Leita í fréttum mbl.is

Alveg að koma að...

...fermingu!

Allt að verða klárt. Á morgun, meðan fermt verður, ætla ég að baka 3 franskar súkkulaðikökur og þá er þetta nú eiginlega komið.

Lilja var búin að baka þvílíkt mikið og búin að gera heitu réttina og frysta.  Snilld!  Gaman að fylgjast með dugnaðnum í syssu minni. 

Pabbi kom í dag.  Og Maríus, sonur Eysteins.  Hann fermdist á sunnudaginn og verður veisla fyrir hann á laugardaginn.  Svo veisluhöldum er ekki lokið á morgun... Ég er fegin að verða bara með eina fermingu næsta vor...

Heyrði í Einari áðan...sakna hans.  Fékk smá tilfinningakast þegar pabbi og Maríus voru komnir því Einar átti að vera með sama flugi...og hann væri því kominn...EN...húsið er sko mikilvægt og hann alveg einstaklega duglegur, finnst mér.  Þessi elska.

Darling...ef þú lest...ÉG ELSKA ÞIG!!! 

Jæja...ætla að hræra í grautarpottinum...

Lifið í lukku en ekki í krukku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Ben

Hæ hon,

Skemmtileg tilviljun, Ég ELSKA þig líka.....

Knúsaðu börnin frá mér, og biddu þau um að knúsa þig tilbaka frá mér....

Hvernig var hjá forsetanum....? 

Einar Ben, 19.3.2008 kl. 19:18

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Forsetinn var ekki heima...það verður einhvern næstu daga

SigrúnSveitó, 19.3.2008 kl. 19:32

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flórens! Ég er að íhuga að bjóða þér í fermingarveislu hjá mér - og það þó ég sé lööööngu búin að ferma allt sem fermast vill........

Þið eruð krútt

Hrönn Sigurðardóttir, 19.3.2008 kl. 20:52

4 Smámynd: SigrúnSveitó

hehe...já, ekki málið, endilega bjóða mér ;)

og takk :)

SigrúnSveitó, 19.3.2008 kl. 21:36

5 identicon

Takk fyrir hamingjuóskirnar. Ég prófaði döðlutertuuppskriftina þína á sunnudaginn. Hún sló í gegn. :)

Rebecca (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband