Leita í fréttum mbl.is

FRÁHVÖRF!!!

Tölvan mín bilaði í morgun = ég með fráhvörf!! ...var mega seinvirk og svo slökkti hún á sér, trekk í trekk.  Það var ýmislegt gert við hana í dag; allar myndir brenndar á geisladisk og hent út (fullt af GB sem losnuðu þar...), skönnuð fyrir vírus...tekin í sundur og blásið ryk úr kælikerfinu (sem var það sem olli öllu veseninu), keypt nýtt vírusvarnarforrit og vélin skönnuð aftur.  

Núna: Ný og betri tölva með ekkert vesen...7-9-13...

Svo að öðru, allt öðru.

Systursonur minn, 12 ára, lenti í slysi í dag.  Hann var laminn í hausinn með glerflösku, fullri af vatni.  Hann höfuðkúpubrotnaði, en er ekki í neinni lífshættu eða slíku.  Það blæddi inn á eyrað, eitthvert holrúm við hljóðhimnuna og er óttast að hann heyrnin sé ef til vill sködduð.  Það kemur vonandi fljótlega í ljós hvort það er.  Það var jafnaldri hans sem veitti honum höggið.  Ég veit ekki meir um aðdraganda málsins.  Stráksi fær að fara heim með ömmu sinni í kvöld þar sem hann getur verið í ró og hægt er að fylgjast með honum. 
Systa tekur ekki símann í kvöld.  (...ekki að það sé eitthvað nýtt...fyrir þá sem þekkja hana...)

Ljós og friður... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Já...

SigrúnSveitó, 29.3.2007 kl. 19:34

2 identicon

Æi, þetta er hræðilegt Vonandi að hann nái sér fljótt og að varanlegur skaði verði sem minnstur.

Jóhanna (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 20:02

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vááá hvað er í gangi, manni verður nú bara illt við að heyra svona. Vona að drengnum batni fljótt og vel

Ásdís Sigurðardóttir, 29.3.2007 kl. 20:55

4 identicon

úff en hræðilegt, elsku karlinn. 

jóna björg (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 21:40

5 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk fyrir allar kveðjurnar.  

Arna, hann býr líka úti á landi, í 1800 manna byggðarlagi...og þetta er sannarlega gróft ofbeldi.  Alveg hræðilegt. 

SigrúnSveitó, 29.3.2007 kl. 22:21

6 identicon

Hæ hæ elsku Sigrún. Ég hér að þakka fyrir síðast. Bara frábært að hittast :) Ji...... minn einasti. Blessaður drengurinn að lenda í þessu. Hrykalegt.

Knús Ragnheiður

ragnheiður Björnsdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 22:31

7 Smámynd: SigrúnSveitó

SigrúnSveitó, 29.3.2007 kl. 23:01

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ofbeldið getur gerst hvar sem er ! þar er bara oft meira í borgunum, því þar er fl. fólk. sendi honum frænda þínum ljós og orku og meigi honum batna fljott . sendi líka ljós og frið til þín og hafðu fallegasta dag í heimi

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 30.3.2007 kl. 05:49

9 identicon

Æjjjj grey litli frændi, það á ekki af honum að ganga!!   Fattaði hver það var fyrst þú sagðir að systa tæki ekki símann.  Skilaðu kveðju frá mér!

ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 06:35

10 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk Steina. 

Ragnhildur, það var líka með ásetningi að ég setti þetta með "tekur ekki símann..." inn, vildi ekki nafngreina en þannig myndu þeir sem tilþekkja vita hver af drengjunum þetta væri hahaha, ég er svo útséð Ég skila kveðju.

SigrúnSveitó, 30.3.2007 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband