Leita í fréttum mbl.is

Skipulag!

Nú förum við bráðum að telja niður fram að fermingu og nú ætla ég að vera tímanlega í ýmsu sem hægt er að gera með góðum fyrirvara. T.d. að búa til myndasjóv fyrir skottuna Smile

Ég er svo lánsöm að eiga systir sem er mega skipulögð og bý ég að hennar reynslu, þar sem hún fermdi sinn elsta í vor sem leið Wink

Afhverju er ég að spá í þetta núna? Jú, vegna þess að prentarinn okkar er bilaður og okkur vantar nýjan og þá kom upp spurningin hvort það þyrfti skanna...eða Einar kom með spurninguna...!!! Og AUÐVITAÐ þurfum við skanna! Kommon!!

En ég skil svo sem vel að hann spyrji því við höfum lengi verið með prentara með skanna...en hann hefur ekki verið mikið notaður undanfarin ár...en nú verður sem sagt breyting á...amk. tímabundið...Tounge

Af öðru get ég sagt ykkur að ég léttist um 10 kg áðan...fór sko í klippingu...!!! LoL Og er alsæl með það. Ég er svoooo ánægð með klippikonuna mína, hana Önnu Júlíu. Hún veit nákvæmlega hvernig ég vil hafa hárið og það er náttúrlega bara snilllllld!

Jæja, best að ráðast út í rokið og sækja Jón Ingva í skólann...ekki viljum við að hann fjúki til fjalla... eða á haf út (veit ekki hvaða átt er....LoL)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Renata

Það er ómetalegt að hafa góða hárskera, mín er farin í barneignafrii og ég búast við að ég mun ekkert gera í hármálnum fyrir en hún kemur til baka.

Þú veist að ég klukkaði þig? *sjá vefsíðu hjá mér*

Renata, 29.8.2008 kl. 14:18

2 Smámynd: JEG

Já ég er nú laus við að hugsa um fermingu næstu árin sem betur  fer.

Klipping ég líka ný klippt en engin 10 kg farin  

Kveðja úr sveitinni.

JEG, 29.8.2008 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband