Leita í fréttum mbl.is

Smá fyrir svefninn

Hér sit ég, búin að fésast smá.

Búin að horfa á bæði House og CSI Miami ásamt gelgjuskottinu mínu. Hugguleg stund hjá okkur mæðgum. Ég með prjónana, en ekki hvað?!! 

Reyndar er ég að reyna að prjóna tvo sokka í einu og það gengur ágætlega, en ég held samt að ég sé ekki að gera þetta rétt... En það vill svo skemmtilega til að ég kannast við konu sem kann þetta...fæ hana kannski til að sýna mér, næst þegar ég hitti hana. 

Eitt er fréttnæmt í kvöld, af mér. Svo undarlegt sem það hljómar þá er mér HEITT á fótunum. Of heitt. Og mér finnst það næstum eins óþægilegt eins og að vera kalt. Úff...erfitt að gera mér til hæfis...amk í sumuLoL

En vitiði, nú ætla ég að skríða undir sæng, meðan tærnar mínar eru enn heitar...Einar er nefninlega ekki kominn heim til að hlýja mér...en hann kemur á eftir, svo ég fæ að kúra hjá ástinni minniInLove

Góða nótt, ezzzkurnar...zzzzz...Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dóra

Blessuð... Takk fyrir lykilorðið.. Já þekki þetta með tásurnar.. er farin að sofa í sokkum.. hehehe 

Hér á árum áður prjónaði maður mikið á börnin .. Hver veit nema að maður taki upp á því  einn daginn að prófa..

Hafðu það gott elskuleg og góða helgi.

Kærleikskveðjur hér frá Esbjerg Dóra

Dóra, 7.11.2008 kl. 10:26

2 Smámynd: JEG

Úfff já nú verð ég að fara að taka í prjónana áður en það verður of seint að klára peysuna fyrir jól.  En svona er þegar mauður er að útbeina þá er nennirinn bara farinn út í rusl með fitusnyrtingunni hehehe.....

Knús á þig essgan og eigðu ljúfa nótt. 

JEG, 7.11.2008 kl. 22:46

3 Smámynd: Tanni Ofurbloggari

takk takk alltaf til í köku    

beð eð helse mennen þenn

TANNI MAXIUMBLOGGUS

Tanni Ofurbloggari, 8.11.2008 kl. 09:06

4 Smámynd: Tína

HÚN Á AFMÆLI Í DAG........ HÚN Á AFMÆLI Í DAAAAAAAG. HÚN Á AFMÆLI HÚN SIGRÚÚÚÚÚN, HÚN Á AFMÆLI Í DAG.

Öööööö til hamingju með daginn ljós. Megi verða dekrað við þig eins og þú ein átt skilið.

Tína, 8.11.2008 kl. 10:19

5 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk :)

ég held að dagurinn verði yyyyyyndislegur.

SigrúnSveitó, 8.11.2008 kl. 11:26

6 identicon

Elskulega fallega frænka!  Innilega til hamingju með afmælið!  Vonum að dagurinn hafi verið þér yndislegur í faðmi fjölskyldunnar og hafir fengið fult af góðum kveðjum.  Hugsum til þín og átti líka að skila kærum kveðjum frá mömmu & pabba - þau voru hjá okkur í dag.  *knús&kossar* þínar frænkur, Hjördís Huld, Ragnhildur og Inga Hrönn

Hjalla-stelpurnar (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 16:50

7 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

til hamingju með daginn

Guðrún Jóhannesdóttir, 8.11.2008 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband