15.6.2010 | 21:24
Sit hér...
...ein heima og nýt lífsins í tætlur. Einar í borginni á fundi, Ólöf Ósk á balli á Nasa (jebbs-hún er orðin stór, stelpan) og strákarnir úti. Þarf reyndar fljótlega að fara og finna þá...!
Var að vinna í gær og dag. Hlakka mikið til haustsins í vinnunni, ákveðnar hugmyndir í gangi sem vonandi geta orðið að veruleika. Alltaf gaman að bæta sig í því sem maður er að takast á við. Það eru örugglega ekki allir eins heppnir og ég, að vinna við draumavinnuna sína - held reyndar sko að ég hafi sagt ykkur það áður
Reyndar er eitt sem böggar mig og það er fyrr-umræddur sykur. Sykur fer illa í minn haus, ég fæ útlitsþráhyggju og eins og ég hef áður sagt þá verða 2 kg mjög auðveldlega að 20...jafnvel 200!! Á svona dögum er ég gjarnan 120 kg. Eða sko, það sé ég í speglinum og myndi ekki fyrir mitt litla líf þora á vigtina Þetta er bilun!
Svo nú hef ég ekki borðað sykur í 2 daga. Er ekki búin að ákveða að taka hann alveg út, það kemur í ljós. En ég finn að hann truflar mig í hausnum, fyrir utan að fara illa í liðina og valda höfuðverk. Enda sagði ég um daginn að þetta væri bölvað eitur...amk fyrir mig
Held ég verði aldrei sócial-sykuræta...ekki frekar en Einar geti orðið sócialdrinker...!! En hver hefur sinn djöful að draga og minn er ekki verri en einhver annar sko
Að öðru. Þrátt fyrir elsku mína á vinnunni minni þá er ég orðin þreytt og farin að þrá að komast í sumarfrí...en það er langt í það, ekki fyrr en seinnhlutann í júlí. En það er fullt af spennandi verkefnum í vinnunni fram að því - og allskonar skemmtilegt í frítímanum líka (þá meina ég t.d. GOLF!!!) svo þetta verður eflaust fljótt að líða. Áður en ég get snúið mér við verður sumarfríið búið og alveg að koma jól!!!
En ég hlakka til, hlakka til að eyða sumarfríinu með þeim sem ég elska mest; fjölskyldunni minni og það er gaman að hlakka til, það er stór hluti af gleðinni sko
Framundan er fótboltahelgi, stór fótboltahelgi hér á Skaganum; Norðurálsmótið hjá 7. flokk. Jóhannes er ofur-spenntur enda að fara að keppa! Mikil gleði. Vona samt að ég sé eingöngu óheillakráka fyrir meistaraflokk ÍA...
Jæja, ætla að fá drengina inn...síðasta æfing fyrir mót á morgun!!!
Kveð ykkur með hamingjumola dagsins:
Jákvæð hugsun og athöfn eru óvinir dapurleikans.
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 178737
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Alltaf gaman að lesa bloggið þitt stelpa
Hrönn Sigurðardóttir, 15.6.2010 kl. 22:16
SigrúnSveitó, 17.6.2010 kl. 21:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.