Leita í fréttum mbl.is

Engin skæri keypt!

Einfaldlega vegna þess að ég dröslaðist ekki framúr fyrr en um hádegi... Fór reyndar á fætur í morgun og gerði nesti fyrir Jón Ingva og keyrði svo Jóhannes á leikskólann upp úr 9 en fór svo að sofa aftur...og svaf til 12.eitthvað...!

Náði því ekki að athuga með skæri, en náði að þvo þvott og gera ýmislegt smálegt. Verslaði og eldaði svo fyrir familíjuna þar sem það er æfingadagur (allir krakkar á æfingu rétt fyrir kvöldmat). Svo fór ég að vinna og er sem sagt að laumast í tölvuna í vinnunni...uss...jæja, ætla að fara að vinna!

Ást til ykkar á þessum yndislega degi...sem viðraði vel til berjatýnslu...en ég veit ekki hvar berin eru...hef aldrei komið í Skorradal en þar er víst fínt berjaland...þar að skoða þetta!

Blaber_agust_2007

Knús...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vona að þú finnir ber og skæri, ég var að frysta rips.  Knús á þig og þína yndislega stelpa  Dating 

Ásdís Sigurðardóttir, 1.9.2008 kl. 20:27

2 identicon

MMmmmmm mig langar svo í berjamó!  Kann bara ekkert á það hér á suðurlandinu .. vantar bara fjallið fyrir ofan bæ :)  *knús* til þín

ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 21:01

3 Smámynd: JEG

Æjjj oohhh mig langar að skríða uppí aftur á morgnana þegar gaurar eru farnir í skóla ennn......nei ekki í boði fyrr en kannski eftir 1 ár eða svo. 

Kveðja úr sveitinni.

JEG, 1.9.2008 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband