Færsluflokkur: Bloggar
28.5.2007 | 19:14
ó mæ god...
...yngri sonur okkar keypti sér handtösku í fyrra...og alveg eins handa bestu vinkonu sinni...
...og ekki hefur hann horft á Stubbana...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.5.2007 | 09:18
Sérann...
Litli bróðir minn, hann séra Gunnar. Þrítugur í dag, þessi "litli" kútur.
Man svo vel eftir því þegar hann var pínukríli og við þrjár stóru systurnar slógumst um að fá að halda á honum. Þá vorum við 4, 5 og 6 ára...að verða 5, 6 og 7 um haustið/veturinn.
Hann var svo sætur, algert krútt og er reyndar enn ansi sætur
Hef ekki grænan grun um hvort brósi hnýsist hérna inn...hann hefur amk. aldrei gert grein fyrir sér...(en það eru fleiri sem eru sekir um það...!!).
Hvað um það; ég sendi elsku brósa mínar allra bestu óskir í tilefni dagins.
Vona heitt og innilega að við sjáumst fljótt, og ef þú ert að lesa; Þú LOFAÐIR að koma við hjá mér næst þegar þú átt leið í bæinn!!! EKKI GLEYMA ÞVÍ!!! Svo ætlum við að kíkja á ykkur þegar við förum á flakkið okkar í sumar
Elsku Gunnar, megi Guð og gæfan fylgja þér um alla tíð, og sólin skína í hjarta þínu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.5.2007 | 23:11
*Stöndin*
Hér eru myndir af dóttir minni í dag, og bjarta veðrinu. Skvísan var á Langasandi í ca 6 tíma í dag...!! Yndislegur dagur, veðrið ægilega gott og börnin léku úti meira og minna í allan dag.
Náði að skrifa slatta, spennó að heyra á morgun frá leiðbeinandanum...
Tengdamúttan mín kíkti í kaffibolla - og ég var sko með köku handa henni og mér, ekki amalegt. Tendóan mín var að koma úr fjallgöngu, og var á leið upp í Borgarfjörð. Hún ætlaði reyndar ekkert að koma í kaffi, en stóðst ekki mátið þegar ég bauð henni í latte
Ég og Jóhannes tókum svo smá rúnt með henni upp í Seljuskóga. Einar er búinn að gera útlínur hússins með járni...þetta verður ágætlega stórt!!! Tek myndir á morgun og set inn.
Einar og strákarnir hringdu í tengdapabba í morgun. Hann er að flytja hingað á Skagann n.k. laugardag og er mikil spenna hjá strákunum að vera að fá afa í nágrennið. Þegar við svo verðum flutt í húsið verða ca 100 m. milli okkar og hans. Jóna (konan hans) kemur svo í haust, en hún ætlar að eyða sumrinu í sumarbústaðnum þeirra í Eyjafirði.
Einar er núna á tónleikum með Deep Purple í Laugardalshöllinni. Gaman hjá honum
Svo veit ég ekki hverju fleiru ég get *logið* að ykkur...svo ég held ég skelli mér bara í bað. Alveg ótrúlegt hvað hægt er að verða þreyttur í skokknum að sitja svona á rassinum heilan dag! Ég er ekki að ýkja en ég er með þreytuverki í fótunum!!!
Sendi ykkur öllum mínar bestu kveðjur og óskir um að þið sofið öll rótt og eigið sæta drauma.

Bloggar | Breytt 28.5.2007 kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.5.2007 | 12:35
10°C...
...í forsælu. Meira þarf ekki til, dóttir okkar er farin á *ströndina*!! Kom heim rétt í þessu og náði í handklæði...ég bannaði henni þó að fara í sjóinn...!!
Einar og drengirnir eru uppi í lóð að gera og græja. Á morgun kemur Ingvar og hann og Einar byrja á sökklinum. Það er margt sem þarf að vinna svona fyrirfram, undirbúningsvinna...m.a. skera 1000 járn (man ekki málin á þeim)...já, 1000 bara fyrir sökkulinn!! Gott að ég er ekki að gera þetta...húsið yrði hrunið eftir vikuna...hef ekki vit á þessu...!!
Hins vegar hef ég vit á ýmsu öðru. Fór í gær á góðan stað og hitti fullt af fólki og það var ótrúlega gefandi að fá að tala þar. Stórkostlegt. Hitti þar góða vinkonu, fékk knús og spjall. Æði pæði.
Lífið er svo yndislegt, ég er með hjartað fullt af kærleika og langar mikið að knúsa heiminn.
Á þriðjudaginn fáum við svo yndislegt fólk í mat, ameríkana sem við höfum ekki hitt í rúm 3 ár. Oooohhh, það verður svo gaman. Þau eru algerir gullmolar, og okkar fyrirmyndir að svo mörgu leiti.
Knús&kærleikur til ykkar allra þarna úti
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.5.2007 | 10:24
Klúður!!
Ég er með svolítið skítinn haus. Hausinn minn hugsar stundum; "This time it WILL BE different". Þetta á við ýmislegt. T.d. þegar ég fer í mína frægu sykurþráhyggju og hausinn á mér segir mér að núna verði þetta öðruvísi, að í þetta skiptið geti ég haft stjórn á því magni sem ég læt ofan í mig af hinum ýmsu sætindum. EN það hefur ekki reynst vera rétt hingað til.
Það sem ég gerði í morgun, og hefur skapað mér alvarlegan höfuðverk, er þó ekki sykurát eða neitt slíkt. Nei, ég fór í sturtu og tók um það meðvitaða ákvörðun að prófa að þvo mér með sturtusápu með vanilluilmi. Mér finnst þessi lykt SVO góð.
Ég hefði betur sleppt því...því ég er jú með ilmefnaofnæmi...svo nú er hausinn á mér að springa í tætlur, mig svíður í augun og klæjar í nefið!!!
Ég varð að sannreyna þetta...og hefði betur sleppt því!!!
Svo héðan í frá, eins og undanfarin ár, ætla ég að halda mig frá sápum og kremum sem innihalda ilmefni!!! Og hana nú.
Vissuð þið að það eru ógeðslega mörg efni sem geta framkallað einkennin, eða hreinlega skapað ofnæmi hjá fólki? Þá er ég að tala um ilmefni og ilmefnaofnæmi. Ég á lista, frá Matas, þar sem talin eru upp 26 sértaklega ofnæmisframkallandi ilmefni, sem eru í snyrtivörum!!!
Ég tók þetta mál upp á leikskólanum...það voru ákveðnar konur (sérstaklega þó ein) sem notuðu slatta af ilmvatni. Það er sýnt og sannað að börn eru sérlega viðkvæm fyrir ilmefnum og geta auðveldar en fullorðnir þróað ofnæmið. Það var svakalegt að sjá hversu mikla vörn sumir fóru í...upplifðu þetta sem persónulega árás (amk miðað við viðbrögðin)...en það kom gott út úr því...því ilmvatnsnotkunin minnkaði mikið í kjölfarið.
Leiðinlegt þegar fólk tekur þetta sem persónulega árás. Jóna, fallega yndislega vinkonan mín, væri farin í ævilanga fýlu við mig ef hún tæki þessu sem persónulegri árás
En nóg um ilmefni og mitt leiðindaofnæmi.
Jæja, best að halda áfram að læra...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.5.2007 | 09:05
Enn einn dagur
Ég sit hér við tölvuna og mér er skítkalt...það er kalt úti...norðanbelgingur (held ég...). Ég er kuldaskræfa af Guðs náð, og þannig hef ég alltaf verið.
Man einu sinni fyrir langa löngu...þáverandi kærasti minn brá sér til Reykjavíkur...þegar ég skreið undir sæng um kvöldið fann var ein bjórdós, ullarsokkar og miði sem á stóð; "Skelltu í þig öllaranum, skelltu á þér ullarsokkunum og þér ætti að hlýna á tánum". Þarna var ég 18 ára...svo það var ekki ungmeyjahitanum fyrir að fara...amk ekki í tánum...og núna er ég 36 og mér er enn kalt á tánum!! Varla er það kerlingarkuldi...
Jamm, þetta var smá flashback... Einu sinni gat ég ekki munað neitt jákvætt um þennan blessaða mann, en það get ég í dag. Eftir að ég sættist við fortíðina mína þá fór mér líka að þykja vænt um persónur og atburði í fortíðinni, því það er nú einu sinni þannig að allt hefur þetta átt sinn þátt í að gera mig að þeirri sem ég er í dag, og ég er mjög sátt við sjálfa mig eins og ég er í dag. Svo þetta er gott mál allt saman.
En nú ætla ég að hætta að röfla og demba mér í verkefni dagsins...var að tala við Annemarie, svo við vitum hvað er mál málanna í dag...og næstu daga...
Eigiði ljúfan dag, elskurnar.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
24.5.2007 | 10:22
Hélt ég myndi æla...
...þegar ég verð stressuð og kvíðin þá verður mér mjög óglatt. Þannig leið mér í gærkvöldi. Ég var með mega hnút í maganum, var ekki að sjá fram á að ná að klára verkefnið...og ég er ekki alveg til í að bíða fram í lok janúar með að klára...
...hringdi í vinkonu sem sagði mér að fara á hnén og sleppa tökunum...ég hálf urraði á móti; "Ég fór á hnén í morgun" og hún svaraði; "Farðu AFTUR Á HNÉN!!".
Ég viðurkenni hér að ég gerði það ekki...hins vegar leitaði ég ÆM í örvæntingu þegar ég var komin upp í rúm...
...skreið þangað kl 22, alveg búin á því. Um leið og ég lagðist á koddann var ég GLAÐVAKANDI og ekki glæta að ég gæti sofnað...
...var gráti næst...
...Einar peppaði mig upp. Gott að eiga góðan mann
Einar efast aldrei um hæfileika mína, amk. ef hann gerir það þá lætur hann mig ekki finna fyrir því. Hann trúir á mig, og að ég geti þetta. Það hefur oft verið þörf á hans peppi gegnum þetta nám. Þegar ég hef verið að drulla á mig fyrir próf...eða bara þegar ég hef verið að gefast upp undan álagi.
Hefði ég vitað hversu mikið álag þetta væri, að vera í þessu námi og með stóra fjölskyldu þá hefði ég kannski aldrei lagt í það...sem betur fer vissi ég það ekki
Vegna þess að þetta er alveg að verða búið og ég er ALIFE AND KICKING!!!

Og klár í slaginn í dag!! Búin að spjalla við Annemarie og Lis (leiðbeinandinn okkar) og Lis segir okkur á réttri leið (aftur...við villtumst aðeins af leið um daginn...og erum að komast inn á rétta braut aftur...). Svo þetta lítur allt vel út, en MIKIL vinna framundan...ca 18 bls. eftir af 30...og 11 dagar til stefnu. En það er rúmlega 1 bls. á dag svo við náum þessu sko alveg!!!
Ég er glöð í hjarta og bjartsýn í dag. Líður miklu betur og ógleðin fokin út í veður og vind. Búin að rabba við ÆM í dag, og geri það aftur ef þörf krefur. Best að taka leiðsögn
Ást...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.5.2007 | 21:18
Ég hef fundið þetta á mér...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.5.2007 | 21:13
Flóð og fjara
Hvar get ég komist að því hvenær er flóð og hvenær er fjara? Er ekki til einhver heimasíða sem sýnir slíkt?
Mig langar nefninlega að prófa að hlaupa á Langasandi, fann að malbikið er of hart fyrir hnéð mitt þó ég fengi ekki verki, en ég nenni ekki að dressa mig upp í hlaupagallann og komast svo að því að það er háflóð...
...ef ég byggi í Himnaríki þá gæti ég kíkt út um gluggann og séð það...en ég bý bara í nágrenni Himnaríkis
Smá pælingar í mér
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar