Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

I LOVE MY LIFE!

Message
Sumir eru farnir að hlæja að mér og það er bara allt í góðu. Gott að geta skemmt fólki án fyrirhafnar LoL Ég bara er svo komin með upp í kok á krepputali og allri þjóðfélagsumræðu að ég er farin að beita besta verkfærinu sem ég hef í stöðunni: AÐ FJARLÆGJA SJÁLFA MIG!! Svo þegar talið berst að kreppu/þjóðfélagsmálum þá stend ég upp og labba í burtu.  
Jú, þetta er mál sem liggur á fólki, en ég bara vel að taka ekki þátt...amk. ekki alltaf. 
Þetta var svo það sem ég hef að segja um kreppumálin að sinniWink
mor og datter Hér heima er stendur yfir svo kölluð gelgjugleði...eða sko, Ólöf Ósk er með 3 vinkonur í heimsókn, eða sko bauð þeim í afmæli. Náttfataþeima. Subway í matinn, svo fullt af snakki og nammi og MAMMA MIA!!! Og ó mæ Goooood! Þvílíkur söööööngur sem hér glymur um allt!! En þær eru að skemmta sér þvílíkt vel...amk miðað við hljóðin LoL Algjörar krúttur.
Þær fengu nett gelgjukast hérna áðan. Ég sagði við Ólöfu Ósk að hún gæti kannski sent Jóhannes upp í til mín ef ég sofnaði (er töluvert þreytt eftir að vakna kl 6.00 þrjá morgna í röð...Sleeping) Þá gellur í henni; "Ég vil sofa hjá þér!" og ég svaraði; "Nei, það er ekki hægt, pabbi þinn ætlar að sofa hjá mér"!! Og allt í einu lágu þær meira og minna um gólfin í hláturskasti...hálfvandræðalegar og rauðar í framan... Ég spurði dóttir mína hvort þær hefðu fengið eitthvað "dónalegt" út úr þessu og hún flissaði vandræðalega og sagði; "jááá...."Grin Hún er sjálfsagt komin á þann aldur að það er hræðilegt til þess að vita að foreldrar hennar eigi ástarlíf...úff...hvað haldiði að myndi gerast ef ég yrði ólétt...arg...
turtildúfur Jamm, veit ekki hverju fleiru ég get "logið" að ykkur að sinni.
Verð samt að segja að lífið er ljúft. Ég á yndislega fjölskyldu og vini, ríkari en ég hélt að væri mögulegt.
Ég er gift besta vini mínum, ég elska hann og hann elskar mig. Er hægt að vera lánsamari??
Við eigum 4 heilbrigð og yndisleg börn. Það eru sannarlega ekki allir svo lánsamir.
Ég er í draumavinnunni minni og það er sko ekki sjálfgefið.  Jamm, ég get sko ekki kvartað.
geðveika hjúkkan Molinn:
"Ég voga mér að halda því fram að maður græðir meira á eigin mistökum en að gera það sem aðrir telja rétt."
- W. Somerset Maugham (úr Human Bondage)

Þreytt kona

Elskurnar mínar, mig langar fyrst að þakka ykkur fyrir yndislegar kveðjur. Sumar kveðjur hafa borist í tölvupósti, aðrar á facebúkkinu og enn aðrar í tölvupósti eða símleiðis. Skvísan alsæl með daginn sinn og þá er einmitt tilgangnum náð.

Í dag var vinnudagur, ég ræsti ungana milli sex og hálf sjö (ókristilegur tími á Íslandi...alvanalegur fótaferðatími í Danmörku...) og Jóhannes var ægilega þreyttur.  Það er gleymt núna, og þeir feðgar eru uppi að horfa á Man. Utd. spila við einhverja...og Jóhannes var einmitt í þessum skrifuðu orðum að segja mér að nú væri 1-0 fyrir M.utd. og það hafi verið Ronaldo sem skoraði á 14. mínútu...! Jamm, ég verð að segja að ég og þeir tölum ekki alveg sama tungumálið þegar kemur að þessu...og ekki orð um það meir!

Á morgun annar vinnudagur, og svo eru miklir gleðidagar framundan. Reynar eru allir dagar gleðidagar hér á bæInLove svo það er svo sem ekkert nýtt. Nú er búið að sparsla og pússa allt nema horn og glugga og við reiknum með að grunna þetta á laugardag eða sunnudag. Svo er komið að því að velja liti á herbergin! Mjööööög spennó!!!  Reikna þó með að við verðum með veggina í sama lit og það sem komið er, sem heitir perluhvítt (ef ég man rétt...annars verður Einar að leiðrétta mig...) en Ólöf Ósk ætlar sér út í grænu línuna á sitt herbergi.
Þegar búið að er mála þá er bara eftir að klára rafmagnið,setja í loftin og svo eigum við reyndar eftir að fjármagna hurðirnar...það er ekki hægt að búa á byggingasvæði með engar hurðir...en koma tímar, koma ráð Wink

Svo fékk ég hugmynd áðan...en hún féll í vægast sagt grýttan jarðveg... Ég var sko að fá tölvupóst frá Sollu / Himneskri hollustu...og hún er að auglýsa grænmetisnámskeiðin sín. Að læra að elda úr grænmeti. Svo mér datt í hug að spyrja Einar hvort við ættum ekki að gerast grænmetisætur. Þið sem þekkið hann vitið að þetta var fááááránleg hugdetta hjá mérLoL Enda var þetta nú meira í gríni en alvöru. Þó svo að ég held ég VERÐI að skera niður í að minnsta kosti fitu úr dýraríkinu...svona fyrir magann minn...koma tímar... 

Jæja, ætla að hætta, er að spá í að slaka bara á með bók jafnvel...ef ég get...ég held stundum að ég sé með athyglisbrest...Sideways

Molinn:

"Kímnigáfan er stórkostleg gjöf sem felur í sér lausn. Um leið og hún lætur á sér kræla hverfur geðvonskan og gremjan en kætin tekur við."

-Mark Twain


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Yndislega Óskin okkar, Ólöf Ósk, er 13 ára í dag, 28. október!!!

Mér finnst auðvitað algerlega óskiljanlegt að hún sé orðin 13 ára (eða verður það sko kl. 20.03).


En ég get með sanni sagt að hér fer stúlka sem ég er sannarlega yfir mig stolt af, ég er stolt að geta sagt að Ólöf Ósk er dóttir mín.

Við mæðgur erum eins ólíkar og dagur og nótt, að utan jafnt sem innan. Held svei mér að hún hafi fengið allt frá pabba sínum!! Ekki að það sé slæmt, neibb það er sko gott mál.

Ólöf Ósk er skellibjalla, glaðvær, opin, jákvæð. Hún hefur alltaf tekið lífinu opnum örmum. Þegar hún hefur verið sett í nýjar aðstæður, í nýtt umhverfi, þá hefur hún tekið því tækifæri brosandi.

Ólöf Ósk brosir framan í lífið og lífið brosir við henni.

Ég er þakklát fyrir að hafa fengið það hlutverk að vera mamma þín, elsku stúlkan mín.

Ég elska þig. Þín mamma.


Jæja...

...þá er helgin að verða búin og vetrarfrí barnanna líka. Þau voru svo heppin að eiga alla síðustu viku í frí, sem var tilkomið af því að kennararnir ætluðu til USA á eitthvert námskeið. En svo var hætt við allt saman, nema ekki við fríið :) Þau bara alsæl, smá Danmerkurfílingur í gangi.

Afmælið gekk vel en ég get sagt ykkur að það ég var með alltof mikið af kökum...bakaði marenstertu, kaniltertu, brúna með hvítu, nammitertu og svo þessa sjúklega góðu sykurlausu (epla og valhnetubökuna góðu) og svo heita rétti...einn heitfengan og svo skinku-aspas-osta-rúllubrauðsgúmmulaði.

Þannig að...þetta var, eins og Erla sys. tók til orða..., á við meðalfermingarveislu...amk kræsingarnar. Ég hef það mér til varnar að það komu ekki allir sem við áttum von á...ekki allir að hafa fyrir því að afboða sig...

Ég fékk líka pakka, þar sem dóttir okkar er svo elskuleg að vilja deila veislunni sinni með mér. Svo ég er búin að fá nokkrar gjafir þó enn séu 13 dagar í afmælið mitt... Ég fékk bókina; Brauðréttir Hagkaupa og kleinupoka, ég fékk legghlífar, gráar með "demöntum", ég fékk platta fyrir kerti og ég fékk blómvönd. Held ég sé að muna eftir öllu.

Alltaf gaman að eiga afmæli þó ég eigi erfitt með að þyggja gjafir...fer alltaf hjá mér þegar fólk er að eyða í mig... Það á betur við mig að gefa öðrum en að þiggja... 

Í morgun fórum við; ég og strákarnir, í sunnudagaskólann. Þar var verið að skíra litla stúlku. Á eftir var farið yfir í safnaðarheimlið þar sem var föndurstund. Við bjuggum til þessi fínu bókamerki, með perlum og alles :) Notaleg stund sem við áttum.

Svo er það víst þannig að fótbolti á hug drengjanna okkar...svo LOKSINS (í Einars huga er þetta LOKSINS...) fékk Einar það í gegn að keypt yrði áskrift að fótboltarás. Hann var lengi vel í miklum minnihluta á heimlinu...en nú eru þeir víst í meirihluta...Svo nú fara sunnudagarnir í fótboltagláp...amk hjá strákunum. Einar var að sparsla og stóð sig vel, eins og alltaf. Hef ég kannski sagt ykkur það áður? Maðurinn minn er svo mikill dugnaðarforkur! Alger hetja í mínum augum InLove

Jæja, ég ætla að skutla þvottinum upp á snúru og setjast svo á góðan stað með prjónana mína...

Molinn:

"Betra er að kveikja ljós, hversu lítið sem það er, en að bölva myrkrinu."

- Konfútse 

Túttilú...


Svona leit ég út...

...þegar ég var í verknámi á 32a fyrir tveimur árum Smile

Sigrún hjúkkunemi á Lsp.Þetta var myndin sem var á einkenniskortinu mínu. Nú er ný mynd...set hana inn um leið og búið er að skipta um mynd á Landspítalavefnum Wink

Allt gott að frétta af okkur. Ég var að vinna í gær, tvöfalda vakt og svo morgunvakt í morgun, svo ég gisti hjá tengdó. Alveg ljómandi sérstaklega þar sem það blés vel... Reyndar sé ég að það var ekki slæm átt Kjalarneslega séð...ekki einu sinni 30 í hviðunum. EN, það var gott að hitta tengdó, hún er algert yndi. 

Svo er bara baka og gera heita rétti í kvella og í fyrró...svo má afmælið hefjast Tounge

Jæja, best að skella þvottinum á snúruna og hefjast svo handa við baksturinn...

Molinn:

"Tíska er ljótleiki sem er svo óbærilegur að við verðum að breyta honum á sex mánaða fresti." 

- Oscar Wilde


Stellu-brauð

Svo ég týni henni ekki þá ætla ég að smella hérna inn uppskrift af brauði, sem ég fékk hjá Stellu samstarfskonu minni.

800 gr hveiti (spelt)
50 gr sólblómafræ
4 tsk lyftiduft (vítasteins)
1 tsk natron
1 msk sykur
51/2 dl AB mjólk
11/2 dl sjóðandi heitt vatn
1 tsk salt

Hræra í höndunum og eins lítið og hægt er.

Baka við 175°C í 1 klst.

Hægt er að setja ýmislegt sem hugurinn girnist út í brauðið, t.d. döðlur, rúsínur, sesamfræ eða hvað sem manni dettur í hug.

Hlakka til að baka þetta. Slafr...


É´r að baka...

Jamm, afmæli prinsessunnar á bauninni á næstu grösum, og hún VERÐUR að fá kaniltertu! Kaniltertan á að fara í frysti og takast þaðan sólarhring fyrir neyslu, svo það er ekki seinna vænna...afmælishátíðin um helgina.

Ólöf Ósk verður 13 ára 28. október!

mæðgur saman á 1. jólaballi prinsessunnarHér erum við mæðgur á 1. jólaballinu hennar, þarna er hún þá 2ja mánaða.

Jamm, ótrúlegt en satt. Mér finnst það næstum eins og í gær þegar ég var með tilheyrandi verki í 44 klukkustundir áður en undurfögur snót leit ljósið í fyrsta sinn. En nei, það var ekki í gær...! Enda hefur alltof margt gerst til að það geti passað...mér finnst bara svoooo stutt síðan!

Annars er lítið að frétta. Einar er búinn að vera á fullu "hinumegin" eða *úti í byggingu*, eins og við köllum óbyggða hlutann af húsinu. Það eru komnir upp þeir veggir sem eiga að vera komnir upp fyrir jól. Nú er eftir að klára að sparsla 1. umferð í þvottahúsinu og svo er hægt að pússa. Mjög spennandi tímar framundan! Ég hlakka svooooo mikið til að fá þvottahúsið MITT í gagnið. Skápurinn góði verður HUGE! Sem er líka gott, enda 5 manna fjölskylda sem ætlar að deila honum.

Jamm. Jæja, best að þeyta rjómann fyrir kaniltertuna.

Túttilú...

„Ef við lítum á tilveruna og náungann með kærleika þá minnkar hið vonda af sjálfu sér; því ef maður fyllir vitundina eð ást eignast hið góða í veröldinni enn einn fulltrúa.“

- Olle Wedholm


Hæ hó

Jæja, elskurnar mínar. Hvað segið þið þá?

Ég segi allt svona líka svakalega gott.  Vitiði, ég er svoooooo ánægð í vinnunni minni, finnst bara ómögulegt þegar ég er í margra daga fríi...langar bara að vinna, vinna, vinna. Jamm. Svona á þetta að vera. 

En ég er nú samt alveg að njóta daganna sem ég er ekki í vinnunni.  Það er líka sæla heima. Og nóg að gera. Við erum í fúll svíng að gera og græja, svo við getum tekið tvö herbergi plús þvottahúsið í gagn fyrir jól. Einar gerir veggina, ég sparsla, svo ætlar hann að pússa, og já, svo er meiri sparslvinna, púss, málning...og vola, Ólöf Ósk og Jón Ingvi fá ný herbergi og ég fæ mitt langþráða þvottahús! Það verður draumur! 

...jamm. Er lífið bara ekki stórkostlegt? Það finnst mér.

Svo einn gullmoli svona í tilefni þess sem gengur á þessa dagana þarna úti:

Message

„Erfiðleikar eru einfaldlega tækifæri í hversdagsklæðum.“
 
– Henry J. Kaiser
 

 


Kjúklingasalat Særúnar

Hæ, vinir :) Ég fékk þetta rosalega góða kjúklingasalat í matinn hjá Særúnu vinkonu minni í gær. Algert nammi namm. Hvet ykkur til að prófa:

 

½ bolli olía

¼ bolli balsamki edik

2 msk sykur (minna)

2 msk soyasósa

 

Soðið saman í 1 mínútu, kælt og hrært í á meðan kólnar.  Sósan er líka góð yfir kúskús.

 

1 pk núðlur – instant súpunúðlur (henda kryddi)

1 pk möndluflögur eða heslihnetuflögur

Sesamfræ

 

Ristað saman á pönnu í olíu.  Tekur lengri tíma að brúna núðlurnar, síðan hneturnar, en semsamfræin örstutt.  Blandað saman við vökvann og kælt.

 

4 kjúklingabringur

1 flaska sweet hot chilisósa

 

 

Bringur skornar í strimla og snöggsteiktar í olíu, sósan sett yfir og látið malla smástund.

 

1 poli Ruccola salat

Ísl. tómatar í sneiðum

1 mango í teningum (eða sneiðum)

1 rauðlaukur í sneiðum

 

Salat á fat og núðlublanda yfir.  Kjúklingur yfir það.  Tómatar, laugur og mango í kring.  Borðað með kúskús og snittubrauði.


Ég gat ekki annað...

...ég bara hló með rassgatinu á leiðinni í vinnuna í dag!

Ég hef það fyrir vana að keyra alltaf á löglegum hraða, þess vegna keyri ég á 70 km hraða gegnum Hvalfjarðargöngin!

Í dag var ég á 70 km hraða í göngunum þegar bíllinn fyrir aftan mig þoldi ekki við og tók framúr mér.  Ca 50 metrum lengra flashaði myndavélin á hann! Jamm, sekt fyrir þessa óþolinmæði.LoL Sorrý, en mér fannst þetta bara fyndið. Fyrr má nú liggja á...!!!


Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband