Leita í fréttum mbl.is

Áströlsk bomba

Hellúúú...!!

Ég lofaði vinnufélögum mínum að setja hér inn uppskrift að kökunni sem ég tók með í vinnuna í fyrrakvöld:

 

Áströlsk bomba með heitri sósu

235 gr döðlur
1 tsk matarsódi
120 gr mjúkt smör
5 msk agaves
2 egg
3 dl hveiti
½ tsk salt
½ tsk vanilludropar
2 msk lyftiduft

 

Setjið döðlurnar í pott og látið vatn fljóta yfir.  látið suðuna koma upp, slökkvið á hitanum og látið döðlumaukið standa í pottinum í 3 mínútur.  Bætið matarsódanum út í.

Þeytið smjör og sykur vel saman og bætið eggjunum í einu í senn.  Þeytið vel og blandið síðan hveitinu, saltinu og vanilludropunum saman við.  Bætið lyftiduftinu út í ásamt ½ dl af döðlusoðinu og hrærið varlega (deigið á að vera eins og vöffludeig).  Hellið döðlunum í sigti go bætið þeim út í að lokum. 

Smyrjið u.þ.b. 8 cm hátt lausbotna fóm sem er 24 cm í þvermál vel með smjöri og setjið deigið í formið, hitið ofninn í 180° og bakið í 30-40 mín. eða þangað til miðjan er orðin bökuð.  Hvolfið kökunni á tertudisk og berið hana fram volga með sósunni og þeyttum rjóma eða ís.

sósa:
100 gr smjör
115 gr agave
½ tsk vanilludropar
¼ bolli rjómi

Setjið allt saman í pott, látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið sósuna krauma í u.þ.b. 3 mín.
Hrærið stöðugt í á meðan. 
Berið sósuna fram með bombunni.

Það verður að segjast eins og er, þetta er alveg svakalega gott...þó svo að sósan hafi verið einum (ef ekki tveimur...eða tíu) of sæt fyrir mig. Því ég er svoooo sæt að...ok, stoppa hér LoL

Jæja, búin að skila múttu minni túttu í flug, hún er væntanlega lent á Egilsstöðum og á leið heim á Nobbó. Á eftir að sakna þess að hafa hana ekki nær mér. Búin að eiga yndislegar stundir með henni undanfarnar 2 vikur.  Eeeeen, ég kaus mér líf 700 km í burtu frá æskustöðvunum svo ég get ekki verið í kaffi hjá henni oft í viku...that´s life!

Jæja, best að hjálpa feðgunum að pakka... 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Hljómar girnilega sko.

Sætt er gott.......

Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 22.8.2008 kl. 14:49

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Næst þegar þú kemur á Selfoss  þá tekurðu með þér bombu og býður þér í kaffi hjá mér 

Ásdís Sigurðardóttir, 23.8.2008 kl. 01:29

3 Smámynd: Tína

Þú ert ekki bara sæt Sigrún mín, heldur gullfalleg.

Knús inn í daginn þinn.

Tína, 23.8.2008 kl. 07:25

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Ásdís, þið eruð svo margar bloggvinnsur á Selfossi að ég held það sé ekki spurning hvort...heldur hvenær ég smelli mér á Selfoss! Og aldrei að vita nema bomban verði með í för :)

Tina, takk :)  

SigrúnSveitó, 23.8.2008 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband