Leita í fréttum mbl.is

Bongóblíða...

...Jóna, hér er spáin fyrir København og Nordsjælland:

veðrið í Køben og Nordsjælland næstu viku...


Græsted, her kommer vi!!!

Jæja, góðan daginn elskurnar mínar.  Ég er eiginlega nýskriðin á fætur...við hjónakornin vorum að glápa á 24 hours til hálf 3 í nótt...ætluðum sko eiginlega bara að horfa á 4 þætti...en horfðum "óvart" á 8...eða kannski ekkert óvart neitt...heldur eins og Einar sagði; "stjórnleysi"!!!

Eeeeen, ég kláraði bolinn á lopapeysunni upp að höndum og byrjaði á fyrri erminni...svo tímanum var nú aldeilis varið í gáfulega hluti Wink Ég prjóna sko miklu hraðar þegar ég horfi á 24 heldur en desperat housewifes...LoL

jóhannes (Jóhannes var aðeins að skrifa líka...svo duglegur að skrifa nafnið sitt)

--

Ég og strákarnir erum að fara til Græsted á morgun!!! Mikil tilhlökkun í gangi. Jón Ingvi verður stærstan hluta tímans hjá Camillu vinkonu sinni og Jóhannes verður hjá Idu sinni.  Ég ætla ekki að taka bílaleigubíl, eins og ég ætlaði fyrst, þar sem ég ætla ekki að þvælast um. Verð í Græsted og omegn, en þeir sem eru á bíl og langar að hitta okkur eru meira en velkomnir til Græsted. Þar verður heitt á könnunni.  

Einar verður heima, hann er búinn með sumarfríiðGræsted kirke sitt...hann fær ekki frí eins og við, heldur notaði hann sitt frí í húsið. Dugnaðarforkurinn minn InLove

Ólöf Ósk er á Nobbó, og verður þar þangaði til hún fer til Danmerkur 10. júlí.  

Jamm, svo dagurinn í dag fer í að dúlla heima, pakka niður og svona...þarf að þvo það síðasta...IA fötin hans Jóns Ingva, en það er ekki hægt fyrr en hann er búinn á æfingu í dag.  

Meira síðar...kannski áður en ég fer...annars kannski bara þegar ég kem heim aftur...sé til...

Myndirnar eru af Græsted Skole, þar sem Ólöf Ósk var fyrstu 5 skólaárin sín, og Græsted kirkju þar sem Jóhannes var skírður. 

Ljós og kærleikur til ykkar allra, krúttin mín. 


Tómt hús...

...eða tómlegt í það minnsta.

Nú erum við bara 4 í kotinu.  Lilja sys. og familía plús Ólöf Ósk yfirgáfu okkur í dag, og eru væntanlega komin á sinn stað á Neskaupstað.

Við - ég og drengirnir - áttum rólegt kvöld. Mjög skrítið að vera bara við þrjú í kvöld eftir viku í bananastuði með mörgum öðrum.

Alltaf söknuður, en samt líka notalegt að vera bara við aftur. Þetta er eins og þegar ég fer í ferðalag, alveg æðislegt, en alltaf svo gott að koma heim.

Byrjaði að lopapeysu í kvella...peysu sem ég var búin að lofa að prjóna og ég setti sjálf deadline; Versló! Svo það er eins gott að byrja strax þar sem ég ætla ekki að taka lopann með mér til úgglanda...

Eeeeen, nú ætla ég að skríða undir sængina mjúku og kúra,kúra, kúra....InLove


Pils og gestir

Hér koma nokkrar myndir, af pilsum (sönnun á því hversu myndó við systur erum!) og smá gestamyndir. Annars er komin einhver slatti inn á barnasíðuna.

Jóhannes og 3 pils

Jón Þór og Einar

 

Eysteinn ÞórLilja og gráa pilsið


Húsið okkar, fína og fagra :)

Örstutt héðan...svaka fjör, ennþá gestir SmileHeart

Reyndar er ég að vinna um helgina, sem er leiðó, en lifum það af Tounge

Hér mynd af húsinu okkar, sem er orðið stórglæsilegt eftir mikla vinnu míns heittelskaða undanfarna daga...jamm, undanfarið ár ef út í það er farið... (fleiri myndir á heimasíðu barnanna)


Lilja og drengirnir 4

Lilja sys. mætti á svæðið á þriðjudaginn og með henni Jón Þór, Eysteinn, Bergur og Ýmir.  Algerlega æðislegt að hafa þau hérna hjá okkur.  Mikið fjör með 7 börn á heimilinu en það gengur eins og í sögu.

Það væri mesta snilldin ef ekki væru 700 km á milli okkar og rúmlega það, en við gerum það besta úr því og njótum þess betur þegar við hittumst.

Ég þarf að taka myndir af þessum fallega hóp sem er í kringum mig og setja inn Heart

Veðrið leikur við okkur og ég er ekki að nenna þessum 3 vöktum sem ég á eftir...en reyni að vera JÁKVÆÐTounge

Nú er bara eftir að mála eina umferð á loftinu og svo smella teppi á og það er reddý!!!  

Við systur höfum verið í pilsframleiðslu, saumuðum 4 stykki í gær, eigum þó eftir að setja rennilás á og falda...náðum ekki meira í gærkveldi...en klárum það væntanlega í dag! 

Eeeeen, núna ætla ég að snúa athyglinni að syssu minni og öllum hópnum...

Sí ja!! 


Vaknið áður en bensínið fer í 200 kr. líterinn

Hvað segið þið???
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Allt að verða klárt!

Í morgun grunnaði ég veggi + loft á sjónvarpsloftinu, á reyndar eftir að pússa smá (lagnakassi úr sjónvarpsloftið gifsi...I do not like GIFS!!!) en það kemur.  Einar er byrjaður að smíða tröppurnar. Ætli það verði ekki málað þarna uppi á morgun, svo smellt teppi á og volla...allt reddý! Svefnsófinn verður settur þarna upp - og ALDREI tekinn niður aftur!  Við þurftum örugglega á kröftunum að halda í það, enda er hann ansi mikill hlunkur...en við verðum nokkur til að kljást við það; gestirnir fá að hjálpa!!

Annars fór ég í gær og náði í rúm handa yngsta gestinum og fór svo og náði í vagn í dag. Gott að vinna á kvennavinnustað, ekki málið að fá lánað svona barnadót Wink

Svo er ég búin að vera að opdatera nýjustu heimasíðuna mína á Ravelry, setja inn meira af handavinnustykkjum. Rosa gaman að eyða tíma þarna inni, skoða hvað aðrir hafa gert og fá hugmyndir. Fann þarna inni uppskrift sem ég hafði eitt sinn fundið á netinu en var svo var búið að loka síðunni þegar ég ætlaði að nota hana... En þarna inni er gaman að vera...og gæti orðið tímaþjófur...en þar sem ég þjáist ekki af neinu stjórnleysi...LoL

Jæja, best að koma mér út í búð og versla eitthvað í matinn...Einar og Jón Ingvi fóru í höfuðborgina í bíóferð, eitthvað sem var löngu búið að lofa kappanum. Smá einkatími með pabba, sem er hollt og gott! Heart

Kyss og koss í bili.. 


Jæja,

þá er Kaupþingsmótinu lokið og þreyttur Jón Ingvi er kominn heim eftir langa helgi. En þó ánægður,þreyttur strákalingur hann skoraði jú tvö mörk og stóð sig eins og hetja.

Mótið endaði á grillveislu og svo verðlaunaafhendingu. Þegar það var búið þá var komið að foreldrum IA-barna að þrífa skólann...ekki gleðilegt, en margar hendur vinna létt verk! Svo það gekk fljótt og vel fyrir sig. Á eftir var kaffi í íþróttahúsinu, afgangar frá í gærkvöldi en þá var ÖLLUM foreldrum boðið í foreldrakaffi, en foreldrar IA-barna áttu að koma með 2 kökur hver. Og það var klikkað mikið af kökum, brauðtertum og heitum réttum. Ótrúlega flott og vel sótt.

--

Í morgun, milli dagskrárliða, pússaði ég sparsl og er enn með full augu af sparslryki...það hefði verið skynsamlegt að vera með hlífðargleraugu... 

En ég sveik víst loforðið mitt við Sindra í gær (eða var það í fyrradag?) en ég bætti úr því í dag og tók myndir á loftinu! Sindri, það eru myndir á heimasíðu barnanna.

Og það eru myndir af mótinu líka. Fyrir þá sem hafa áhuga Smile

Jæja, verð að hlaupa...við ætlum að halda upp á daginn og panta pizzu... 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband