Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
20.3.2007 | 09:31
Leikskólamálin
Magnað. Á leikskólanum, Ramsager, í Danmörku, sem Jóhannes fékk að vera á þá daga sem ég var í skólanum s.l. 4 vikur, var Jóhannes ekki feiminn, hann faldi sig ekki bakvið mig á morgnana og ég þurfti oftar en ekki að leita að honum til að geta sagt bless við hann. Þrátt fyrir að hann hafi verið í burtu í 7 mánuði. Og svona var þetta líka meðan hann var þarna, einstakasinnum þurfti hann á því að halda að ég gæfi honum tíma og sæti aðeins með honum, en oftast var hann hlaupinn í leik strax.
Svona er þetta ekki hér. Nei, hann felur sig á bakvið mig á hverjum morgni, og hefur gert frá upphafi. Það gerði hann líka í morgun (hann gerði það ekki einu sinni 1. daginn í Ramsager þarna um daginn). Það tekur yfirleitt frá 3-10 mínútur fyrir hann að vilja sleppa mér.
Skildi honum líða betur í Ramsager en á leikskólanum hérna heima?
Það er samt ekki eins og hann sé óánægður á leikskólanum. Ég skil þetta ekki alveg.
Hins vegar féll mér mun betur við Ramsager, og ég spurði einmitt leikskólastjórann þar að því núna hvort það væri möguleiki að við fengjum Ramsager með til Íslands...
Mér finnst miklu skemmtilegra frjálsræðið þar en skipulagningin hér... Mín upplifun af leikskólanum hér er að það er allt ótrúlega ferkantað og í kössum...enginn sveigjanleiki...amk. lítill.
Kannski smita ég af mér á Jóhannes? Ég reyni að gera það ekki, en hver veit. Ég tala vel um leikskólann þegar hann heyrir þó ég hafi stundum verið bullandi, sullandi reið... Mér líkar vel við flest starfsfólkið á deildinni, svo ég er ekki óörugg að skilja barnið mitt eftir þarna. En kannski finnur hann einhverja strauma frá mér...ég verð að klifja þetta mál...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
20.3.2007 | 07:36
Vond mamma á þriðjudegi...
...eða það þykir eldri syni mínum...ég nefninlega neita að keyra þau í skólann!!! Vil að þau hreyfi sig, noti fæturnar...!!! Fullkomið óréttlæti, og ótrúlega erfið mamma...svona er ég Tek það fram að þau geta labbað upp í skóla á innan við 10 mínútum...
Annars er lestur verkefni dagsins. Svo hringir Annemarie kl 10. Spennandi verkefni framundan, nefninlega að undirbúa "problemformulering" (sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir á íslensku) sem á að skila inn í næstu viku og til að geta útbúið hana þá þurfum við að lesa slatta... Og leita að hinum ýmsu fræðigreinum og komast að því hvort einhver annar hafi gert svipaða könnun.
Jamm, sem sagt nóg að gera.
Svo ætla ég líka að hafa samband við yfirhjúkkuna á Höfða í samb. við vinnuna. Var að frétta að það væri mjög erfið vinnan þar.
Jæja, best að koma börnunum í skóla og leikskóla svo ég geti LESIÐ!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.3.2007 | 17:16
Eyrun okkar mæðgina!!
Fórum með Jón Ingva til eyrnalæknis í morgun. Úrskurðurinn var sá að drengurinn þarf rör...það er svo mikill vökvi að hann heyrir sennilega ekki nema hálfa heyrn!! Svo andar hann svo mikið með munninum að það bendir allt til að það þurfi að taka nefkirtlana líka.
Gott að það er komið í ljós. Hins vegar gerir þetta að ég er ekki öldungis sátt við eyrnalækninn sem við höfum treyst á undanfarin mörg ár. Það er ekki nema tæpt ár síðan ég fór með drenginn til hans, einmitt út af þessari munnöndun, mig grunaði að það væru nefkirtlarnir...en nei, hann vildi ekki meina að það væri... Og hann mældi heyrnina og sagði að það væri allt í góðu... Hins vegar vill þessi læknir sem við vorum hjá í dag meina að þetta sé "ástand" sem sé búið að vara lengi (einhverjir kalkblettir og æðar sem koma eftir langvarandi vökvasöfnun).
Svo þetta með að hann sé svolítið utan við sig og í eigin heimi er kannski bara alls ekki málið... Það magnaða er að við höfum líklega öll vanið okkur við þetta, þar sem þetta hefur smá versnað... Magnað hvað er hægt að venjast öllu...!!!
En nú verður vonandi fljótlega breyting á og drengurinn fær heyrn.
Svo mældi doksi þrýsting í mínum eyrum til að sína mér hvernig "eðlileg kúrfa" liti út...en mín var sko heldur ekki eðlileg...svo ég fékk tékk með í kaupunum...og það var stíflað báðu megin...og alveg lokað öðru megin...svo það er ekki skrítið að ég hafi stundum haft á tilfinningunni að það væri lokað fyrir... Svo ég fékk ströng fyrirmæli (ekki í fysta sinn) um að ég mætti alls ekki nota eyrnapinna...ég hef líka hamið mig ansi vel síðan það var "ryksugað" úr eyrunum á mér fyrir einhverjum árum...!!! Eftir moksturinn var kúrfan mín eðlileg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.3.2007 | 20:08
Valdís!!!
Eitrið þitt er komið í hús!!! Svo nú er bara fyrir þig að finna tíma til að koma í kaffi Hlakka til að sjá þig fljótlega!!!
Blogga meira very soon. Yndislegt að vera komin heim. Vá, hvað ég á fallegan mann, fallega dóttir og fallegt heimili!!! Vissi það reyndar alveg...!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
17.3.2007 | 16:51
Roskilde og lítil prinsessa fædd
Elsku vinirnir okkar, Jóna og Sindri, eignuðst prinsessu í nótt. Sá myndir af henni áðan, þvílíkur moli. Elskurnar mínar, til hamingju með gullmolann ykkar
Annars er það af okkur mæðginum að frétta að við erum stödd í Roskilde hjá Jónasi og Áslaugu. Kvöddum Tinnu, Kim og börn með trega í morgun. Ég og Tinna felldum nokkur tár...mikið finnst mér þetta erfitt Erfitt að kveðja svona yndislega vinkonu og ég á eftir að sakna hennar mikið.
Við sóttum Jón Ingva til Camillu, kvöddum þau feðgin að sinni, Jón Ingvi fer líklega með þeim á "Sankt Hans bál" í sumar. Svo þau skötuhjú geta látið sér hlakka til að hittast aftur eftir rúma 3 mánuði!
Svo var það Hilleröd sem var næst á dagskrá. Við fórum í kaffi til Betinu, sem var búin að hlakka mikið til að að sjá Jón Ingva. Síðan var stefnan sett til Pippi og Kaare. Pippi keyrði okkur svo til Roskilde.
Já, svo er það Ísland Á MORGUN!!! Ji hvað ég hlakka mikið, mikið til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.3.2007 | 22:36
Almost done...
Á eftir að pakka smá...leggjum í ´ann kl 9 í fyrramálið, sækjum þá Jón Ingva, keyrum til Hillerød í smá kaffi hjá Betinu, svo er það Roskilde!! Verðum hjá Jónasi og Áslaugu síðustu nóttina.
Svo er það Home Sweet Home på søndag!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.3.2007 | 07:47
Taug í klemmu...
...vaknaði í morgun með skrítinn verk, eins og það væri eitthvað í klemmu. Hrykalega sárt, verkur niður í rass og læri Aldrei fengið svona áður. Vona að þetta sé bara ímyndun og hverfi fljótt!!!
Ég og Tinna létum okkur dreyma um að við gætum skroppið í dekur. Dekur á að skiljast hér sem; *liggja í heitu baði, fá jarðaber með súkkulaði og ískalt danskvatn með, leggjast svo á bekk og fá allsherjar nudd* = dekurdagur fyrir *gamlar*, þreyttar konur!!!
Í dag þarf ég að pakka, sem er náttúrlega gaman því það þýðir að við erum alveg að fara heim!!! Jón Ingvi vill reyndar alveg vera lengur...já, bara 'forever' ef út í það er farið... Hann fór að heimsækja Nikolaj vin sinn í gær, og fékk að gista. Ég sótti hann svo áðan. Þau höfðu vaknað snemma til að syngja afmælissönginn fyrir William (litla bróðir Nikolaj) sem er 3ja ára í dag. Hér er hefð að vekja afmælisbarnið með söng, svo eru borðaðar bollur...sumsstaðar eflaust 'lagkage' (rjómaterta á okkar máli). Svo ætlar Jón Ingvi að fara og gista hjá Camillu aftur í nótt og ég sæki hann upp úr kl 9 og þá hefst fyrsti hluti heimferðarinnar...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2007 | 16:15
Kennslu lokið!!!
Það var skrítin tilfinning í morgun að keyra í skólann, allra síðasti kennsludagurinn í náminu!! Undarleg tilfinning að nú á ég ekki eftir að sjá margar af *kerlunum* meir. Kerlur sem hafa verið hluti af mínu daglega lífi meira og minna í 3 ár. Sumar meira en aðrar og sumar þeirra á ég eftir að hitta í framtíðinni. Aðrar ekki. Og það er svo sem ekki söknuður af þeim öllum...en þannig er lífið bara.
Við fórum og hittum Lis, leiðbeinandann okkar. Komum klókari út, sem er gott. Erum tilbúnar í slaginn, enda þýðir ekki annað. Það getur vel verið að verkefnið eigi *bara* að vera 30 bls. en við þurfum að gefa upp 1200-1500 lesnar blaðsíður...svo næstu 2½ mánuðir verða ekki mánuðir sem ég ligg í leti... Hlakka til að takast á við þetta verkefni, en ég hlakka sannarlega líka til þegar það er búið og ég get farið að *bara* vinna...
Nú fer að styttast í heimferð. Ég hlakka mikið til að koma heim, hlakka til að hitta og knúsa prinsessuna mína og kúra í armi elskunnar minnar.
EN, ég finn samt að það er smá kvíði í mér að segja bless við Danmörku aftur. Ég segi eins og Jón Ingvi; "Ég á miklu fleiri vini hér". En ég veit að þetta er ekki endanleg kveðjustund, ég á eftir að hitta þessa vini mína aftur...og aftur...og aftur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.3.2007 | 16:07
Afmælisbörnin tvö
Krúttin, þau Hulda María og Gunnar eru afmælisbörn dagsins.
Þessir sætu molar eru 3ja ára í dag, og sendi ég þeim mínar allra bestu hamingjuóskir yfir hafið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2007 | 20:04
Loki...
...leikinn af Martin Bryggman í *Jul i Valhal*, jóladagatali DR jólin 2005. Loki er göldróttur, eins og við vitum öll.
Jón Ingvi elskar *Jul i Valhal* og hefur horft ansi oft á þessa þætti eftir að hann fékk þá í möndlugjöf síðustu jól. Það sem Loki = Martin Bryggman gerir m.a. er að "galdra", hann lætur Jónas (önnur söguhetjan) hafa spýtu sem hann (Loki) var búinn að skera rúnir í, og Jónas setur þessa spýtu í vasann hjá pabba sínum... Ástæðan fyrir þessu var að Jónas langar að það sé sjónvarp á heimilinu en pabbi hans hefur verið á móti því. Pabbi Jónasar fer og kaupir sjónvarp.
Mamma Sofie (hin söguhetjan) er búin að fá vinnu í Singapor og þær mæðgur er að fara að flytja. En Sofie vill ekki flytja - enn einu sinni. Hún fær Loka (Martin Bryggman) í lið með sér...og viti menn, mamma Sofie skiptir um skoðun (enda orðin ástfangin af pabba Jónasar).
Er ég að gera ykkur rugluð? Hér kemur *pointið*!!:
Hillerød í hádeginu:
Jón Ingvi: "Mamma, ég þarf að hitta Martin Bryggman."
Ég: "afhverju?"
Jón Ingvi: "Ég er með eina ósk sem ég þarf að fá hann til að hjálpa mér með. Hann þarf að gera rúnaprik handa mér."
Ég: "Hvaða ósk er það?"
Jón Ingvi: "Að við flytjum aftur til Danmerkur."
Ááááá...sárt? Já.
Við ræddum þetta svolítið og ég spurði hann hvers vegna hann vildi flytja aftur til Danmerkur. Svarið var einfalt; "Ég á miklu fleiri vini í Danmörku."
Söknuðurinn er ennþá mikill. Það eina sem ég get gert er að knúsa hann og segja honum að ég skilji hann. Ekki reyna að gera þetta gott með því að segja; "Þú átt eftir að eignast vini á Akranesi!". Því það skiptir ekki máli núna. Eins og er sársauki og söknuður og það verðum við að ganga í gegnum saman.
Ég veit - eða vona - að þetta líður hjá með tímanum. Þangað til ætla ég að veita honum allan þann styrk sem ég get og öll þau knús sem hann mun þurfa.
Molinn minn litli...sem er samt svo stór.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar