Leita í fréttum mbl.is

Tómlegt

Mér finnst óttalega tómlegt hjá okkur, eða kannski mest í hjartanum mínu, eftir að María sys. fór í dag. Það var yndislegt að hafa hana þessa 3 sólarhringa, þrátt fyrir að hún væri mikið sofandi...var eiginlega í parkódín-forte-rússi og bara svaf, þessi elska.  En inn á milli vakti hún og þá spjölluðum við og áttum góðar stundir saman.

Snökt...Crying...sakn...en samt, þakklæti og gleði í hjartanu fyrir þennan tímaHeart

--

vestið mittÉg sagði ykkur í gær frá prjónaverkefninum mínu...hér sjáiði útkomuna! 

Ég er bara nokkuð ánægð. Á reyndar eftir að fara almennilega í það, mátaði aðeins áðan áður en ég smellti því í hárnæringarvatn! Very spennó!

Annars er lítið að frétta, komið parket að hluta á gólfið þar sem lak um daginn.  Það er komið í ljós að þetta var eiginlega ekki píparanum að kenna, það var einhvert stykki sem er "tilbúið" í poka sem á að vera með tveimur gúmmíjum og það var bara eitt...svo gerði sem sagt að það lak. Kannski má segja að maðurinn hefði átt að kíkja...en þeir eru vanir að nota þessi stykki og bara smella þeim í...en ætli þeir dobbultékki ekki hér eftir...

--

Fór í Bónus í dag og það var sko stuð! Hef aldrei hitt eins marga sem ég þekki í einni Bónusferð.  Var alltof lengi að kjafta...stákarnir misstu sig...sko ekki úr reiði og frekju...neibb, úr hamagangi...þeir hlupu og skoppuðu...lán að þeir veltu engum glerkrukkum eða álíka um koll...

Jamm.  Svona er lífið hjá mér í dag.  Framundan stanslaus gleði og hamingja InLove Meira um það síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Vá þetta er flott hjá þér kona. Og bara búin. Ég er nú soldið lengur að prjóna enda ekki mikill friður í slíkt.

Knús og kvitt úr sveitinni.

JEG, 23.5.2008 kl. 21:58

2 identicon

það munar ekki um framleiðsluna, meiri myndaskapurinn. vil sjá þig í 'essu kona... myndir myndir.

jóna björg (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 21:58

3 identicon

Vestið er ýkt kúl. Sakna ykkar strax

Knús MK og co

María Katrín (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 22:09

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jösses þú ert svo dugleg.

Hrönn Sigurðardóttir, 24.5.2008 kl. 01:51

5 Smámynd: Linda litla

Þú ert eins og prjónavél... það er alltaf nóg að gera hjá þér, var að spá í það hvort að þú svæfir einhver tímann ??

Linda litla, 24.5.2008 kl. 12:07

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Flott hjá þér.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 25.5.2008 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband