Leita í fréttum mbl.is

Ellikelling?!

Skyldi það vera ellikelling sem er að banka upp á? Ég get ómögulega legið í rúminu í 12 tíma án þess að vera að kálast í bakinu!! EKki gott!!!

Finn fyrir því núna, þar sem ég fór í bælið kl 23 og lá þar eins og skata til kl 11...

--

Ég og Jóhannes keyrðum Einar og Jón Ingva í Vatnaskóg í gærkveldi. Brunuðum svo heim og fengum okkur smá kvöldmat og svo var lagst í gláp...Jóhannes tók íþróttaálfinn í nefið á meðan við mæðgur lágum yfir Friends... Mjög nice.

Svo vorum við að spá í að kíkja í borgina...ef það væri þurrt...en nennum ekki út í rigninguna. Mig langaði svo að kíkja á prjónaríið í Hallargarðinum...en það eru örugglega ekki margir sem sitja úti í rigningunni og prjóna...eða hvað haldið þið? Mig langaði að kaupa mér svona bleika nælu...flott næla fyrir prjónafólk og styrkir gott málefni.  

egPrjona Og eftir auglýsingunni að dæma þá verða þau bara til sölu í Hallargarðinum :( Annars hefði ég getað pantað mér...það er nefninlega líka dýrt að keyra alla leið í borgina bara til að kaupa eitt merki...!

Jæja, ég er hætt í bili, tölvan mín er komin með hita...brenni mig á henni...eða næsum því...

Knúúúús.... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Ómæ ég væri til í að fá að lyggja æí bælinu í 12 tíma.  ......bara einu sinni enn.  Man ekki hvenær ég fékk að lyggja svo lengi síðast (án þessa að þurfa að gera neitt annað en dorma og sofa)

Flottar nælur og já dýrt að keyra í dag það er hverju orði sannara.

Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 23.8.2008 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband