Leita í fréttum mbl.is

Sæludagur

Allir dagar eru á einhvern hátt sæludagar.

Í dag svaf ég lengi (jamm...kemur ykkur örugglega ekki á óvart...finnst ég alltaf vera að segja ykkur að ég hafi sofið lengi...ætti kannski að skoða "svefnpurkur anonymous"Tounge).

Minn heittelskaði kom og vakti mig rétt fyrir hálf 12...þá var ég reyndar vöknuð...!  Við ákváðum að það væri tímabært fyrir mig að drattast framúr þar sem við ætluðum að fara á fjölskyldudag Norðuráls. Norðurál fagnar 10 ára starfsafmæli á þessu ári og var sem sagt fjölskyldufögnuður þar í dag. Við fengum m.a. að skoða starfsemina, reyndar úr rútum en við sáum t.d. vinnustaðinn hans Einars sem er skautsmiðjan. Gaman að því. Ég vissi lítið um þetta en er örlítið fróðari eftir daginn Wink

Ég fór svo heim á meðan familíjan mín fór í afmæli hjá bróðursyni Einars. Ég "á" þessa helgi (í vinnunni) en fékk skipti í dag. En er á bakvakt núna eftir kl. 16, svo ég gat ekki farið úr bænum. Þannig að ég er í rólegheitum heima, búin að setja í þvottavél og er að hugsa um að smella mér í smá föndur Smile Keypti mér ný skæri áðan, og get vonandi notað þau. Svo vantar mig sárlega almennileg sníðaskæri (helst Fiskars...) og er ég að vonast eftir að þau séu fáanleg í einhverri verslun hér á Skaganum...ætla að athuga í Ævintýrakistuna tomorrow!

Ást...Heart

Ps. mig langar enn í berjamó...kannski ég breggði mér í vikunni...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Já ég er ekki enn heldur farin í berjamó enda er pabbi svo duglegur að ég þarf ekkert að klöngrast upp á fjall.  Er bara heima að sulta.

Knús og kelmm á þig.

JEG, 31.8.2008 kl. 22:13

2 Smámynd: Tína

Yndislegt að sjá hvað þú ert alltaf ánægð með lífið og tekst ávallt að smita gleðina út frá þér. Enda ertu frábær í alla staði og hefði ég sko ekkert á móti því að kynnast þér betur.

Knús á þig krúttan mín. Haltu endilega áfram að vera svona hamingjusöm.

Tína, 1.9.2008 kl. 07:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband