Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Áran mín...

Við sátum í sitthvorum sófanum í gærkvöldi, ég og Tinna (Kim var flúinn...!!). Ég var eitthvað að segja henni afar merkilega (eða þannig) sögu af sjálfri mér...eða eitthvað.  Allt í einu sagði hún; "Undskyld jeg styrrer sådan på dig, men jeg har lige set din aura!"  Svo sagði hún mér að hún hafi séð svona einu sinni áður.  Hún sagði mér að áran mín væri græn.  

Svo áðan fórum við og goggluðum "grøn aura" og þetta var það sem kom fram;  

"Grøn er harmoni, balance og centrering. Den fortæller om naturglæde, sympati, venskabsfølelse og kærlighed."

Hún sagði að þetta passaði mjög vel BlushSmile


Ekkert að frétta

Enginn skóli í dag.  En á morgun er alvara lífsins tekin við aftur...skóli alveg hreint til kl. 13.45...mikil pína!!! LoL Mér er mikil huggun í þeirri staðreynd að þegar þessi vika og sú næsta eru liðnar þá er SKÓLINN=KENNSLA BÚIN!!!  Ekki meiri skóli fyrir mig!!!  Jú, ég á eftir að lesa helling fram á vor í sambandi við lokaverkefnið, en ég þarf ekki að fara meira í skóla...EVER!!!  Nema mér detti einhver vitleysa í hug eftir einhver ár....hver veit?!!

Á morgun ætla ég að fara á fund!!!  Ég ætla á kaffihús fyrir fund með Hrafnhildi og svo eftir fundinn með öllum hinum líka Smile Mikil hamingja!!!  Hlakka mikið til að komast á *minn* fund aftur.  

Annars lítið að frétta.  Jóhannes er ánægður með lífið og tilveruna, en hann hlakkar til að fara heim.  Við erum líka orðin mjög spennt að fá Jón Ingva til okkar...!!  Bara örfáir dagar núna!!! 


Bara örstutt frá Græsted

Fékk sms frá Maju í dag.  Hún bauð í kaffi ef ég hefði tíma.  Það hafði ég, Maja býr nefninlega í næsta bæ við Græsted; Helsinge...örstutt að keyra...  Og Lára hafði afboðað mig þar sem það var inflúensa í hennar húsi og okkur þótti óþarfi að Jóhannes yrði "udsat" fyrir vírusa þar sem hann er nýskriðinn úr lungnabólgu...

En ég sem sagt fór í kaffi til Maju.  Ég fann allt í einu að ég ÞURFTI AÐ TALA ÍSLENSKU!!!  Ég er ekki vön, og hef aldrei vanist, að tala *bara* dönsku í marga daga!!!  Öll samskipti á dönsku...fyrir utan reyndar samskipti okkar Jóhannesar en þau fara fram á dönsku/íslensku þessa dagana.  Svo ég brunaði til Maju í kaffi, tók Jóhannes og Idu með.  Mjög næs.

Svo komum við heim og borðuðum meiri marens frá í gær, nú var marensinn orðinn mjúkur og góður...miklu betri en í gær...en samt ennþá of sætur...úff, þvílíka bomban.  Mér þykja "sykurlausu kökurnar" betri (sjá uppskriftir hér til hliðar; kókossmákökur, Jólakaka Sollu, Mörtu-terta, döðlu-terta...).  

Svo er bara búið að vera ljómandi huggó í kvella.  Ekta stelpuröfl hjá mér og Tinnu.  Gaman að því.  Kim reyndar flúði fyrir rest...LoL

Jamm, og nú eru bara 5 dagar og 6 nætur þar til Jón Ingvi kemur!!!  Júbbí!!! 


Myndir

Nýjar myndir hérna...

...var að setja inn myndir frá s.l. laugardegi, gærdeginum og deginum í dag.  Jóhannes og Ida algerir ormar...


Róleg heit...

...að mestu.

Við fórum til Blovstrød að heimsækja eina vinkonu mína í morgun.  Hún eignaðst barn í janúar, *lille Malte*.  Hann er 7 vikna í dag.  Algjör moli.  

Svo var það bara heim að skella rjóma á marensinn sem ég bakaði um daginn...og búa til karamellukrem...  Þvílík sykurbomba sem svona marens er...ojojoj...  En bomban sló í gegn...það jafnast fátt á við íslenskar hnallþórur!!!

Áttum yndislegt kvöld, rólegheit og kaffisumbl.  Það er yndislegt að fygljast með Jóhannesi og Idu, þau leika sér ótrúlega vel saman, ekkert vesen...fyrir utan svona týpíska "stelpufýlu" annað slagið í Idu LoL sem er bara fyndin.  *Gider ikke!!*  Það er sko munur á stelpum og strákum, það er alveg á hreinu!!  En vinskapurinn sem er á milli þessara litlu 3½ árs orma er einstakur, og hefur alltaf verið.  Þau ná svo vel saman og höfðu engu gleymt þegar þau hittust aftur eftir 7 mánuði.  Bara stórkostlegt að fá að fylgjast með þeim.  


MEÐvirkni

  • Skilgreining á meðvirkni:

  • Samansafn viðhorfa, viðbragða og tilfinninga, sem gera lífið sársaukafullt. (Sandra Smalley)

  • Einkennir þá sem eru í tilfinningasambandi við fíkil, eiga pabba, mömmu, afa, ömmu eða systkini, sem er fíkill, eða hafa alist upp í tilfinningalega bældri fjölskyldu. (Sharon Wegschieder- Cruse)

  • Tilfinningalegt, hugrænt og hegðunarlegt ástand sem þróast í hópum fólks þar sem ekki má tjá tilfinningar, né ræða persónuleg mál eða vanda í samskiptum. (Robert Subby)

 

Hérna er hægt að lesa ágætis grein um Meðvirkni - Fjölskyldusjúkdóm


Jamm og já

Kominn föstudagur...

Þar sem það var greinilega enginn áhugi hjá lesendum mínum að sjá FLOTTU teikningarnar að framtíðarheimili okkar þá ætla ég ekki að setja þær hér inn!!  En ef það skyldi einhver villast hérna inn og hafa brennandi áhuga þá er hægt að skoða teikningar og svo fylgjast með byggingunni þegar hún fer af stað HÉRNA.  Mér finnst þetta ægilega spennandi allt Wink

Við vöknuðum í rólegheitum kl rúmlega 8 í morgun.  Ég vaknaði við blíðlega stroku frá syni mínum sem horfði á mig og sagði með blíðum rómi; "Mamma, það er ekki nótt lengur"!!  Yndislegt.  

Jóhannes vill ekki tala við pabba sinn, segist vera í fýlu út í hann Crying Við foreldrarnir teljum það vera vegna þess að "pabbi er ekki hérna!!"!!!  En það hlýtur að líða hjá.  Það verður yndislegt að koma aftur heim, fyrir okkur bæði, það er á hreinu.  

Ude er godt, hjemme er BEDST!!!


Öl...

bjórÚff, las á bloggi hjá bloggvini að það eru í dag 18 ár síðan bjórinn var leyfður...mikið upplifði ég mig allt í einu gamla...man vel eftir þessum degi...og vorinu þetta ár...!!!  Rúntaði mikið með vinkonu minni og við drukkum bjór og bruddum cadbury cadburys súkkulaði...mjög gott saman, þótti okkur...

Uss...vona að börnin mín verði ekki eins villt og foreldrarnir voru á árum áður...ojojoj...kannski eins gott að þau lesi ekki alltaf bloggið mitt!!!

Ekki að það að bryðja Cadburys geti talist sérlega villt...en að sitja undir stýri með bjór í "einari" og Cadburys í hinni...

...og svo allt hitt sem var brallað...fyrir og eftir að bjórinn var leyfður...!!  

Verð að segja að ég er mikið fegin að vera ekki þjónn Bakkusar lengur...hann á víst nógu marga þjóna samt... 

 


Frábær dagur...

...með Hrafnhildi.  Yndislegir endurfundir.  Mikið spjallað og mikið kaffi drukkið.  Svo skellti þessi elska bæði í kryddbrauð og skúffuköku...ekki slæmt það Wink

Jóhannes var mjög þreyttur á leiðinni heim, var alveg að sofna í lestinni en náði að halda sér vakandi.  Við fórum í íbúðina í Hillerød og náðum í smá dót sem við áttum þar.  Ætlum ekki meira þangað...þar var kalt og einmanalegt...

Komum við hjá Pippi og Kåre og skiluðum lyklinum að íbúðinni...Kåre var með móral yfir að hafa svikið mig...talaði eitthvað um að það væri ekki mér að kenna (!!!)...þetta væri í hans haus...ég benti honum á að það væri gott að hann sjálfur gæti séð að þetta væri hans sjúki haus sem gæfi honum stress...!!  Og sagði honum jafnframt að ég vonaði að hann myndi ekki líka svíkja Jón Ingva!!! Þá verð ég very crazy!!!! Devil Eitt er að hann svíki mig...annað er ef hann svíkur börnin mín!!!  

En þar sem ég á svo fullt af öðrum góðum að þá slapp ég við að lenda í vandræðum og fékk pössun annarsstaðar.  Svo það er gott mál.  Jóhannes er glaður og það er mikilvægast af öllu að honum líði vel í þessari útlegð okkar... Smile

Gaman að vera til.   


Fimmtudagur...

...og Danmerkurtíminn að verða hálfnaður...Time flyes...

Ég er mikið að spá í hvort ég eigi að deila með ykkur teikningum að húsinu okkar...?!!  Er áhugi fyrir því?  Ég var að tala við Einar, útlitsteikningarnar að húsinu voru að koma og það eru svona smáatriði eins og gluggar sem við vorum að spá í að breyta...  Gott að Einar er vakandi...því ég kíkti bara á þetta og hugsaði; "Vá, þetta er flott!"....En hann sá ýmislegt sem hann vildi breyta...og ég sá það alveg þegar hann sagði það...

Hrafnhildur og égAnnars erum við mæðginin að fara til Kóngsins København að hitta Hrafnhildi.  Gaman, gaman. 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband