Leita í fréttum mbl.is

Uppskriftir óskast!

Hæ elskurnar mínar, all-a-round!   Ég ætla að smella hér inn textanum sem var í tölvupóstinum sem fór frá mér áðan. Sum ykkar (sem eruð á netfangalistanum mínum) fengu þennan póst, en það eru þónokkrir sem ekki eru þar og fengu þennan póst því ekki.

Ég biðla hér með til ykkar allra, og get líka sagt ykkur strax hvað ég verð með í matinn í kvöld; Ég keypti kjúklingabaunabuff frá Grími kokk og ætla að snæða það. Ólöf Ósk bjó til grjónagraut handa sér og lilla bró!

Tölvupósturinn:

Heil og sæl öllsömul!
 
Þar sem ég sat og braut heilann um hvað ég ætti að hafa í matinn flaug mér í hug að leita til fólks á netfangalistanum mínum...
 
Mig langar að biðja ykkur - ef þið eruð til í "tuskið" - að deila með mér einni hversdagsuppskrift úr eldhúsinu ykkar.
 
Held við þekkjum þetta flest, að brjóta heilann í sífellu um hvað á að vera í matinn...og enda svo jafnvel alltof oft á að elda það sama... Amk. er ótrúlega mikill heiladoði hjá mér þessa dagana hvað þetta varðar.
 
Ef ég fæ slatta af uppskriftum þá mun ég safna þeim saman í wordskjal og smella því á bloggið; http://www.sigrunsveito.blog.is/ ,svo sem flestir geti fengið notið!
 
Með von um stórkostleg viðbörgð ;)
 
Með kærleika og virðingu,
S.
 
Ps. þið megið gjarnan senda mér uppskriftirnar á netfangið mitt: sigrun[at]dengule.dk  
 
---
nokkrum klst. síðar...
 
kjúklingabaunabuff...ég get sagt ykkur að kjúklingabaunabuffið hans Gríms kokks var hreinasta snilld.  Ég borðaði það með hrísgrjónum, salati og sinnepsósu að hætti Úrsúlu.  Jamm, gargandi snilld!  

Mæli með svona máltíð, tala nú ekki um ef andleysið er að drepa fólk úr hungriTounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ elskulegust og takk fyrir póstinn.  Því miður er andleysið einnig ríkjandi á þessum bæ og því gat ég ómögulega sent þér svar.  Hér á þessu laugardagskvöldi voru steikt heilsubuff frá Móður Nátturu og gras úr garðinum.  Rosa glamourus :D  Ég hefði skoh verið til í eina skál af grjóna hjá henni frænku minni :)  Sendi  *knús* á Skagann!

Ragnhildur frænka & Inga Hrönn (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 22:31

2 Smámynd: Tína

Góðan daginn fallegust. Ef þú lætur mig fá netfangið þitt þá get ég sko alveg deilt með þér uppskriftum sem ég hef sankað að mér í gegnum árin. Annars datt ég niður á sannkallaða guðsgjöf í vor þegar ég fann síðuna www.hvaderimatinn.is . Þessi síða er svo einföld í notkun og alveg þrælskemmtileg.

Knús á þig dúllan mín.

P.s þú finnur netfangið mitt á síðunni minni.

Tína, 24.8.2008 kl. 07:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband