Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
11.6.2007 | 22:00
Fallega nýgifta parið
Fallega systirin mín, Lilja og hennar heittelskaði Eysteinn.
Elskurnar mínar, nú kemur það á bloggið...TIL HAMINGJU!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.6.2007 | 19:20
Ég verð þreytt við tilhugsunina...
...hugsið ykkur, sexburar!!!
Verð að segja að ég er þakklát fyrir að hafa geta eignast börnin mín öll án hjálpar frá vísindunum. Það leit út fyrir það á tímabili (löngu áður en ég kynntist Einari) að ég myndi þurfa hjálp, en svo fór ég á Stígamót...stuttu síðar hitti ég Einar...og *búmm*; eitt stykki Ólöf Ósk kom undir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.6.2007 | 17:32
Skiptir ekki máli...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.6.2007 | 17:13
Jamm...
...sit hér enn...og reyni að finna eitthvað gáfulegt að skrifa. Finn ekki það sem ég ætlaði að nota...kannski hef ég bara ekkert átt það...kannski dreymdi mig bara að ég ætti þessa pappíra...held samt ekki...
...finn vel hvað ég er enn með vöðvabólgur eftir margra vikna setu yfir bókum og tölvu. Ég sem hélt að þetta væri bara horfið eins og dögg fyrir sólu en nei. Þarf meira en viku pásu frá setum til að jafna mig. Kannski ég ætti að fara að taka upp á því að synda...náði aldrei nema tveimur skiptum þarna í vetur... En það verður samt að bíða þar til ég kem heim frá DK þar sem Jón Ingvi má ekki fara í sund fyrr en eftir 2 vikur...og hann myndi verða svo leiður ef ég færi í sund...og ekki vil ég það.
Hvað lestur varðar þá skil ég ekki hvaðan þessi hugdetta um að læra meira kom þarna um daginn...biopati hvað!!! Neibb, nú hlakka ég til að ljúka prófinu og svo að takast á við hjúkkulífið
Er einhver sem veit eitthvað um þennan nýja ´karakterskala´ þeirra dana? Sá að nú getur maður fengið 12...áður var 13 hæst en ekki hægt að fá 12. Hvers vegna geta þeir bara ekki haft 1-10? Skil ekki þennan 7-skala...svo getur maður fengið -3, 00, 02, 4, 7, 10, 12. Ef ég skil þetta rétt þá er nóg að fá 02 til að ná. Skil ekki.
Ég var að skoða þetta eitthvað á netinu og þar stendur að þessu hafi verið breytt úr ´13-skalaen´ í ´7-skalaen´ til að auðvelda málin...í Evrópu...skil ekki baun í þessu. Ætli íslenski 1-10 skalinn sé þá ekki líka meingallaður?
Jæja, ætla að lesa meira...alveg þangað til herramennirnir mínir þrír koma heim...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.6.2007 | 10:38
Mánudagur...ekki til mæðu :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2007 | 23:33
Afmæli og fleira
Já, það eru ýmsir sem fagna einhverskonar afmæli í dag.
Valtýr (litli bróðir Einars) og Hulda eiga eins árs brúðkaupsafmæli í dag. Sendi þeim mínar bestu kveðjur í tilefni dagsins
Svo fagna vinir Bill & Bob 72ja ára afmæli. Stórkostlegt alveg. Til hamingju með það, allir vinir Bill & Bob
Ég og börnin fórum á Víkingahátíð í Hafnarfirði í dag. Jón Ingvi er búinn að bíða eftir þessum degi í heilt ár!! Loksins kom aftur Víkingahátíð. Hann keypti sér m.a. rúnahring, hring á löngutöng með nafninu sínu rituðu með rúnum.
Molinn okkar týndi hringnum sínum í kvöld á fótboltaleiknum (ÍA 3 - KR 1). En hann tók því ótrúlega rólega, ætlar að kaupa sér nýjan hring á næsta ári!!
Annars áttum við góða tíma þarna saman, og tengdamúttan mín kom með. Voða nice. Alltaf yndislegt að eyða tíma með henni.
Svo var brunað heim, lentum á Skaganum 16.40...brunuðum heim og náðum í dót og beint til Benna og Jónu með börnin í pössun...ég brunaði heim aftur, náði í Einar og svo brunuðum við í bæinn aftur, í paró. Áttum YNDISLEGA kvöldstund með YNDISLEGU fólki. Elskurnar mínar, ef þið lesið...ÁSTARÞAKKIR fyrir kvöldið
En núna ætla ég að skríða í bælið. Á morgun er lestur og skrif...ekki margir dagar til stefnu fyrir próf...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2007 | 19:36
Góður dagur
Ég og Erla sys fórum í höfuðborgina í dag og höfðum Jóhannes og Sigþrúði með (bæði jr.). Leið okkar lá í Grafarvoginn að heimsækja gamla vinkonu. Mikið svakalega var gaman. Fyrir það fyrsta alveg yndislegt að eyða deginum með henni syssu minni, og svo alveg svaka skemmtilegt að endurnýja kynnin við Siggu Helgu. Hreinasta sniiiild.
Stelpur, takk fyrir yndislegan dag
Svo er Bára komin, loksins. Krakkarnir ljóma af gleði enda búin að sakna stóru systur sinnar MIKIÐ!! Þannig að það eru gleðilæti í kotinu. Yndislegt alveg.
Ekki nóg með það heldur erum við svo heppin að Benni, Jóna og Karen Edda þáðu boð okkar um matarboð. Yndislegt að fá þau í heimsókn. Svo Einar er búinn að kveikja upp í grillinu, kartöflurnar malla í ofninum og sósan á kjötið (a la Ingvar) að verða klár.
Knúúúússssssss.........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.6.2007 | 19:24
Vil hér með vekja athygli á:
SIGGU!!! Sigga er flottust!! Sigga er sko í familíunni svo auðvitað er hún flottust
En öllu gríni sleppt þá syngur Sigga eins og engill, eins og þið getið heyrt hér, og svo getið þið lesið um hana hér. Ef ykkur vantar t.d. söngkonu í bryllúpp eða álíka þá er Sigga málið!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.6.2007 | 19:04
Best að blogga aðeins meira
Verð að deila með ykkur deginum mínum, sem er búinn að vera alveg frábær.
Sko...hehe...
Jamm og já, hjólaði með Jóhannes á leikskólann þar sem hann var alsæll í dag. Svo ánægður með að vera í mat, sagði Jónína. Enda ELSKAR hann matinn á leikskólanum.
Svo fórum vð út á hjóla, ég, Ólöf Ósk og Jón Ingvi. Ólöf Ósk var að fara til tannsa og ég og Jón Ingvi fórum í næstum því allar fatabúðirnar á meðan. Mig vantar sko föt...föt til að vera í við brúðkaupið um næstu helgi og ég útskriftinni minni...en það var ekkert að fá. Mig langar í pils, en ég er ekki tilbúin að borga 9990 kr fyrir eitt pils..!!! Svo ég kannski reyni að skella mér í höfuðborgina við tækifæri...
En það var æði að hjóla um bæinn í blíðskaparveðri. Svo keyrðum við upp í Seljuskóga á eftir og hittum Einar sæta. Hann hafði sent hugskeyti sko...og við fórum á kaffihúsið fína. Algert æði að eyða hádeginu á kaffihúsi með elskunni minni og ormunum tveimur.
Heim fórum við að lokum. Einar reyndar upp í Seljuskóga, brjálað að gera þar. Svo hringdi Jóna til að athuga hvort ég væri heima. Svo kom hún í kaffi og spjall. Svo gaman.
Þegar Jóna fór þá þeyttist ég út í garð og sótti rabbabara...er að prófa eina uppskrift að rabbabara"pie" með agave sírópi í staðinn fyrir sykur. Mjög spennandi. Hún mallar í ofninum...
Já, svona er dagurinn minn búinn að vera. Ég er full af þakklæti, og finnst hjartað mitt vera að springa úr gleði og kærleika. Yndislegt líf.
Framundan er spennandi tími. Á morgun förum við Erla sys. að hitta gamla vinkonu, svo er paró á sunnudaginn, vinna í fyrirlestrinum í næstu viku, svo koma mamma&Jón Þór líka í næstu viku, brúðkaup, jamm og svo margt fleira.
Yndislegt barasta alveg hreint.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2007 | 17:55
steypan
Jæja, þá eru komnar myndir frá í gærkvöldi, grunnurinn steyptur. Og svo af Einari, tekið í morgun, þegar hann var byrjaður að rífa utan af sökklinum.
Endilega kíkið HÉR!!
Frábær dagur í dag. Mikið svakalega er ég glöð og ánægð með lífið mitt. Meira um það...kannski í kvöld...ætla að fá mér kaffisopa...eða 'pæjuhopa' eins og ég sagði víst þegar ég var lítil...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 178853
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar