Leita í fréttum mbl.is

200 metrar

Jamm, bætti mig um heila 50 metra í sundinu!  Og fór í pottinn á eftir og náði að biðja og hugleiða áður en einhver maður kom í pottinn.  Magnað hvað sumt fólk ÞARF að spjalla í pottinum.  En það var nú bara gaman að spjallinu.  Hann yfirheyrði mig, hvaðan ég væri, hvað ég væri að gera og bla bla bla.  Svo þegar ég sagði honum að ég væri að ljúka hjúkrunarfræðinámi í sumar frá Danmörku þá kom náttúrlega upp úr dúrnum að konan hans er dönsk OG hjúkrunarfræðingur!! LoL 

Annars er allt gott að frétta.  Fór í bæinn (sko höfuðborgina) í gær, að hitta nokkrar vinkonur og svo skelltum við okkur á fund á eftir.  Hitti bara 1 sem ég þekki þar, en örugglega 100 manna fundur og rosa gaman.  Sveif heim.  

Jæja, ætla að leggjast í meiri greina-leit, fékk fiff frá Salný mágkonu minni, í athugasemd við síðustu færslu.  Ekki amalegt að hafa fjölskyldumeðlimi í faginu Wink ...svo síma ég kannski bara í föðursystir mína (sem er líka í faginu...og á MINNI deild) og ath hvort ég megi koma og hnýast á netið hjá þeim...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæ sæta.. þú ferð á landspitali.is og þar til hægri getur þú velið bókasafns- og upplýsingasvið og þar komist á tímaritalistann.. og ef þú ert með abstract úr einhverjum greinum en veist tímaritið og tölublaðið það ferðu langt á því í þeim blöðum sem eru í opinni áskrift. En þú getur líka flett upp í tímaritalistanum í heild og séð hvort blaðið er til á bókasafninu.. Ef þú velur gagnasöfn á bókasafnsvefnum færðu upp fullt af gagnasöfnum eins og OVID, Scopus, Proquest sem er oft hægt að komast inn á greinarnar.. mesta vinnan er eiginlega að læra að nota þessar leitarvélar.. Mér finnst eiginlega PubMed með leiðinlegri leitarvélum kannski vegna þess að ég kann ekki á hana. En ég get alveg sagt þér að ef þú mætir á bókasafnið og sest bara við einhverja tölvuna þá mun enginn gera athugasemd við það og það er fínt fólk þarna sem er mjög liðlegt að hjálpa manni. Gangi þér mjög vel. kv. Salný (þetta er allt of langt komment.. kræst)

Salný (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 10:11

2 identicon

já gleymdi að segja þér að þú kemst á öll tímaritin á bókasafninu í gegnum hvaða tölvu sem er á landspítalanum.. þannig að það myndi líka virka vel að fara geðdeildina.. óþarfi að vera að panta greinar frá útlöndum sem fást auðveldlega hér.. Einhvern vegin tekst mér oftast að nálgast þær í gegnum netið..

Salný (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 10:13

3 identicon

takk  kíki á þetta.  Er að fara á símafund með leiðbeinandanum og Annemarie... mjög spennandi allt.

sveitamærin SJÁLF (IP-tala skráð) 29.3.2007 kl. 11:54

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

gangi þér vel í gagnaleit, yndislegt , sund, það er það sem ég sakna frá íslandi

ljós frá mér.

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 29.3.2007 kl. 14:26

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hæ, var að skoða uppskriftirnar þínar, rosa girnilegar, ætla að prófa bollurnar fljótlega og jafnvel kartöflukrásina.

Skemmtilegar líka þessar prjónauppskriftir

Hrönn Sigurðardóttir, 29.3.2007 kl. 16:14

6 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk Gaman ef fólk getur notað þessar uppskriftir.  Mér finnst þær amk æði

SigrúnSveitó, 29.3.2007 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband