Leita í fréttum mbl.is

Frábær dagur...

...með Hrafnhildi.  Yndislegir endurfundir.  Mikið spjallað og mikið kaffi drukkið.  Svo skellti þessi elska bæði í kryddbrauð og skúffuköku...ekki slæmt það Wink

Jóhannes var mjög þreyttur á leiðinni heim, var alveg að sofna í lestinni en náði að halda sér vakandi.  Við fórum í íbúðina í Hillerød og náðum í smá dót sem við áttum þar.  Ætlum ekki meira þangað...þar var kalt og einmanalegt...

Komum við hjá Pippi og Kåre og skiluðum lyklinum að íbúðinni...Kåre var með móral yfir að hafa svikið mig...talaði eitthvað um að það væri ekki mér að kenna (!!!)...þetta væri í hans haus...ég benti honum á að það væri gott að hann sjálfur gæti séð að þetta væri hans sjúki haus sem gæfi honum stress...!!  Og sagði honum jafnframt að ég vonaði að hann myndi ekki líka svíkja Jón Ingva!!! Þá verð ég very crazy!!!! Devil Eitt er að hann svíki mig...annað er ef hann svíkur börnin mín!!!  

En þar sem ég á svo fullt af öðrum góðum að þá slapp ég við að lenda í vandræðum og fékk pössun annarsstaðar.  Svo það er gott mál.  Jóhannes er glaður og það er mikilvægast af öllu að honum líði vel í þessari útlegð okkar... Smile

Gaman að vera til.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband