Leita í fréttum mbl.is

Svefnpurka...

...sagði ég ykkur að ég svaf fram að hádegi í gær...aftur...?!!! Mér finnst gott að kúra, en svo er ekkert gott - finnst mér - að hafa legið svona lengi. Er lurkum lamin á allan hátt.

Svo í morgun fór ég á fætur fyrir 9.30! Svaka dugleg LoL

Í gær var fótboltadagur, báðir strákarnir á æfingu. Við vorum búin að ákveða að baka pönnsur, en þar sem það voru æfingar allan seinnipartinn, þá frestuðum við pönnsupartýinu fram yfir kvöldmat. Jóhannes hringdi svo í Jónu ömmu sína og bauð henni og Benna afa í pönnsukaffi.

Notalegur dagur, og notalegt kvöld, sem endaði á síðustu 4 þáttunum af 24!!! Og nú er ég að verða komin upp að fystu úrtöku á lopapeysunum!!!

Jæja, kaffibollinn bíður Tounge


Þetta...

fær mann til að hugsa dálítið...
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

24 tímar og fleira

Við ákváðum í gær að best væri að drengirnir færu snemma að sofa...enda búnir að nota öll batterí í fríinu í Dk, farið seint að sofa og verið á milljón meira og minna alla daga. Jamm, þeir fóru í rúmið kl. 8 og sofnuðu báðir mjög fljótt. Í morgun kom Jóhannes svo ALKLÆDDUR inn til okkar...kl. 6.30...

En ef ég sé þetta á dönskum tíma...þá fóru þeir að sofa kl. 22 og Jóhannes vaknaði 8.30...þá hljómar þetta ekki eins slæmt...vona bara að hann nái sér fljótt yfir í íslenskan tíma...LoL

Við hjónakornin sátum og horfðum á 6 þætti af 24 hours...6 þættir eftir...mikil spenna í gangi. Ég kláraði eina ermi af peysunni á Aðalstein bró. og komst langt með hina. Prjóna svo hratt þegar ég horfi á 24...miklu hraðar heldur en ef ég horfi á Aðþrengdar eiginkonur Tounge

Það var gott að sofa í eigin rúmi aftur og yndislegt að hafa Einarinn minn við hliðina á mér. Oooohhh, hvað það er ljúft að koma heimInLove
Ég er svo eiginlega nýskriðin á fætur...svaf til 9.30 og lá í bælinu í klukkutíma í viðbót og dormaði. Bara ljúft. Svona á sumarfrí að vera. Núna er svo mál málanna að taka til í byggingunni...eigum von á slatta af efni í húsið í dag og svo ætlar systir Einars að koma með búslóðina sína og fá að geyma hana fram til 1. sept. en þá er hún að flytja á kollegíið á gamla kanavellinum.

Jamms. Lífið er ljúft. Lov jú oll!! 

Kærligst,
Runa.


Úti er gott...

heima er BEST!! Heart

Jamm, við erum komin heim. Alger sæla að komast í faðminn á mínum heittelskaða InLove

Flugið var nokkurnveginn á réttum tíma, lentum bara um klukkutíma seinna en áætlað var, en það var nú bara smotterí. Flugið heim miklu lengra þar sem við vorum vakandi...annað en á útleiðinni...Sleeping

Gærkvöldið var notalegt, ég og Tinna sátum frameftir og spjölluðum. Með klump í hálsinum og tár í augunum með jöfnu millibili Crying erfitt þegar leiðir skilja, í bili...en við reynum að segja ekki "bless" heldur frekar "på gensyn" því við munum auðvitað hittast aftur...og aftur...og aftur.  Best að taka Jóhannes mér til fyrirmyndar, hann kveður ekki og hefur aldrei viljað gera, hann vinkar frekar og segir; "Við sjáumst". Skynsamur drengur!

Jæja, ætla að fara að knúsa karlinn minn svolítið meiraKissingInLoveHeart

Kærligst,
Runa.


Tetta er búid ad vera...

...eitt brjálædislegt ÁT!!

Jamm, vid erum búnin ad eta "hollustu"kökur ÖLL kvöld hérna... Tinna er líka hætt í sykrinum svo hana langadi audvitad ad læra á sykurlausar kökur...svo vid erum búnar ad standa okkur vel í ad búa til kökur...og smakka á teim...

Held svei mér ég hafi bætt á mig einhverjum grömmum....vonandi tó bara grömmum...

Nenni ekki ad skrifa meira núna...bara vard ad deila med ykkur átinu...

Kærligst,
Runa.


Framhaldssagan

Jæja elskurnar. Vid njótum enn lífsins í Græsted. Í gær turftum vid, ég og Jóhannes, ad fara í 3 búdir hér í bæ til ad finna ákvedinn hlut. Tetta var bara eins og i gamle dage, versla í heimabyggd Tounge Gott ad vera í Græsted, hér á ég einhverjar rætur, tad er tad sem ég er ad reyna ad segja. Tad eina sem vantar er ad Einar sé hérna, nú tegar Ólöf Ósk er komin í bæinn.

Eeeeen, nei, vid búum á Akranesi og ætlum ad vera tar áfram! Nøjes med at besøge Græsted en gang i mellem.

Jamm!!

Í fyrradag fengum vid góda gesti. Hrafnhildur vinkona kom, ásamt Vidari og Patreki. Tad var ædi, og Hrafnhildur og égvid áttum gódar stundir saman. Hrafnhildur og ég kynntumst fyrst tegar vid vorum ca 11-12 ára gamlar og vorum miklar og gódar vinkonur fram á unglingsár. Tá skildu leidir, en vid fundum hvor adra aftur hér í Danmörku í febrúar 2003 og erum stadrádnar í ad sleppa ekki hvor annari aftur!Heart

Tessi mynd er tekin fyrir rétt rúmum 2 árum, eda 8. júlí 2006 í kvedjupartýinu okkar Einars, ádur en vid fluttum til Íslands.

Í gær heimsóttum vid Pippi, og drukkum kaffi og spjölludum í gardinum, á medan Jóhannes spiladi fótbolta, ýmist einn eda med Kåre, manninum hennar Pippi.

Vid skruppum svo adeins í bæinn, ég og Jóhannes, og keyptum fleiri fótboltasokka á hann og Jón Ingva. Jóhannes rúlladi nidur nokkrar tröppur í rúllustiganum og er allur skrámadur á handleggjum og fótleggjum. Tad vildi svo heppilega til ad tad stód kona í tröppunum, ca 3-4 tröppum nedar en ég, og hún nádi ad stoppa hann. Æ hvad hann grét, og tegar hann grætur tá er tad temmilega alvarlegt, tví hann er alger nagli!

Heima var hoppad á trambólíni og Jóhannes og Ida áttu skemmtilegan eftirmiddag og kvöld saman, tar sem tau fjolludu rundt og skemmtu sér.
Jón Ingvi fór til Camilla í gærmorgun og var í nótt, vid eigum von á honum einhverntímann í dag eda kvöld.
Og í dag eftir kl. 15 förum vid svo til Mette, tar sem Ólöf Ósk er. Mikil tilhlökkun í gangi ad sjá stelpuskottuna okkar aftur!

Jæja, morgunmatur er næstur á dagskrá, svo er Annemarie ad koma í heimsókn. Ég og Annemarie ég og Annemarieskrifudum lokaritgerdina okkar saman. Hún býr rétt fyrir utan Køge, sem er í ca klukkutíma keyrslu hédan. Tad verdur gaman hjá okkurSmile

Tessi mynd er tekin tegar Annemarie kom til Íslands, tegar vid vorum ad skrifa ritgerdina. Á leidinni út á flugvöll fórum vid í Bláa Lónid.

Jæja...túttlú...meira sídar.


Gódan daginn...

...elskurnar mínar nær og fjær.

Smá vidbót vid ferdasöguna kemur hér:

Á mánudaginn fórum vid til Hillerød, versludum slatta...Jóhannes fékk nokkrar buxur, sokkar og fótboltaboli og já, legghlífar fyrir fótboltann! Mjög mikilvægt fyrir fótboltamann á hradri uppleid!

Svo drusludumst vid hér heima og áttum gódar stundir. Jón Ingvi kom svo heim og svaf, var einhver mömmukarl í honum. Svo fór hann til Camilla nánast strax og hann vaknadi í gærmorgun.

Vid hin; ég, Jóhannes og Ida, fórum ad heimsækja Betina, vinkonu mína. Reyndar komum vid fyrst vid og keyptum fótboltaboli á Jón Ingva.

Heim aftur og sídan ad heimsækja Hjálmar og Janne.

Vitidi, tetta er ædi, svo gaman ad hitta allt tetta fólk aftur. Mikid svakalega finnst mér ég vera rík ad eiga alla tessa frábæru vini Heart

--

Á morgun, eda reyndar seint annad kvöld, er prinsessan svo væntanleg til Græsted, en ég tarf ekki ad spá í tad, Mette og Sjønne sjá um hana, ásamt Cille.
Ætli vid hittum hana ekki svo á föstudaginn InLove

Heyrdi í Einari í gær...sakna hans...hlakka til ad koma heim og kúra hjá tér, ástin mín HeartInLoveKissing

Jæja, Jón Ingvi vill fá tölvuna...Anton og Emil eru í sínum tölvum hérna svo hann vill líka...

Knús og kyss...


bara smá kvedja

Vid njótum lífsins hér í Græsted. Sídustu nótt sváfu strákarnir 13½ tíma og hefdu eflaust sofid lengur ef síminn minn hefdi ekki hringt.

Í gær fórum vid á ströndina, Jón Ingvi og Jóhannes nutu sín í tætlur. Svo fengum vid grillad hjartarlæri í kvöldmatinn, og Jóhannes bordadi á sig gat.

Annars var gærdagurinn bara afslöppun, og huggulegheit med vinum okkar.

Jón Ingvi fór svo til Camilla, vinkonu sinnar, í gærkvöldi og verdur tar fram á föstudag eda laugardag. Svo nú er ég bara med eitt barn...

Sólin skín, morgunmatur í gardinum, kaffid er ready, svo ég kved í bili.

Kærligst,
Runa.


Komin til Græsted

og ég kann ekki ad skifta yfir í íslensku...svo engir íslenskir stafir í dag...

Eitt get ég sagt ykkur; ég er treytt!!! Vid vorum komin út á flugvöll kl. 13.30 í gær, áttum ad fara í loftid kl. 15.30. Eftir mikla bid og litlar sem engar upplýsingar fengum vid ad vita ad fluginu væri seinkad til kl 16.50

Um kl. 17.30 var ekki búid ad hleypa um bord...endalausir tæknilegir ördugleikar...sem breyttust svo loks í vélarbilun.

Fluginu seinkad til 02.00...ég og fleiri héldum audvitad ad tetta væri lélegur brandari...en svo reyndist ekki vera.

Sumir fartegarnir urdu CRAZY!! Tó ekki sé meira sagt...ég verd ad segja ad ég vorkenndi stúlkugreyinu sem vinnur hjá Ground Service...en hún virtist öllu vön og tók skítkastinu med jafnadargedi.

Mér virtist sem barnlausa fólkid tæki tessu langverst og væri langreidast. Barnafólkid skottadist um næstu klukkutímana, sumir komu börnunum í svefn...adrir reyndu árangurslaust...eins og t.d. ég.

Strákarnir sváfu sem sagt bara í fluginu; Jóhannes sofnadi strax og hann var kominn út í vél, og svaf tannig ca 3 tíma, Jón Ingvi svaf minna, ca 2½. Og tad er allt og sumt sem teir hafa sofid. Hafa ekki viljad leggja sig í dag, teir eru búnir ad hlaupa um í fótbolta, fara í bæjarferd til Gilleleje og fara í laugina hjá Rakel vinkonu í Smidstrup. Og núna eru teir aftur komnir út í fótbolta...

Of treyttir, held ég. Ég er hins vegar med hausverk og lídur eins og ég hafi verid á fylleríi.... Og talandi um fyllerí...einhverjir tóku hraustlega á tví í flugstödinni í gær...og einn var nánast borinn inn í vélina...hann sofnadi sem betur fer fljótt (eda ég geng út frá ad hann hafi sofnad tar sem hann hætti ad orga...).

Nåh...nu vil jeg tilbage til vores dejlige venner her :)

Kærligst,
Runa.


Græsted her kommer vi!!!

Hellúúú...!!!

Jæja, nú erum við að fara af stað eftir smá.  Jón Ingvi er að fara að keppa á golfmóti núna kl. 10, þá förum við hin í útréttingar og svo er það Flugstöð Leifs Eiríkssonar!!! Mikið grín, mikið gaman!!!!

Ég er að byrja að skipuleggja þessa daga okkar í Græsted...eins og fyrr sagði þá verðum við ekki á ferðinni utan Norðursjálands, ferðin snýst mest um að drengirnir fái að vera með vinum sínum, sem varð ekki raunin í síðustu ferð og var mikil eftirsjá hjá þeim hvað það varðar. Svo þegar þessi ferð var skipulögð var það út frá þeirra þörfum.

Ég ítreka að þeir sem eru á bíl (eða langar í lestarferð...sem gengur annan hvern dag....ef maður er heppinn...ef þið spyrjið Sindra...) eru velkomnir til okkar í Græsted.

En, nú er ég að fara í útréttingar...Jóhannes var kominn í gegn á gúmmítúttunum sínum...hann verður að fá nýjar!!

Túttilú, elskurnar mínar. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband