Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Jæja!

Nú eru komnar nýjar myndir inn á heimasíðu barnanna!!!

1. kvöldmáltíðin


Sit hér...

...í nýja húsinu, í eldhússtofunni (køkkenalrum på danskSmile) og þetta er bara ljúft. Þó við séum í 50 m2 minna plássi en í íbúðinni þá finnst mér þetta að mörgu leiti plássmeira því þetta eldhúsrými er svo stórt (tæpir 50m2) og hér er fjölskyldan mest.

Morgunsólin skín inn um gluggan.

Ljúft. Er í fríi í dag og ætla að halda áfram að koma okkur fyrir, og kannski kaupa olíu til að bera á borðið okkar nýja.

Ásdís, nei, íbúðin er ekki seld. Fólkið sem ætlaði að leigja hætti við á elleftu stundu, en það er kona að koma að skoða í dag. Þetta kemur allt, in Gods time. Þarf stundum að minna mig á þetta; "verði Þinn vilji, ekki minn" þegar ég verð óþolinmóð...Tounge 

Annars get ég litlu logið að ykkur, kannski ég kveiki á tölvunni minni í dag og smelli inn myndum... 


Bara smá...

...svo þið haldið ekki að ég sé dottin ofan í tóman kassa LoL

Er ekki búin að setja inn myndirnar enn, hef lítið komið nálægt tölvu undanfarna daga...eins og þið hafið kannski tekið eftir.

Já, svo ég sýni nú að ég kunni mannasiði...; TAKK fyrir allar kveðjurnar. Það er yndislegt í nýja húsinu! Draumur að vera komin inn þó enn sé langt í land með að húsið verði fullklárað. Enda enginn asi, þarna ætlum við að vera!!!

JEG spurði hvað mig hefði svo dreymt fyrstu nóttina...en ég bara var svo þreytt að ég veit það ekki. Hins vegar dottaði ég (held ég) aðeins á sunnudagskvöldið, bara í hálfa mínútu eða svo, og þá var amma Bára mætt með stórt bros á vör!   Svo hún er búin að sjá hvernig við búum í nýja húsinu Heart Og greinilegt að henni líður vel.

Annars er lítið annað að frétta, sól og yndislegt vor, allt grænt og að komast í blóma. Vorið hefur löngum verið mín uppáhaldsársíð.

Best að halda áfram að gera það sem ég á að vera að gera...túttilú...


Örstutt orðsending!

Við erum flutt!!!

Vorum til 2 í nótt sem leið að klára, og svo hófst flutningur kl. 10.00 í morgun! 

Myndir very soon...kannski jafnvel á morgun...en ég ætla ekki að hafa þetta lengra, nóg að gera að taka úr kössum!

Alltaf kaffi á könnunni :) 


Kæri vinur

Bið þig að senda þetta áfram á þinn vinahóp og spyrja hvort þau vilji hafa áhrif á hvort börn verði fyrir kynferðislegu ofbeldi á Íslandi ??

Eftir fyrstu auglýsingaherferð Blátt áfram, kom til mín kona með tárin í augunum og sagðist vilja þakka fyrir að hafa séð auglýsinguna í sjónvarpinu. Sat og horfði á með 11 ára gamalli dóttur sinni sem brotnaði saman og sagði frá kynferðislegu ofbeldi.  

Önnur ung stúlka sagði frá og kom þá í ljós að sá maður var að beita margar ungar stúlkur kynferðislegu ofbeldi og fékk hann dóm í kjölfarið.

Þetta hefur áhrif !

1 af hverjum 5 stúlkum og 1 af hverjum 10 drengjum verða fyrir kynferðislgu ofbeldi fyrir 18 ára aldur(Hrefna Ólafsdóttir 2002)

Styrktartónleikar verða haldnir á fimmtudaginn til að safna fyrir birtingu á nýrri auglýsingaherferð, átakið „Verndarar barna"

Blátt áfram þarf á þinni hjálp að halda, komdu og hlustaðu á eina af þínum uppáhaldshljómsveitum og styrktu gott málefni.

Styrktartónleikar 8 maí 2008
Stórtónleikar á NASA

Styrktar tónleikar á NASA 8 maí 2008.

12 af bestu hljómsveitum landsins koma fram

Húsið opnar klukkan 19:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00

Fram koma:

Nylon, Sálin hans Jóns míns, Ný Dönsk, Ljótu Hálfvitarnir,Buff, Á móti sól, Merzedes club, Rokksveit Rúnars Júlíussonar, Einar Ágúst, Brain Police, Sverrir Bergmann, Bermuda

Miðaverð er 2000 kr og rennur allur ágóðinn til Blátt áfram.

Safnað er fyrir nýrri auglýsingaherferð „Verndarar barna"

Miðasala á Pizzo Pizzería á Grensásveg !!

Blátt áfram þakkar fyrir þetta frábæra framtak!


Bestu kveðjur,
Sigríður Björnsdóttir

Blátt áfram!


Hafiði heyrt um þetta?

Mobile Phone GPS Tracking

 

Try out this mobile phone tracker, it's great! Track any connected mobile phone using a satellite map with coverage anywhere in the world!!!!Log on to www.track-your-partner.com

Frekar sniðug tækni!

--- 

Annars allt gott að frétta hér, er að fara að drösla kössum út í bílskúr, kössum sem innihalda hluti sem við teljum okkur geta lifað án í einhverja mánuði...kemur í ljós...annars er stutt að fara ef okkur vantar eitthvað af þessu. 

Best að vinda mér í verkið...er svo að fara á kvöldvakt...finnst eiginlega að ég ætti að vera í fríi fram að flutningi...en fæ víst lítil laun fyrir það...LoL

---

Já, hey, skvísan kom heim frá Dk í gær, voða glöð að koma heim en sagði samt; "Ég hefði viljað vera viku í viðbót og fara til Cille"! Skil hana vel, að vera næstum við bæjardyrnar hjá vinkonunni, en hún fær að fara út í sumar!!

Ég er rokin...túttilú... 

 


Í dag kveðjum við ömmu Báru

amma BáraHún yndislega amma Bára lést sunnudagsmorguninn 27. apríl sl. Tilbúin að hitta Valla sinn aftur eftir 47 ár og með áform um að hlaupa 2.000 metrana þegar hún kæmi í himnaríki, kvaddi hún þennan heim eftir 92 ár og mánuði betur.

Þar fer einn mesti karakter sem ég hef fyrirhitt á ævinni.

Ég kynntist ömmu Báru fyrst fljótlega eftir að við Einar byrjuðum að vera saman. En samt ekki almennilega fyrr en við fluttum heim frá Danmörku fyrir tæpum tveimur árum. Og enn betur kynntumst við þegar ég fór að vinna á Dvalarheimilinu Höfða sl. sumar, þar sem amma Bára bjó. Amma Bára var fyndnust og skemmtilegust. Orðheppin með eindæmum, hnussandi ef henni mislíkaði eða ef hún bara var gáttuð. Og gáttuð var hún þegar hún spurði mig hvort ég fylgdist ekki með boltanum og ég sagði „nei“. Það átti hún erfitt með að skilja enda fór hún á völlinn þar til hún var komin fast að níræðu.

Handlagin var amma Bára og hafði gaman af hvers kyns handavinnu. Við eigum ófáa hluti eftir hana og Jón Ingvi á prjónaðan bangsa, Mr. Bean (hann er svo líkur bangsanum hans Mr. Bean) sem hefur fylgt honum síðan hann var 2ja ára.

Handlagnin lá í ættinni og hún var ekki lítið stolt af Einari og húsinu sem hann er að byggja. Stolt af Einari sagði hún: „Og hann er ekki einu sinni lærður“ en þó um leið með trega yfir að drengurinn skyldi ekki nýta hæfileika sína til náms. Seint í vetur fór hún að tala um að sig langaði mikið að ná að koma í húsið áður en hún kveddi þennan heim. Með glettni en þó ögn af alvöru bætti hún við: „Ef ég næ ekki að koma áður en ég dey þá kem ég bara samt! Þið látið ykkur ekki bregða þó ég standi allt í einu í dyrunum!“ Amma Bára náði að sjá húsið og var alsæl með það.

Jón Ingvi okkar mun alltaf búa að því að hafa kynnst ömmu Báru. Ófáa eftirmiðdaga kom hann með mér í vinnuna og sat hjá ömmu í tvo tíma. Hún að horfa á Leiðarljós – sem var ómissandi partur af deginum – hann að teikna. Hún hafði svo góða nærveru og það var Jón Ingvi fljótur að finna. Síðustu tvær vikurnar áður en amma Bára dó lá hún í rúminu. Jón Ingvi kom oft með okkur til hennar. Eitt skiptið var hann leiður því hún var orðin svo lasin, en þó um leið svo glaður því amma var svo glöð að sjá hann. Þegar við vorum komin fram sneri hann sér allt í einu að mér og sagði; „Mamma, hún er bara svo skemmtileg“.

Og þannig var það bara, amma Bára var skemmtileg. Hún dreifði gleði kringum sig með jákvæðni og skemmtilegum tilsvörum.

Með þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast henni og notið ríkulega af kærleika hennar, kveð ég hana með vissu um að þegar minn tími kemur mun hún taka á móti mér hinumegin með fallega brosinu sínu og glettninni í augunum.

Elsku Bára mín, ástarþakkir fyrir allt.

Þín

Sigrún.

----- 

Elsku amma Bára.

Þú varst skemmtileg, það var gott að vera nálægt þér, þú varst góð. Takk fyrir prins pólóin og kókið og takk fyrir dagana sem við tvö áttum saman, í íbúðinni þinni á Höfða.

Vertu yfir og allt um kring

með eilífri blessun þinni,

sitji Guðs englar saman í hring

sænginni yfir minni.

(Sig. Jónsson frá Presthólum.)

Ég á eftir að sakna þín.

Þinn

Jón Ingvi.


Sæta syssan mín

Liljan mínÞessa systir hef ég "átt" lengst. Man ekki eftir mér öðruvísi en að hún hafi verið hluti af mér og mínu lífi. Hún fæddist þegar ég var rétt tæplega tveggja ára og við höfum eldað grátt silfur saman hér áður fyrr...en síðustu mörg ár hefur aldrei slettst upp á vinskapinn. Eftir að við þroskuðumst og hættum að reyna að breyta hvor annari, fórum að elska hvor aðra þrátt fyrir að vera ólíkar, þá höfum við eignast vinskap sem er dýrmætari en allir demantar jarðar. Því að við eigum allt saman, alla okkar æsku. Þó við eigum fleiri systkini þá eigum við svo margt saman sem þau eiga ekki, því við erum svo líkar í aldri, við eigum sömu mömmu OG pabba, við höfum brallað svo margt. 

Lífið væri svo miklu fátækara ef ég hefði ekki þig, elsku Liljan mín. 

Við erum skemmtilega ólíkar, hér áður fyrr bað fólk gjarnan um að fá skilríki þegar við sögðumst vera systur! Það sem mér finnst svolítið fyndið er að við þykjum báðar líkjast pabba...þó mörgum þyki það hin mesta fjarstæða að ég líkjist honum og finnist ég miklu líkari mömmu.

EN hvað um það, yndisleg er hún syssa mín (eins og þær reyndar flestar...ef bara ekki allarTounge...en þó hver á sinn hátt).  

Og nú fer ég í bað...blaaaahhhh! 


Ég er...

...þreytt.  Hef samt lítið sem ekkert gert í dag. Eins og allt púður sé úr mér. Hins vegar er íbúðin eins og eyðimörk, tómar hillur, myndalausir naglar.  Spennan eykst jafnt og þétt, eftir því sem laugardagurinn nálgast meir og meir.

Svo er í nógu að snúast á morgun, ætlum að tæta út í sveit um hádegið og sækja Jón Ingva, en hann er að fara í sveitaferð með skólanum. Drengurinn ætlar líka í jarðarför...svo við getum ekki beðið eftir að þau verði væntanlega komin heim fyrir kl. tvö. Svo verður Jóhannes sóttur eftir jarðarförina og fær að vera með í erfidrykkjunni, að sjálfsögðu.

Ygri skvísan okkar er svo væntanleg heim frá Danmörku á morgun, á að lenda um það leiti sem jarðarförin er hálfnuð, svo að sem betur fer sjá aðrir foreldrar um að sækja hópinn... 

En vitiði...ég held ég komi drengjunum snemma í bælið og skreiðlist svo sjálf snemma upp í líka...og í nótt kúri ég ekki ein...eins og síðustu nótt þegar minn heittelskaði var á næturvakt...neibb, í nótt kúri ég í armi hans InLove

Later... 


Epla- og valhnetubaka

Vorum í paró og þar var þessi baka í eftirrétt, mjög góð með þeyttum rjóma:

Epla- og valhnetubaka
Gerir eina köku

  • 2,5 bollar valhnetur (ég miða við 250 ml bolla)
  • 1,5 bolli döðlur
  • 2-3 epli, meðalstór (græn eða ljósrauð)
  • Safi af 1 sítrónu í 2 bollum af vatni
  • 1/2 tsk kanill
  • 1/4 tsk negull
  • 2 msk hunang (acacia) eða hreint hlynsíróp
  • 1/2 bolli hreinn eplasafi
  • 1/4 bolli rúsínur (má nota döðlur)

    Aðferð:
  • Blandið valhnetunum og 1,5 bolla af döðlum saman í matvinnsluvélinni. Blandið í um 40 sekúndur eða þangað til allt er orðið grófhakkað án þess að verða að mauki.
  • Þrýstið botninum í 20cm kringlótt form (gott að setja bökunarpappír undir). Þrýstið bæði botn og kanta. Kælið í ísskáp í um klukkutíma.
  • Skerið kjarnann úr eplinu og sneiðið frekar þunnt.
  • Hellið sítrónuvatninu yfir og geymið í smá stund.
  • Sigtið sítrónuvatnið vel frá eplunum.
  • Setjið eplasneiðarnar á stóra pönnu ásamt kanil, negul, rúsínum, hunangi og eplasafa.
  • Hitið vel í um 15-20 mínútur eða þangað til eplin verða frekar mjúk.
  • Takið eplasneiðarnar og rúsínurnar af pönnuni götóttum spaða þannig að vökvinn leki af.
  • Látið vökvann malla á pönnunni í um 5 mínútur við frekar háan hita.
  • Kælið.
  • Dreifið eplasneiðunum jafnt yfir botninn. Hellið eða penslið vökvanum af pönnunni yfir eplin.
  • Dreifið aðeins meiri kanil yfir ef þið viljið.
  • Það má stinga bökunni í ofninn og hita í um 20 mínútur. Það er gott að bera fram bökuna með hollum ís eða þeyttum rjóma fyrir þá sem borða slíkt.

Uppskrift fengin á CaféSigrún.com

Mæli eindregið með henni!! 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband