Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Gamlársdagur 2007

Fyrir ári síðan rifjaði ég upp, hérna á blogginu, það helsta sem á daga okkar hafði drifið árið 2006.  Er að hugsa um að gera slíkt hið sama núna.

Janúar börnin okkar fallegu og yndislegu

Janúar fór rólega af stað.  En 18. janúar fögnuðum við 60 ára afmæli tengdamúttunnar minnar.  Og var þessi mynd af börnunum okkar tekin við það tækifæri.

Í lok janúar var smá stress í gangi hjá mér, en þeim mánuði lauk með 3ja daga prófi að hætti Sygeplejeskolen í Hillerød, nema prófið fór fram á deild 32A á Landspítalanum.  2ja daga verklegt próf sem lauk með munnlegu prófi 3. daginn.  Þeim sem þekkja mig kemur eflaust ekki á óvart að ég var listarlaus og með ógleði þessa daga...

Þetta voru líka dagarnir sem ég formlega féll, og við tók 3ja mánaða sykurfyllerí...

En prófið, ég stóð það sem stæl!!  Og var mjög lukkuleg, því það þýddi að ég myndi geta farið að skrifa lokaritgerðina mína!!

Febrúar

Febrúar byrjaði ég á því að smella mér í aðgerð á hné...og ætla Jónu vegna ekki að setja neinar myndir af því hérna inn...  Hluti af liðþófanum í hnénu var tekinn og hefur það gert gott.  Ég er oftast verkjalaus í hnénu, þó ég sjái ekki fram á að komast aftur á hnén nema hafa púða undir...!! Kim og Tinna

Um miðjan febrúar lögðum við Jóhannes upp í langferð, fórum í 4 vikna dvöl til Danmerkur.  Ég átti eftir síðasta kúrsinn í náminu, áður en ég gæti byrjað að skrifa.  V

Þessar 4 vikur vorum við í góðu yfirlæti hjá Tinnu, Kim og börnum í Græsted.  Vinur okkar sem hafði lofað mér að hann myndi hjálpa mér að passa Jóhannes, sveik mig á síðustu stundu - þegar við vorum komin út.  Þá voru góð ráð dýr...en leikskólinn sem strákarnir voru á meðan við bjuggum úti, opnaði dyrnar og bauð Jóhannes velkominn til sín.  Endurgjaldslaust og með bros á vör!  

Við áttum yndislegar 4 vikur í Græsted og var erfitt að segja bless að þeim loknum. Falck og co.

Reyndar voru líka erfiðar stundir, Jóhannes veiktist, fékk hitakrampa og þurfti tvisvar að kalla eftir aðstoð.  Fyrst voru það Falck-sjúkraflutningamenn sem mættu, og létu mér eftir eina túpu af vöðvaslakandi til að eiga ef þetta gerðist aftur.  Nóttina eftir var það vaktlæknirinn sem kom Jóhannes og Idaog kíkti á ungann, en þá var hitinn kominn í 40.7 og á leið hærra upp...  Lungnabólga reyndist vera sökudólgurinn og fyrsti pensilín skammturinn sló á pöddurnar og var drengurinn hitalaus morguninn eftir!!! 

Jóhannes og Ida áttu góðar 4 vikur saman og styrktu enn böndin sem á milli þeirra eru.   

Mars

Við vorum í Danmörku fram í miðjan mars.  Jón Ingvi kom út til okkar síðustu vikuna og eyddi mestum tíma hjá Camillu vinkonu sinni.  

Jón Ingvi hafði saknað Danmerkur þessa mánuði á Íslandi og langað aftur "heim" en komst að því þarna að hann átti ekki lengur heima í Danmörku, hann náði að sakna Íslands og skólans og hlakkaði til að koma heim aftur.  Þessi vika breytti miklu og gerði honum gott.  Þó hann langi enn til Danmerkur en núna er það til að heimsækja Camillu, ekki til að flytja...eða reyndar myndi hann vilja flytja aftur...var að spyrja hann...!!

Apríl

Apríl fór að mestu í ritgerðarsmíð, sem gekk fremur hægt lengi framan að.  Miklar diskutioner...minnaÍ sumarbústað á sumardaginn fyrsta um skrif.  

Svo komu páskarnir...og þá tókst mér, á 2. í páskum, að komast aftur í sykurfráhald og er enn þar.  Hafði legið í sykri LENGI og leið illa á líkama og sál...

Á sumardaginn fyrsta keyrðum við austur í Úthlíð, þar sem tengdamútta var í bústað.  Ólöf Ósk fór með henni austur daginn áður og þegar við mættum var hádegismaturinn tilbúinn.  Mikið borðað...og mikið huggulegur dagur.  Í YNDISLEGU veðri.  Við keyrðum Þingvallaleiðina austur og vorum gersamlega orðlaus yfir fegurð Íslands!  Váááá!!!  

Maí

Maí var viðburðaríkur hjá okkur.  byrjað á húsinu!

14. maí var byrjað að grafa fyrir húsinu okkar!!!   Mikil spenna var búin að vera kringum þetta verkefni, og ríkir vissulega enn.  Einar sýnir enn og aftur hvað hann kann, og hvað hann er fljótur að læra, en hann á að langmestu leiti heiðurinn af húsinu okkar! 

ég og AnnemarieUm miðjan maí fengum við líka heimsókn, en þá kom Annemarie til okkar í viku.  Annemarie og ég skrifðum saman lokaverkefnið okkar.  Og var þessi vika notuð í það verkefni...með viðkomu á Þingvöllum og Geysi og svo í Bláa Lóninu á leiðinni út á flugvöll! Dave, ég, Polly og Einar

Heimsóknum var ekki lokið því við fengum líka yndislega vini í heimsókn í lok maí, Dave og Polly.  Þeim kynntumst við í Danmörku vorið 2004, en þá voru þau þar að tala á ráðstefnu sem við sóttum.  Þau voru í sömu erindagerðum hér, og fengum við þau heim í mat.  Yndislegt fólk þarna á ferð. 

Júní

Í byrjun júní var komið að því að skila lokaverkefninu.  Það var góð æfing í vanmætti...því ég gat ekki sjálf skilað verkefninu en varð að stóla á Annemarie í því efni.  Það kom svo í ljós að það var gott ég vissi ekki fyrr en eftir á hvað gekk á í Danmörku...  Þegar Annemarie ætlaði að fara að prenta út síðustu síðurnar klikkaði allt sem klikkað gat.  Prentarinn vildi ekki...svo tætti hann pappírinn...blekið kláraðist og til að bæta gráu ofan á svart...þegar hún loks komst af stað var allsstaðar vegavinna...eins og gjarnan í Danmörku á vorin, sumrin og haustin...  En hún hringdi í skólann og það var ok að hún kæmi aðeins of seint...bara ef hún kæmi í heilu lagi!!  Úff, gott ég vissi þetta ekki fyrr en eftir á!!! LoLInga og Raggý

Næstu vikur fóru í undirbúning fyrir vörnina... Og ekki má gleyma brúðkaupi Ragnhildar frænku og Ingu, 16. júní.  Yndislegur dagur sem við erum þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í.  Fallegar konur sem þar játuðust hvor annari, þær ljómuðu "om kamp med solen".

Lone, ég, Annemarie og Anne Sophie á útskriftardaginnSvo kom að því að við fórum til Danmerkur, hele familien!  Heimsóttum vini og áttum góðar stundir.  

Og stóri dagurinn!!  Útskriftin!!!  Ég orðin hjúkka!!  Hefði sjálf aldrei trúað því...og geri stundum ekki enn...!! 

Heim fórum við 29. júní.

Júlí

Og 2. júlí byrjaði alvara lífsins og ég byrjaði að vinna!!!  Skíthrædd og fannst ég ekkert kunna...dauðskelkuð þegar einhver kom og spurði MIG um eitthvað...ég var vön að vera nemi og vera sú sem spurði...

En júlí var líka viðburðaríkur.  María sys. og fj. komu við á leiðinni heim frá úgglöndum.  Við fengum gesti frá Danmörku, Sindri, Jóna og börn komu. Og svo komu Hjálmar, Janne og börn líka.  Algerlega frábært að hitta þau öll.

Einar fór áleiðis á Hvannadalshnjúk, en þeir komust að Hnjúknum en urðu þá að snúa við vegna Ingvar í steypunni veðurs og lélegs færis.  

Platan var steypt 17. júlí! 

Og sama dag fórum við í hestaferð með tengdó og Valtý (bróðir Einars) og fjölskyldu.  Jólagjöfin frá tengdó.  Frábær dagur og vorum við; ég, Ólöf Ósk og Sigga Bára (tengdó) farnar að leggja á ráðin um hrossakaup...  Það væri æði, en kostar víst of mikið bæði Báran okkarfjárhagslega og tímalega séð til að það sé raunverulegt eins og málin standa í dag... En hver veit?!!!

Júlímánuði lauk með að Bára, stóra stelpan okkar, varð 16 ára!!! Jón Ingvi 7 ára!

Ágúst

1. ágúst var annað afmæli hjá okkur.  Jón Ingvi varð 7 ára. 

Ekki nóg með það heldur fengum við lítinn frænda, en Lilja systir eignaðist enn einn drenginn, sem fékk nafnið Ýmir.

ÝmirVið ferðuðumst líka innanlands í sumar, en við lögðum land undir fót...eða við keyrðum austur á Norðfjörð.  Með viðkomu í bústaðnum hjá Jónu í Eyjafirðinum.  Svo eyddum við Verslunarmannahelginni á Neistaflugi og í faðmi stórfjölskyldunnar á Ormsstöðum.  Alveg yndisleg helgi í alla staði þar sem við hittum marga.  Jóni Ingva blöskraði á tímabili og spurði mig hvort ég þekkti Jóhannes 4ra áravirkilega ALLA þarna!!! 

Jóhannes, litli molinn okkar sem stækar óðum, átti svo afmæli 16. ágúst og varð 4ra ára!!! 

September

Í september ber hæst þegar við fórum norður til Akureyrar, íÝmir skírður dagsferð, til að vera með fjölskyldunni þegar Ýmir var skírður.   Áttum þar yndislegan dag í faðmi fjölskyldunnar. 

ReisugilliHinn stórviðburður septembermánaðar var án efa REISUGILLIÐ.  Reyndar varð ekkert úr neinu gilli...en það var flaggað og við hjónakornin fögnuðum saman!!! 

Það var stór áfangi sem náðist þar.

Október

Í október gerðust ekki neinir stórir hlutir.  Reyndar skelltum við okkur í helgarferð til Reykjavíkur, dvöldum á hóteli og alles!  Mikið notaleg helgi hjá okkur og börnin í góðu yfirlæti hérna heima, með mammaömmu sína hjá sér (tengdóið mitt).

Í lok mánaðarins kom elsku mamma mín og var hjá okkur yfir helgi.heimasætan  Sömu helgi héldum við upp á 12 ára afmæli heimasætunnar!! 

Hreint ótrúlegt að stelpuskottið sé 12 ára!!!

Nóvember

Í nóvember var lítið að gerast...þannig...aldrei svo sem lognmolla kringum okkur...  En samt.  Lífið gekk sinn vanagang, vinna, húsbygging, börn og svo huggó stundir í tíma og ótíma.

Desember

Við kláruðum að búa til jólagjafir handa fjölskyldunni.  Allir afa og ömmur fengu dagatal, sem höfðu verið í vinnslu frá því í febrúar, enda margir afar og margar ömmur hjá okkur.  

Ég prjónaði og pjónaði síðustu mánuði fyrir jól...og náði að klára það sem ég ætlaði mér.  Fengu börnin ýmist sokkar, vettlinga eða grifflur, og reyndar einn fékk buxur...grænar íþróttaálfsbuxur eins og ég saumaði á Jóhannes.  

Þá er þeim leyndarmálum uppljóstrað ;)

Við bökuðum slatta og mikið af því er uppetið...  

Jólin komu og voru hátíðleg.  Cille kom á 2. í jólum og er hér enn.  Verður í tvær nætur í viðbót en þá flýgur hún aftur til Danmerkur.

---

Þetta er árið okkar í stórum dráttum...mörg atriði sem týnast í svona upptalningu.  En þau eru öll, samt sem áður, vel geymd í minningunni og eru tekin fram á ólíklegustu stundum.

Elskurnar mínar allar, mig langar að þakka ykkur samfylgdina á árinu sem er að líða.  Bæði hér á blogginu og utan þess.  

Megi Gamlárskvöldið vera gott hjá ykkur öllum.  

Kærleikur til ykkar allra og með tilhlökkun til að eiga með ykkur enn eitt árið.    


Afmælisbarn...

...gærdagsins sko.  Ég mundi eftir afmælinu en hreinlega gleymdi að blogga um það...ekki í fyrsta sinnArnar Daði sem ég klikka...enda mannleg að eðlisfari Wink

Afmælisbarn gærdagsins er systursonur minn, spékoppurinn sæti, hann Arnar Daði.  Molinn sá er 4ra ára!!  4ra ára flottur strákur.  

Því miður viðraði ekki til ferðalaga í gær, svo við fórum ekki í afmælið til hans á Selfoss.  En vonandi sjáum við samt molann fljótlega.

Elsku Arnar Daði.  Ég vona að þú hafir átt alveg svakalega skemmtilegan dag í gær og fengið fullt af skemmtilegum pökkum.  Megi Guð og gæfan fyglja þér um ókomna tíð, elsku frændi. 

(Myndinni er stolið...vona að syssa fyrirgefi mérWink)


Lognið...

Ég er alin upp á Norðfirði, "þar sem lognið hlær svo dátt".  Hef reyndar aldrei alveg skilið þessa setningu...

En það var heldur alls ekki það sem ég ætlaði mér að segja.  Mig langaði meira að skrifa um lognið sem fer hér hamförum í nótt.  Komst nefninlega að því fljótlega eftir að ég flutti á Skagann, fyrir rúmu ári...eða bráðum einu og hálfu ári síðan, að hér er ALDREI rok!  Öfugt við það sem ég hafði alltaf haldið og heyrt.  En nei, mér var fjótlega gert grein fyrir því að hér er aldrei rok...heldur fer lognið bara misjafnlega hratt yfir.

Og lognið fer sannarlega hratt yfir í kvöld.  Endurvinnslutunnan er komin inn í gang...var farin að skrölta við útidyrnar seinnipartinn, svo ég kippti henni inn.  Tek fram að ég kippi ekki hinum (skítugu ruslatunnunum) inn í gang!!!  Það væri ógeð...fullt af allskonar pöddum...svona "baktussum" sem mér er meinilla við!!

--

Þeir sem lásu athugasemdir frá systrum mínum hér að neðan sáu að rafmagnið fór hjá þeim í dag.  Í gamla daga, þegar ég var ung, þá fór rafmagnið oft.  Stundum var sagt að það eina sem ræki RARIK-karlana ("amalausutallana", eins og Aðalsteinn bró kallaði þá (= "rafmagnslausukallana")) af stað til að koma rafmagninu á sveita, var að vatnsbrunnur bæjarbúa var tengdur við rafmagn sveitarinnar...sel það ekki dýrar en ég keypti það.

En amk þá fór rafmagnið oft í vetrarveðrunum...eða amk er það þannig í minningunni.  Jón Þór stóð þá í streði með að mjólka og mamma eldaði á gasprímus.  Í eldhúsinu héngu 2 gamaldags olíulampar  og á þeim var kveikt þegar rafmagnið fór.  Og svo las mamma fyrir okkur upp úr Íslenskum Þjóðsögum.  Jiii, þetta var svo huggó.

---

Þetta var bara smá nostalgíukast hjá mér.  

Er búin að hafa það notó í kvöld.  Hef legið uppi í rúmi, við hliðina á mínum heittelskaða og borðað osta og prjónað og horft á alveg hreint ágætis bíómynd.  Mjög notalegt næstsíðasta kvöld ársins.  Síðasta kvöld ársins fer ekki í notalegheit með familíunni, amk ekki í þetta skiptið.  

Held ég skríði upp í aftur og klári að prjóna það sem ég er með á prjónunum núna..."skauta" handa Jóhannesi...eins og hann kallar það.  Mynd kannski á morgun ;) á eftir að þæfa þá til að þeir passi á drenginn.

Until next time; Megi mátturinn vera með ykkur öllum! 


Söknuður

Stundum finnst mér mjög erfitt að vera 700 km burtu frá æskustöðvunum, burtu frá þeim sem ég ólst upp með og á svo margar góðar minningar um og með.

Átti bara töluvert erfitt þegar ég talaði við mömmu áðan.  Sakna hennar og Jóns Þórs mikið svo og systkinanna minna sem búa fyrir austan mikið.  

Áður fyrr voru engin jól nema vera með þeim.  Í dag eigum við yndisleg jól, okkar eigin jól heima hjá okkur.  

En svo koma dagarnir milli jóla og nýárs...  Mikið sakna ég ykkar, elskurnar mínar.  Fékk svo stóran kökk í hálsinn áðan þegar ég heyrði í þér, mamma, að ég gat varla talað.  Tárin renna þegar ég skrifa þetta.  

Það er sárt að sakna.

Hlakka til að sjá ykkur um páskana!!!  

Vona að þið eigið yndislegan dag saman, í dag.  Er sannarlega hjá ykkur í huganum.  Elska ykkur öll svo undur mikið Heart


Hæ aftur!

Fórum í mat til tengdamúttu áðan.  Ég og Jóhannes fórum að hitta Einar á bílastæðinu við göngin þegar hann var búinn að vinna.  Þaðan lá leiðin í Hafnarfjörðinn, með smá viðkomu í Smáralindinni þar sem við tókum stelpuskottin upp í. 

Svo var matur og huggulegheit hjá tengdó.  

Nú erum við hjónakornin þreytt...og ég ætla að koma drengjunum í bælið svo ég geti lagst upp í rúm...!

Megi Guð og englarnir vaka yfir ykkur öllum í nótt Heart


Í dag...

...er ég búin að afreka þetta:

- sofa til 10.31...ég sko rumskaði þegar minn heittelskaði kyssti mig bless þegar hann fór í vinnu.  SvoMaría og Hebbi með gullklumpana sína; Ævar Stein og Önnu Móberg svaf ég í einum dúr, án þess að rumska þangað til drengirnir komu út úr herberginu sínu...þá voru þeir búnir að horfa á "Julemorgenhår" (barnatímann á DR1) síðan kl. 9.

- Senda brúðkaupsafmælisparinu sms, sem eru María systir og Hebbi. 

- koma börnunum í strætó...Jón Ingvi var yfir sig spenntur yfir að vera að fara í strætó og í bíó.  Frábært framtak hjá tengdamúttunni minni yndislegu.

- standa á kaffihúsinu í tæpan klukkutíma, drekka tvöfaldan latte og spjalla við Maríu (kaffihúsameistara Skagamanna...og takið eftir ég segi EKKI "... okkar Skagamanna" því ég er ekki og verð ALDREI Skagamaður!!! Ég ER og VERÐ NORÐFIRÐINGUR!!!).

-  hringja í afmælisbarn dagsins og bjóða henni í afmæliskaffibolla, þar sem hún á leið á Erla sys. Skagann...og á von á henni á hverri stundu...kaffið klárt í könnunni...eða sko bíður bara eftir að kveikt verði á könnunni...mjólkin klár til hitunar á eldavélinni... Og já, það er sem sagt Erla systir sem er afmælisbarn dagsins!  

Til hamingju með afmælið, elsku besta sys.

---

Nú eru liðnir 2 tímar eða svo síðan þetta að ofan var skrifað...Erla kom akkúrat þegar ég skrifaði afmæliskveðjuna til hennar.

Svo nú segi ég líka; Elsku Erla, takk fyrir komuna og spjallið.  Það var yndislegt að eiga stund með þér.  Sjáumst vonandi sem fyrst aftur.

---

Svona hefur dagurinn verið hjá mér fram til þessa.  Svo á pottþétt eftir að gerast eitthvað skemmtilegt hjá okkur í dag.  

Ætla að halda áfram að njóta dagsins með Jóhannesi mömmumola.  Svo bætast fleiri molar í hópinn á eftir.

Njótið lífsins - það ætla ég amk að gera.  Ást... 


Skautaferð

Var að vinna í gærkveldi.  Nennti ekki að blogga neitt...

ég, Jóhannes og Jón IngviÍ dag fór ég með krakkana á skautasvellið í Egilshöll.  Við skemmtum okkur alveg konunglega.  Vorum Ólöf Ósk og Cille glorsoltin eftir tæplega tveggja tíma skaut og ég fékk pabba til að bjóða okkur í bakarísmat heim til hans.  

Góður dagur hjá okkur.  

Svo var Disneyshow málið þegar heim kom, snakk og kók með.  Sæla hjá drengjunum.  Stelpuskottin fóru inn í herbergi að horfa á Friends.  Svo ég hef setið ein frammi og hlaðið myndum inn á síðu barnanna og smá sýnishorni á Flickrið mitt líka. 

En núna held ég að ég leggist fyrir framan imbann með prjónana mína og einhverja óhollustu...Bugles...og góni á einhverja vitleysu.  Er strax komin með jólagjafahugmyndir fyirr næstu jól Wink

...samt er planið ennþá að prjóna peysu á sjálfa mig núna eftir jólin.  Á bara eftir að panta mér lopann!!!

Ást... 


2. í jólum og fleira!

Helló darlings!

Í morgun var ég að vinna.  Krakkarnir fóru í jólaboð með pabba kl. 14, en ég náði aldrei þangað því það var búið kl. 16...svo ég fór bara til pabba og sótti börnin þangað. Pabbi var svo að fara í matarboð. 

Verð að segja ykkur líka hvað ég er vel gift!  Þessi elska kom í dag og náði í bílinn í vinnuna til mín og fór og setti á hann bensín og fyllti á rúðupissið, bara svo ég þyrfti ekki að gera þetta eftir vinnu!  Er hann bara ekki yndislegur?!!! InLove

Þegar við fórum frá pabba fórum við og keyptum okkur að eta og fórum svo heim til minnar elskulegu tengdamúttu.  Hún var í matarboði en hafði gert ráðstafanir svo við komumst inn.  

Ég lagði mig svo aðeins...til að geta verið almennilega vakandi í akstri kvöldsins!

Og sem betur fer!!!  Við fórum sko út á Keflavíkurflugvöll að sækja Cille, vinkonu Ólafar Óskar, sem var að koma frá Dk og ætlar að vera hjá okkur í viku.  Á leiðinni út á völl vorum við ekki langt frá því að lenda í árekstri því eitthver FÍFL (afsakið orðbragðið) var að flýta sér aðeins og mikið...var að taka fram úr þar sem Reykjanesbrautin er einföld og kom á syngjandi siglingu á móti okkur á OKKAR veghelmingi!!!  Enn og aftur þakka ég Guði fyrir að ég keyri á löglegum hraða og eftir aðstæðum því annars efast ég um að ég væri að blogga núna!!  

Grínlaust, ég er eiginlega hætt að segja við Einar "keyrðu varlega" þegar hann fer út, ég er farin að segja við hann; "passaðu þig á hinum bílunum".  Því ég veit hann keyrir varlega og ég veit líka að það er fullt af fólki sem gerir það EKKI!!!

Arrrrrrrrrrrrrgggg!

Nóg um það.

Cille er sem sagt komin og þær vinkonur hafa ENGU gleymt!  Þær byrjuðu strax að blaðra og flissa, eins og þeim einum er lagið.  Yndislegt!  Við mæðgur táruðumst báðar þegar Cille kom út!!  Og Ólöf Ósk sagði; "Ég er greinilega dóttir mömmu minnar...svona "tudefjes""!!!

En nú held ég að ég smelli mér í bælið, ætla að lokka minn heittelskaða í bælið líka, langar að liggja undir sænginni okkar góðu og spjalla við hann.  Við höfum eiginlega ekkert hist síðan kl 14.30 í gær og það er sko nóg til að ég fái fráhvarfseinkenni!! LoL

Gúdd næt, mæ darlings! 


Jóladagur!

Já, gleðilegan jóladag, alles!!

Við byrjuðum jóladag eins og við erum vön; sváfum lengi og fengum okkur svo kalda afganga í matinn.  Svona morgun/hádegismat kl 12!  Strákunum þótti þetta frekar skrítið og kusu frekar morgunkorn og ristað brauð!!  En Ólöf Ósk er orðin vön svo hún naut þess í botn að fá jólamat í matinn aftur!

Í dag er pabbi svo væntanlegur og ætlum við að gæða okkur á taðreyktu kjöti af veturgömlu í kvella!  Slafr...

---jólapakkar

Jólapakkaflóðið...

Það var mikil spenna í gangi, sérstaklega hjá hinum rólega og yfirvegaða Jóni Ingva.  Ég held að hann hefði bara stungið sér á kaf í hrúguna hefði hann fengið að ráða!!!  

Jóhannes fékk m.a. blýant og stílabók og hann hefði í sjálfu sér ekki þurft meira!  Það var algerlega jólagjöfin í ár hjá honum.  Hann stóð og teiknaði og skrifaði og hafði varla tíma til að opna fleiri gjafir.  Hann reyndar varð líka gífurlega glaður þegar hann opnaði pakka sem innihélt kuldagalla...íþróttaálfs...!  Sagði með mikla gleði í röddinni; "Þetta vantaði mig einmitt"!  (Hann átti ekki heilgalla fyrir, bara úlpu og snjóbuxur!)

Jón Ingvi var mjög ánægður með allt sem hann fékk, mjúkt sem hart.  Ekkert eitt sem sló í gegn hjá honum, hann var bara alsæll.  Og ánægður þegar pakkarnir voru búnir og hann gat farið að leika sér.  

Ólöf Ósk var bara alsæl.  Fékk það sem hún óskaði sér; föt, náttföt og bækur!! Hún er orðin mjög róleg yfir jólunum, þó hún hlakki til og sé glöð að þá er ekki þessi læti og æsingur lengur.  Bara rólegheit...og nettur pirringur yfir æsingnum í Jóni Ingva...

Ég er sjálf mjög ánægð og fékk frábærar gjafir.  M.a. Tempur-inniskó frá mínum heittelskaða!  Svo nú verður mér sko ekki kalt á tánum!!!  Svo fékk ég beljur!  Við fengum líka beljuskál, geðveikt flotta!  Og svo fengum við sjúklega flottar myndir, sem stjúpi minn tók og lét stækka.  Eina af Ormsstöðum og eina af firðinum fagra, eða 740 Paradís eins og María sys. kallar hann!!!  Þær verða geymdar vel og svo hengdar upp á góðan stað í nýja húsinu okkar!  Svo fengum við gjafakort í Villeroy og Boch, og getum farið og verslað inn í stellið okkar!  Gaman, gaman!

Frá tengdamömmu fengum við svipaða gjöf og síðasta ár...eða hestaferð!!!  Síðast fórum við í ferð hjá Eldhestum og núna förum við í Hraunferð með Íshestum!  Sú ferð verður væntanlega farin í sumar, en s.l. sumar fórum við með tengdó og svo Valtý (bróðir Einars) og fjölskyldu.  

Jamm.  Svona eru jólin búin að vera hjá okkur so far!  

Núna situr Jón Ingvi og dúllar sér inni í herbergi og Jóhannes er búinn að sitja inni í eldhúsi og leira og syngja jólalög; "Nú nýfæddur Jesú í jötunni lá...".  Frekar krúttlegt!  Skvísan situr inni og les...held ég...!   

En núna ætla ég að fara að spila við Jóhannes...og kannski vilja fleiri vera með...spilið sem hann fékk í möndlugjöf!

Njótið dagsins og hvers annars Heart


Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband