Leita í fréttum mbl.is

Finnst einhverjum þetta vera í lagi???

Tveir dómar sama dag á sama landinu.

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi,
þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun
gagnvart unnustu sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar
*sex hundruð þúsund *krónur í miskabætur. —-

———-Hæstiréttur hefur dæmt Hannes Hólmstein Gissurarson til að
greiða Auði Laxness, ekkju Halldórs Laxness, *eina milljón og fimm*
*hundruð þúsund
* í fébætur fyrir brot á höfundarrétti í fyrsta bindi af
ævisögu Halldórs. Þá er Hannes Hólmsteinn dæmdur til að greiða 1,6
milljónir
í málskostnað.

Hvor konan ætli hafi þjáðst meira, andlega og líkamlega?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nei þetta er ekki í lagi! Samkvæmt íslenskum dómum er manneskjan ekki mikils virði, brjóta mannorð virðist vera í lagi en stela þaaað má als ekki.

jóna björg (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 09:44

2 identicon

Það er sko EKKERT í lagi við dóma í kynferðisbrotamálum!  Rugl og bull.  Hvað er bara að?  Það er líka ótrúlegt hvað skortir alltaf sannanir t.d. þegar börn eru misnotuð, eins og það sé líklegt að verknaðurinn sé tekinn upp eða vitni séu á svæðinu?  Mér finnst ótrúlegt að lítil börn hafi ímyndunarafl til að búa til svona sögur.  Þetta er eitthvað sem börn eiga engan vegin að hafa nokkra vitneskju um arrrrrrgggg  get orðið brjál..... en annars samt bros til þín Sigrún

Þórunn María Örnólfsdóttir (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband