Leita í fréttum mbl.is

Júróvisjón!

júróvisjón, 2. undanúrslitÉg gaf dönum mitt atkvæði! En ekki hvað?!!! 

Mjög kósí kvöld hjá okkur.   Jón Ingvi les

Fórum upp í skóla, þar var bekkurinn hans Jóns Ingva með kynningu á verkefni sem þau hafa verið að vinna að í allan vetur.  Rosa flott, og Jón Ingvi stóð sig eins og hetja, hann les snilldarvel drengurinn. Svolítið feiminn og finnst erfitt að standa fyrir framan fullt af fólki...oooohhh, hvað ég skil hann vel....!!!

Á eftir var boðið upp á hlaðborð, börn fædd frá janúar til og með júní voru gestgjafar og einhver kom með þessa líka fínu "mobil-madder".  

Núna sit ég sveitt og prjóna...sveitt vegna þess að ég hækkaði greinilega of mikið á hitanum í dag...og vegna þess að ég er að búa til mynstur á vestið mitt...og ég er of fljótfær til að gefa mér góðan tíma í að reikna út...

Held ég hætti þess vegna núna, drekki svolítið meira kaffi og prjóni amk. 1. umferð í mynstrinu...mynd fylgir fljótlega!!

Sweet dreams, elskurnar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Flott hjá krökkunum

Úú..... ertu prjónakelling líka ? Ég líka. Það borgar sig að vera með rétt úttalið áður en maður byrjar á einhverri vitleysu. ÉG þoli ekki að þurfa að bakka og rekja upp  Er núna að prjóna kjóla. Eða skokka öllu hledur. Er byrjuð á nr 2 af 5.

Kveðja úr sveitinni.

JEG, 22.5.2008 kl. 22:15

2 Smámynd: Linda litla

Ég gaf engum mitt atkvæði fyrst að íslendingar máttu ekki fá það.

Linda litla, 22.5.2008 kl. 23:12

3 identicon

Ég sofnaði yfir júró og fengu þarafleiðandi íslendingar ekki mitt atkvæði en það sakaði ekki sá ég í morgun. Ég var þess alveg viss að danir mundu ekki komast áfram en hafði rangt fyrir mér, þú hefur örugglega reddað þessu

jóna björg (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 06:33

4 identicon

já júróið maður lifandi... margt sem kom á óvart t.d. að Danirnir skyldi komast áfram... og Svíþjóð.. og sjóræningjarnir... og.. læt staðar numið hér. Þetta er bara gaman. Samt ánægð að tékkarnir skyldi ekki ná að kaupa sig inn með strípakonunum sínum..  Kaus ekki neitt. kkv. frá Nesk.

salný (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 10:50

5 identicon

Ég sveik lit og kaus Portúgal en átti auðvitað að kjósa okkar frændur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband