Leita í fréttum mbl.is

Sérann...

Sr. Gunnar...er afmælisbarn dagsins.

Litli bróðir minn, hann séra Gunnar.  Þrítugur í dag, þessi "litli" kútur.

Man svo vel eftir því þegar hann var pínukríli og við þrjár stóru systurnar slógumst um að fá að halda á honum.  Þá vorum við 4, 5 og 6 ára...að verða 5, 6 og 7 um haustið/veturinn.

Hann var svo sætur, algert krútt og er reyndar enn ansi sætur Wink

Hef ekki grænan grun um hvort brósi hnýsist hérna inn...hann hefur amk. aldrei gert grein fyrir sér...(en það eru fleiri sem eru sekir um það...!!).

Hvað um það; ég sendi elsku brósa mínar allra bestu óskir í tilefni dagins.

Vona heitt og innilega að við sjáumst fljótt, og ef þú ert að lesa; Þú LOFAÐIR að koma við hjá mér næst þegar þú átt leið í bæinn!!! EKKI GLEYMA ÞVÍ!!!  Svo ætlum við að kíkja á ykkur þegar við förum á flakkið okkar í sumar Cool

Elsku Gunnar, megi Guð og gæfan fylgja þér um alla tíð, og sólin skína í hjarta þínu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

til hamingju með hann bróður þinn, ósköp lítur hann ungur út !! held bara að ég sé að verða gömul

Ljós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.5.2007 kl. 12:28

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Mega prestar vera börn?  Til hamingju með hann dúllan mín

Hrönn Sigurðardóttir, 28.5.2007 kl. 13:23

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk görls.  Ja, hann er amk þrítugur í dag...en þessi mynd er kannski 3ja ára...tekin um það leiti sem hann vígðist til prests (segir maður ekki svona?).  Hann var 27 ára þegar hann varð prestur, í Hofsóss- og Hólaprestkalli, þar sem hann er enn.  

SigrúnSveitó, 28.5.2007 kl. 14:16

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til hamingju með litla bróa.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.5.2007 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband