Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
10.2.2008 | 13:45
Sunnudagur á Höfðabrautinni
Rólegheit hjá okkur hérna. Einar reyndar fór á fætur kl. 05.00 í morgun og í vinnu fljótlega. Ég hins vegar rumskaði við drengina einhverntímann í morgun...held þeir hafi sofið eitthvað lengur en til kl. sjö...en ég vaknaði hins vegar ekki fyrr en kl. 10.30 en þá hringdi síminn minn til að minna mig á að það væri körfubolti...ég reyndi að lokka Jón Ingva af stað, en hann hafði talað um að hann vildi prófa körfuna. Hann vildi ekki fara, sagðist vera hættur við...ætlar að einbeita sér að golfinu sem hann byrjaði í s.l. fimmtudag! Mér finnst bara frábært ef hann finnur einhverja íþrótt sem hann hefur áhuga á, og ég sé hann alveg fyrir mér í golfinu...röltandi um...engin hlaup fyrir minn mann ;)
Við (ég, Ólöf Ósk og Jóhannes) erum búin að fá okkur rölt út í Krónu. Svo ætla ég að rölta með Jóhannes á eftir til tengdó...þarf að losa drenginn við orku ;) hehe...
Svo var ég sko að baka...og mikið er ég þreytt á þessum ofni okkar...!! Ef ég ætlaði mér ekki að flytja þá myndi ég sko fá mér nýjan...ofninn mishitnar svo að kökurnar urðu einum og dökkar sumsstaðar og það er alveg glatað!
En það þýðir ekki að fást um það...best að fara að gera krem á herlegheitin!
Sigrún bloggar...hún er alltaf að...Sigrún bloggar...ég held nú það!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.2.2008 | 14:19
Verður varla farið...
...í borgarferð í kvöld. Ætli við verðum ekki að missa af þessu "Þorrablótssprengidagssaltkjötskvöldi" vegna veðurs. Spáir 18-25 m/sek hérna í kvella og ekki gáfulegt að æða af stað í svoleiðis rok. Mér þótti nóg um að skjótast hérna innanbæjar í gærkveldi...
Dagurinn hefur verið rólegur. Dró Jóhannes og Ólöfu Ósk gangandi út í Krónu áðan...Jóhannes verður sko að fá smá hreyfingu til að hann nái að nota orkuna sína. Annars sofnar hann ekki í kvöld. Jón Ingvi fór til vinar síns í morgun og ég hef ekkert heyrt, svo ég geri ráð fyrir að þeir uni sér vel.
Núna ætla ég að efna gefið loforð, loforð sem ég gaf Jóni Ingva, og baka kryddbrauð!
200 g hveiti
110 g haframjöl
100 gr sykur (eða 50-75 gr Agave)
1 tsk natrón
2 tsk kanill
½ tsk negull
2½-3 dl mjólk
Bakað v. 180-200°C í 1 klst.
---
Í gærkvöldi, eða öllu heldur seinnipartinn í gær, gerðum við okkur minipizzur í matinn. Ólöf Ósk og Jóhannes vilja reyndar ekki pítabrauð, þau fá mexíkanskar pönnukökur í staðinn og setja á þær, og þykir þeim það hið mesta lostæti.
Slafr...rosalega voru mínar góðar...pepperóní og gráðosti.Ég bý sósuna til sjálf, blanda saman tómatpuré, tómatsósu og pizzakryddi. Snilldargóð sósa, með bragði!!
--
Best að hætta þessu röfli og smella mér í baksturinn!!!
Eigið góðan laugardag, elskurnar mínar.Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.2.2008 | 14:43
Verð að sýna ykkur...
...ég var að panta mér "lógó" eða vörumerki, til að merkja með, þá hluti sem ég bý til.
Alveg í mínum anda, finnst mér. Fékk aðstoð og álit frá Lilju sys.
Jiiii, hvað verður gaman að fá þetta í hendurnar (eftir 2-3 vikur) og geta merkt hlutina. Héðan í frá fer EKKERT frá mér ómerkt!!! Og hana nú!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
8.2.2008 | 12:04
Múúúúú (på dansk; Moooooo)
Nei, ég segi nú bara svona
Allt gott að frétta hérna. Fór á fætur og keyrði prinsessuna á sundæfingu í morgun...hún átti sko að mæta 5.30!!! Persónulega finnst mér þetta BILUN!! Þess vegna var ég mjög hlynnt því að hún hætti á morgunæfingum. Venjulega eru morgunæfingar kl. 6.00-7.30 á miðvikudagsmorgnum og frá 7.00-9.00 á laugardagsmorgnum en hún er hætt á morgunæfingum. Æfingin í morgun er liður í æfingahelgi hjá þeim, þar sem það er mót um næstu helgi og laugin hér hefur verið mikið lokuð undanfarið. Svo hún fór í morgun og fer í fyrramálið og á sunnudagsmorguninn...
Nema hvað. Ég fór aftur heim að sofa. En ekki hvað?!!! Persónulega finnst mér 5.30 vera HÁnótt!!! Man þá tíð þegar minn heittelskaði fór alltaf á fætur kl. 4.00...hann talaði um 4 á morgnana...ég talaði um 4 á nóttinni!!! Ég held aldrei að ég verði A manneskja!!!
Hef stundum heyrt talað um að það sé ekkert sem heiti A og B manneskjur...og þetta sé LETI og bla bla bla. En nú "eigum" við 4 börn, 3 sem búa hjá okkur. Þessi tvö eldri (af þessum þremur) hafa alltaf verið morgunhanar og hafa sofnað snemma og þurft mikinn svefn. Svo kom gormurinn okkar í heiminn. Hann hefur alla tíð getað sofið frameftir, svo framarlega sem systkini hans ekki vekja hann. Og hann er miklu hressari á kvöldin en hin tvö...oft getur hann ekki sofnað kl. 8 þó hin tvö séu löngu dottin útaf.
Jón Ingvi...hann er mesti morgunhaninn...vaknar aldrei seinna en 7 og oft milli 6 og hálf 7... Ólöf Ósk er aðeins farin að geta sofið lengur...enda orðinn hálfgerður unglingur ;)
Nóg um svefnvenjur.
---
Sit og bíð eftir símtali frá Lilju sys...Eysteinn hlýtur að fara að verða búinn í mat...þá ætlar hún að hringja sko ;) Alltaf gaman að heyra í henni. Hlakka geðveikt til að fara austur og vera hjá henni í heila viku!!! Og hitta alla hina líka. Eiga góðan tíma með múttu og stjúpa og systkinum mínum og fjölskyldum þeirra...það verður alger SÆLA!!!
Svo ætla ég að hitta Gumma bekkjarbróðir minn. Hann ætlar að taka sér tíma til að hitta mig og drengina, en drengirnir eru yfir sig spenntir að hitta hann. Við hlustum mikið á diskinn hans Gumma og þykir strákunum mikið sport í að mamma þeirra skuli þekkja þennan frábæra mann!!! Á blogginu hans er hægt að heyra tvö lög af disknum hans, mæli með því!!!
---
Ekki meir í bili.
Ljós&kærleikur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.2.2008 | 19:18
Fimmtudagur...
...og alvöru vetur!!
Ég hef sagt ykkur frá því áður. Ljúfum minningum úr sveitinni heima. Vetur. Snjóstormur. Rafmagnið farið. Jón Þór í fjósinu...að mjólka með vararafstöð...eða eitthvað. Mamma með okkur systkinin í eldhúsinu. Kveikt á gömlu olíulömpunum. Mamma að lesa íslenskar þjóðsögur.
Þessar minningar koma alltaf þegar úti er vetrarveður. Alvöru vetrarveður!
--
Ég átti von á 3 valkyrjum í kvöld, í saumó. Valkyrjur er hópur kvenna sem ég kynntist á netinu. Íslenskar mæður í útlöndum. Við erum nokkrar sem erum fluttar heim og hittumst á 2-3 mánaða fresti. Mjög skemmtilegt.
En, þær eru hættar við...búið að fresta um 2 vikur vegna veðurs. Enda ekkert spennandi að æða út í óvissuna.
Hins vegar er notalegt að vera inni, og þurfa ekkert að fara út.
Ætla að horfa á Dr. House og CSI í kvöld og prjóna!! Óþarfi að sleppa því að prjóna þó enginn verði saumó!!
--
Var annars að koma heim úr púltíma...shit hvað þær píska mann áfram! Eftir eitt tækið, svona fótatæki eitthvert, þá ætlaði ég ekki að standa undir mér...lærvöðvarnir voru bara búnir á því! En það hafðist og ég fór aðra 2 hringi ;) hehe...
--
Ég er komin í 5 daga frí!!! Og eftir helgi hitti ég Rakel vinkonu!!! Rakel bjó í Græsted, sama bæ og við í Danmörku, en býr núna í Smidstrup Strand, 6 km frá Græsted. Við kynntumst sem sagt þar. Hittumst fyrst í Brugsen! Mikið hlakka ég til!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.2.2008 | 14:05
Agave
Langar að svara Jónu Hörpu, og já, bjóða þig velkomna. Gaman að fá gamla kunningja í "heimsókn".
Agave er ekki sætuefni, í þeim skilningi (ég sé fyrir mér "kunstige sødemidler" þegar talað er um sætuefni). Agave er unnið úr kaktusplöntu, eftir því sem ég best veit. Og er víst mjög hentugt fyrir fólk með diabetes, þar sem það hækkar ekki blóðsykurinn á sama hátt og sykur gerir.
Ég er sjálf ekki með diabetes...en sykursjúk = sjúk í sykur = sykurfíkill. Ég get ekki notað sykur þar sem hann hækkar blóðsykurinn alltof hratt og kallar á meiri sykur = fíkn. Hins vegar finn ég ekki fyrir neinni fíkn þegar ég borða t.d. eitthvað með agave í, eða ef ég nota þurrkaða ávexti (þá aðallega döðlur og apríkósur) til að "sæta" með.
Kona sem vinnur með mér á stelpu með diabetes og hún sagði mér að þeim hafi einmitt verið sagt frá Agave. Hún fékk einmitt uppskriftir hjá mér. Hér til hliðar á síðunni eru ýmsar uppskriftir, m.a. kökuuppskriftir þar sem notað er agave.
Agave er selt hér t.d. hjá Himneskri Hollustu (og í Bónus og Hagkaup undir merkjum Himneskrar Hollustu) eins er hægt að fá Agave í apótekjum og á fleiri stöðum. Ætli sé ekki hægt að nálgast það í heilsubúðum í Danmörku. Ég var ekki búin að kynnast Agave þegar ég bjó í Danmörku, svo ég veit ekki alveg.
Vona að þetta hjálpi eitthvað. Og endilega skrifaðu meira hérna eða sendu mail ef þú hefur fleiri spurningar.
---
Og talandi um sykur...
Krakkarnir voru að koma heim úr 3½ tíma röltu um bæinn...með FULLT af sælgæti!!!
Og nei, Jóna, það er ekkert sem heita öskupokar hér á landi lengur!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.2.2008 | 10:05
Fastelavn...er mit navn...
Jamm...eða bara öskudagur.
Gleðilegan öskudag, elskurnar mínar, nær og fjær.
Jóhannes fór í leikskólann í morgun, í Tomma&Jenna náttfötunum sínum. Ég ætla ekki að tjá mig um þetta mál að á leikskólunum megi ekki koma í grímubúning...!! Búin að gremjast yfir því áður og nenni því ekki meir!! Eftir þennan öskudag eigum við bara eftir einn leikskólaöskudag!! Spáið í það...úff...bráðum fer að ljúka leikskólatímanum hjá okkur!!! Reyndar 1½ ár í það...en eins og tíminn flýgur...!!
Nóg um það.
Hér myndir af stóru börnunum á leið út í bæ að syngja og tralla í fyrirtækjunum!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
5.2.2008 | 21:51
Einmitt!
Sko, Hrönn, maður á einmitt að segja "ser godt ud". Engar enskuslettur hérna!!
Hugarfluga, ég bjó í 9 ár í Danmörku, frá 1997-2006. Svo er ég sko fædd í Danmörku og bjó til 18 mánaða aldurs...svo ég er eiginlega dönsk...!! Eller ikke...!! hihi...
---
En það sem mig langar að syngja hátt og snjallt fyrir ykkur er þetta:
GLEÐI, GLEÐI, GLEÐI,
GLEÐI LÍF MITT ER.
ÞVÍ AÐ ÆÐRI MÁTTUR
ÞAÐ GEFIÐ HEFUR MÉR.
ÉG VIL AÐ ÞÚ EIGNIST ÞETTA LÍÍÍÍÍF
ÞVÍ AÐ ÞAÐ ER:
GLEÐI, GLEÐI,
GLEÐI ALLA TÍÍÍÍÐ!!
---
Þar hafiði það!!
Lífið er bara stórkostlegt! Yndisleg gjöf sem ég hef fengið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.2.2008 | 19:08
hahaha...
...ég...
Var byrjuð að skrifa fyrirsögn á færsluna: Jeg keder mig...
Jamm...fattaði á síðustu stundu að ég var að skrifa á dönsku! Þetta er dálítið rétt hjá þér Jóhanna...ég er næstum jafn dönsk og norðfirsk...!!
Ég eiginlega fattaði fyrirsögnina þegar ég fór að stroka hana út, því mér leiðist eiginlega ekki. Er frekar bara eitthvað eirðarlaus, krakkarnir að horfa á barnatímann, Einar farinn til Rvk á fund...og ég að bíða eftir að fara á fund.
Held ég setji tónlist á "fóninn" og prjóni smá áður en ég fer...
Var ég búin að segja ykkur að ég byrjaði upp á nýtt á kjólnum?! Ákvað að próna hann úr einföldum plötulopa í stað tvöfalds!! Á eftir að mæla og sjá hvort þetta passi allt!!!
Sí jú!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.2.2008 | 10:42
Sprengidagur
Jóhannes er heima í dag. Þessi litli gormur sem borðar allan mat...nánast allan mat. Því hann getur ekki hugsað sér að borða saltkjöt. Konurnar hans í leikskólanum ráku upp stór augu í gær, þegar hann tilkynnti að hann yrði ekki í mat í gær því hann borðaði ekki saltkjöt!! Takk fyrir!
Þar sem hann, eins og ég segi, borðar venjulega allan mat með bestu lyst, þá leyfði ég honum að vera heima í dag og sleppa við þetta. Hann ætlar samt með mér upp í vinnu í dag...því mig langar geðveikt í saltkjöt og baunir! Slafr...þetta er eiginlega það besta sem ég fæ!!! Venjulega eldar Einar þetta, en nú er hann á næturvöktum, og fer svo á fund í bænum í kvella...svo það verður víst ekkert úr slíku. Svo ég treysti bara að kokkurinn geri góða súpu...!!
Við mæðgin röltum út í Curves í morgun. Konurnar sem þar voru, voru yfir sig hrifnar af stubbnum mínum. Þótti hann sérlega þægur og góður strákur, og svo spjallaði hann við þær yfir kaffinu. Alger sjarmör ;)
En nú er kaffið lekið í gegn...svo ég ætla að kaffast smá...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 178737
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar