kommenta.

Ég ætla samt ekki að detta í þá gryfju að fá samviskubit ef ég blogga "ekki nógu oft", sem er auðvitað líka heimskulegt. Ef þetta er kvöð þá verður þetta leiðinlegt!

Í gær fór ég í borgarferð. Fór að hitta Lilju sys. sem þar var stödd í námsferð.  Stúlkan sú er komin í mastersnám í íslensku. Hún er svo námsfús, þessi elska. Fær ekki nóg. En eins og hún orðaði það sjálf í gær að þá er hún löngu hætt að prjóna eða sauma eða neitt slíkt, þar sem kennslan og námið er hennar allra stærsta áhugamál.  

Við systur þvældumst um í Smáralindinni, ég keypti mér tösku, geðveikt flotta, rauða. Set kannski inn mynd af henni við tækifæri!

Á eftir fórum við á Vegamót að borða...slafffr...mikið góður matur og svo þetta líka svakalega góða latte á eftir. Mikið spjallað og bara yndælt í alla staði. Takk sys (ef þú lestWink).

Reyndar drakk ég MIKIÐ kaffi í gær, var bara í heimsóknum og þess háttar þvælingi allan daginn...fyrir utan æfinguna í hádeginu...

Í dag var svo alvara lífsins...nefninlega vinnan.  Eftir vinnu fórum við Jóhannes í heimsókn til leikskólavinar Jóhannesar og mömmu hans. Og hvað haldiði?!! Við komumst að því að við erum svona líka slatta mikið skildar. Eða sko afi minn (Gunnar) og langamma hennar voru systkini.  Nú er ég búin að týna aðgangnum mínum að íslendingabók svo ég get ekki skýrt þennan skyldleika nánar...man ekki alveg...

...ansans...var að finna lykilorðið mitt en nú er ég búin að biðja um nýtt og þá gildir hitt ekki lengur...o jæja, ætli þetta bjargist ekki?!!!

Jæja, best að skríða undir sængina mjúku... 


Gleðilegan sunnudag!

Jæja, við sem heima sitjum létum klukkuna vekja okkur kl. 7.40 og fórum upp og horfðum á úrslitaleikinn - eins og eflaust stærstur hluti íslendinga!

Og vitiði, nú lá ég ekki 12 tíma í bælinu, heldur eitthvað um 8½ tíma og það er allt annað líf, bakið mitt er greinilega ekki í stuði fyrir 12 tíma rúmliggingu!

--

Jóhannes 5 ára sætilíus :)Hurru, ég setti inn myndir á heimasíðu íslensku víkinganna í gær. M.a. myndir úr afmæli drengjanna.  

Hér er ein af Jóhannesi, tekin að morgni 5 ára afmælisdagsins InLove

Annars er ekki margt nýtt. 

Endilega sendið mér uppskrftir...netfangið mitt er: sigrun[at]dengule.dk

Kyss...myspace layout images


Uppskriftir óskast!

Hæ elskurnar mínar, all-a-round!   Ég ætla að smella hér inn textanum sem var í tölvupóstinum sem fór frá mér áðan. Sum ykkar (sem eruð á netfangalistanum mínum) fengu þennan póst, en það eru þónokkrir sem ekki eru þar og fengu þennan póst því ekki.

Ég biðla hér með til ykkar allra, og get líka sagt ykkur strax hvað ég verð með í matinn í kvöld; Ég keypti kjúklingabaunabuff frá Grími kokk og ætla að snæða það. Ólöf Ósk bjó til grjónagraut handa sér og lilla bró!

Tölvupósturinn:

Heil og sæl öllsömul!
 
Þar sem ég sat og braut heilann um hvað ég ætti að hafa í matinn flaug mér í hug að leita til fólks á netfangalistanum mínum...
 
Mig langar að biðja ykkur - ef þið eruð til í "tuskið" - að deila með mér einni hversdagsuppskrift úr eldhúsinu ykkar.
 
Held við þekkjum þetta flest, að brjóta heilann í sífellu um hvað á að vera í matinn...og enda svo jafnvel alltof oft á að elda það sama... Amk. er ótrúlega mikill heiladoði hjá mér þessa dagana hvað þetta varðar.
 
Ef ég fæ slatta af uppskriftum þá mun ég safna þeim saman í wordskjal og smella því á bloggið; http://www.sigrunsveito.blog.is/ ,svo sem flestir geti fengið notið!
 
Með von um stórkostleg viðbörgð ;)
 
Með kærleika og virðingu,
S.
 
Ps. þið megið gjarnan senda mér uppskriftirnar á netfangið mitt: sigrun[at]dengule.dk  
 
---
nokkrum klst. síðar...
 
kjúklingabaunabuff...ég get sagt ykkur að kjúklingabaunabuffið hans Gríms kokks var hreinasta snilld.  Ég borðaði það með hrísgrjónum, salati og sinnepsósu að hætti Úrsúlu.  Jamm, gargandi snilld!  

Mæli með svona máltíð, tala nú ekki um ef andleysið er að drepa fólk úr hungriTounge


Ellikelling?!

Skyldi það vera ellikelling sem er að banka upp á? Ég get ómögulega legið í rúminu í 12 tíma án þess að vera að kálast í bakinu!! EKki gott!!!

Finn fyrir því núna, þar sem ég fór í bælið kl 23 og lá þar eins og skata til kl 11...

--

Ég og Jóhannes keyrðum Einar og Jón Ingva í Vatnaskóg í gærkveldi. Brunuðum svo heim og fengum okkur smá kvöldmat og svo var lagst í gláp...Jóhannes tók íþróttaálfinn í nefið á meðan við mæðgur lágum yfir Friends... Mjög nice.

Svo vorum við að spá í að kíkja í borgina...ef það væri þurrt...en nennum ekki út í rigninguna. Mig langaði svo að kíkja á prjónaríið í Hallargarðinum...en það eru örugglega ekki margir sem sitja úti í rigningunni og prjóna...eða hvað haldið þið? Mig langaði að kaupa mér svona bleika nælu...flott næla fyrir prjónafólk og styrkir gott málefni.  

egPrjona Og eftir auglýsingunni að dæma þá verða þau bara til sölu í Hallargarðinum :( Annars hefði ég getað pantað mér...það er nefninlega líka dýrt að keyra alla leið í borgina bara til að kaupa eitt merki...!

Jæja, ég er hætt í bili, tölvan mín er komin með hita...brenni mig á henni...eða næsum því...

Knúúúús.... 


Áströlsk bomba

Hellúúú...!!

Ég lofaði vinnufélögum mínum að setja hér inn uppskrift að kökunni sem ég tók með í vinnuna í fyrrakvöld:

 

Áströlsk bomba með heitri sósu

235 gr döðlur
1 tsk matarsódi
120 gr mjúkt smör
5 msk agaves
2 egg
3 dl hveiti
½ tsk salt
½ tsk vanilludropar
2 msk lyftiduft

 

Setjið döðlurnar í pott og látið vatn fljóta yfir.  látið suðuna koma upp, slökkvið á hitanum og látið döðlumaukið standa í pottinum í 3 mínútur.  Bætið matarsódanum út í.

Þeytið smjör og sykur vel saman og bætið eggjunum í einu í senn.  Þeytið vel og blandið síðan hveitinu, saltinu og vanilludropunum saman við.  Bætið lyftiduftinu út í ásamt ½ dl af döðlusoðinu og hrærið varlega (deigið á að vera eins og vöffludeig).  Hellið döðlunum í sigti go bætið þeim út í að lokum. 

Smyrjið u.þ.b. 8 cm hátt lausbotna fóm sem er 24 cm í þvermál vel með smjöri og setjið deigið í formið, hitið ofninn í 180° og bakið í 30-40 mín. eða þangað til miðjan er orðin bökuð.  Hvolfið kökunni á tertudisk og berið hana fram volga með sósunni og þeyttum rjóma eða ís.

sósa:
100 gr smjör
115 gr agave
½ tsk vanilludropar
¼ bolli rjómi

Setjið allt saman í pott, látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið sósuna krauma í u.þ.b. 3 mín.
Hrærið stöðugt í á meðan. 
Berið sósuna fram með bombunni.

Það verður að segjast eins og er, þetta er alveg svakalega gott...þó svo að sósan hafi verið einum (ef ekki tveimur...eða tíu) of sæt fyrir mig. Því ég er svoooo sæt að...ok, stoppa hér LoL

Jæja, búin að skila múttu minni túttu í flug, hún er væntanlega lent á Egilsstöðum og á leið heim á Nobbó. Á eftir að sakna þess að hafa hana ekki nær mér. Búin að eiga yndislegar stundir með henni undanfarnar 2 vikur.  Eeeeen, ég kaus mér líf 700 km í burtu frá æskustöðvunum svo ég get ekki verið í kaffi hjá henni oft í viku...that´s life!

Jæja, best að hjálpa feðgunum að pakka... 

 

 


Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband