Leita í fréttum mbl.is

Home Sweet Home

Heima er best, eða eins og daninn segir; "Úti er gott, Heima er Best"!!! 

Við áttum yndislega helgi í Úthlíð.  Myndir að hlaðast inn hér.  Veðrið var rosa gott, reyndar ekki sól í gær en mjög milt og gott og frábært að liggja í pottinum.  Krakkarnir nutu sín að hafa heitan pott á veröndinni og fóru í hann oft á dag!  

Við sem sagt slöppuðum af, borðuðum góðan mat, það voru steiktar pönnukökur og ég veit ekki hvað og hvað.  Svo vöktum við FRAM YFIR MIÐNÆTTI!!!!  Og það meira að segja bæði kvöldin!!  Ótrúlegt en satt.  hehe, já það er í frásögur færandi þegar það gerist orðið!!!  

Svo á leiðinni heim komum við við á Selfossi hjá Bryndísi og Sigga.  Yndislegt að koma til þeirra, og gaman að sjá loks húsið þeirra.  Drukkum slatta af kaffi og áttum góða stund með þeim.  Svo ætluðum við að koma líka við hjá Elínu og Brynjari og sjá þeirra hús, en það varð ekkert úr því þar sem þau voru ekki heima.  En við hittum þau nú samt, þau voru heima hjá Sigþrúði í Grafarholtinu og þar var pabbi líka.  Þannig að við komum þar við og drukkum enn meira kaffi og áttum góða stund með þeim líka.

Svo tókum við þessa mynd fyrir Sindra vin okkar. 

100_4650

Sindri, vona að Jóna sannfærist í eitt skipti fyrir öll!!! Glottandi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband