Leita í fréttum mbl.is

Bara smá...

...svo þið haldið ekki að ég sé dottin ofan í tóman kassa LoL

Er ekki búin að setja inn myndirnar enn, hef lítið komið nálægt tölvu undanfarna daga...eins og þið hafið kannski tekið eftir.

Já, svo ég sýni nú að ég kunni mannasiði...; TAKK fyrir allar kveðjurnar. Það er yndislegt í nýja húsinu! Draumur að vera komin inn þó enn sé langt í land með að húsið verði fullklárað. Enda enginn asi, þarna ætlum við að vera!!!

JEG spurði hvað mig hefði svo dreymt fyrstu nóttina...en ég bara var svo þreytt að ég veit það ekki. Hins vegar dottaði ég (held ég) aðeins á sunnudagskvöldið, bara í hálfa mínútu eða svo, og þá var amma Bára mætt með stórt bros á vör!   Svo hún er búin að sjá hvernig við búum í nýja húsinu Heart Og greinilegt að henni líður vel.

Annars er lítið annað að frétta, sól og yndislegt vor, allt grænt og að komast í blóma. Vorið hefur löngum verið mín uppáhaldsársíð.

Best að halda áfram að gera það sem ég á að vera að gera...túttilú...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Innlitskvitt og túttilú.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.5.2008 kl. 20:12

2 identicon

Ég er svo glöð fyrir ykkar hönd með flutninginn. Og stolt af ykkur, þið eruð dugnaðarforkar. Held að það verði líka ljúft fyrir ykkur fjölskylduna að vera meira öll á einum stað. Erfitt að hafa Einar alltaf í vinnu, hvort sem er í álverinu eða í húsinu.

Stórt knús til ykkar allra. Lilja

Lilja Guðný (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 20:23

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Indælt að vera flutt Enn og aftur til hamingju með það!

Hrönn Sigurðardóttir, 13.5.2008 kl. 21:15

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til hamingju með þetta allt og gott fyrir ykkur að hafa ömmu Báru hjá ykkur.  Varstu búin að selja hitt húsið'?  knús á ykkur öll  House 

Ásdís Sigurðardóttir, 13.5.2008 kl. 21:25

5 Smámynd: María Katrín Jónsdóttir Ármann

 Gott að heyra !! Var farin að halda að þú hefðir sett sjálfa þig í geymslu

Knús frá okkur

Sjáumst eftir tæpa viku

María Katrín Jónsdóttir Ármann, 13.5.2008 kl. 22:32

6 Smámynd: JEG

Gaman að heyra og gott að allt gengur vel. Kvitterí kvitt úr sveitinni. *meeee*

JEG, 13.5.2008 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband