Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007
31.1.2007 | 20:54
Enn ein uppskriftin...
...sem mig langar til að deila með ykkur. Á okkar heimili heitir hún "Brúðkaupssúpan" þar sem hún var forréttur í bryllúppinu okkar 15. maí 2004. Við höfum líka kallað hana "Fiskisúpu án fisks" þar sem það er fiskur í upphaflegu uppskriftinni en við notum ekki fisk í hana. En sama hvaða nafni hún gegnir þá er hún hreinasta snilld.
1 krukka Hunts spachettisósa m/garlic (ekki þessi með osti líka..)1 krukka vatn
1/2 bolli saxaður laukur
1/2 bolli sellerí í sneiðum
1/2 bolli gróf rifnar gulrætur
1/2 bolli söxuð paprika
1 kjúklingateningur
1 peli rjómi
1 matskeið púðursykur
200 g rjómaostur
spaghettisósa, vatn, púðursykur,kjúklingateningur sett í pott
laukur,sellerí,gulrætur,paprika kraumað á pönnu og bætt svo útí
rjómaostur bræddur útí, rjómi settur í síðast.
Svo baka ég alltaf bollur með. Misjafnt hvaða bollur, en þessar hérna elska börnin okkar. Uppskriftin gengur undir nafninu "Bamses sødeste juleboller".
50 gr. ger (pressu) eða 11 gr. þurrger (1 pk)
8 msk. volgt vatn
4 dl. mjólk
8 tsk. hunang
2 tsk. gróft salt
ca. 4 msk. olía
800 gr. hveiti
Leysið ger og hunang upp í volga vatninu. Setjið helminginn af hveitinu og allt hitt út í og hnoðið. Setjið svo smám saman restina af hveitinu út í.
(Ef ég er með þurrger þá set ég öll þurrefnin saman, þar sem talinn gerinn, velgi mjólk og vatn, leysi hunangið upp í vökvanum, set olíu saman við og helli þessu yfir þurrefnin og geri rest eins.)
Deigið á svo að hefast á volgum stað í 20 mín.
Síðan eru gerðar bollur, settar á plötu og látnar hefast í 1 klst.
Það má gjarnan setja rakt viskustykki yfir.
Að lokum má pensla bollurnar með mjólk eða eggi.
Bollurnar bakast í miðjum ofni í ca. 10-12 mínútur (þar til þær eru fallega gylltar) við 225°C.
Þetta var sem sagt kvöldmaturinn hjá okkur og vakti mikla lukku, eins og alltaf áður. Bollurnar hjá börnunum og bæði súpan og bollurnar hjá okkur "gömlu"!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2007 | 13:56
Ótti minn
Ég skal fúslega viðurkenna að mér er meinilla við Ölfusá, finnst hreinlega erfitt að keyra yfir brúna, straumurinn og ólgan í ánni gera mig eiginlega skelfingulostna.
Ég minntist einmitt á það við elskulegan eiginmann minn síðast þegar við áttum leið yfir ánna að ég hljóti að hafa drukknað í fyrra lífi...og þá mjög líklega í einhverri vatnsmikilli á. Mér er líka meinilla við að keyra yfir brýr á jökulsám, t.d. þessari á Jökuldalnum fyrir austan...ojojoj...hef reyndar ekki gert það í mörg ár...og þá ekki sökum ótta heldur vegna þess hve lengi ég bjó í útlöndum og hef ekki keyrt austur öll þau ár.
En ég á sjálfsagt eftir margar ferðir yfir Ölfusá um ókomna framtíð þar sem bæði elsku litla sys. og eins ein kær vinkona hafa tekið sér bólfestu á Selfossi...svo aftur og aftur verð ég að stíga inn í þennan ótta minn...og hver veit, kannski sigra ég hann að lokum.
En ég neita að keyra þennan Árveg!!!
Bíllinn enn í Ölfusá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.1.2007 | 07:10
Afmælisbarnið
Þá er það afmælisbarn dagsins. Ég bý ekki svo vel að eiga mynd í tölvutækuformi. En sá sem á afmæli í dag heitir Eyþór. Eyþór er hvorki meira né minna er FERTUGUR í dag!!!
Fyrir þá sem ekki vita hver afmælisbarnið er, get ég sagt þetta; Ég kynntist Eyþóri þegar ég var 15 ára saklaus sveitastúlka...þá var hann FULLORÐINN í mínum huga, 19 ára töffari!!! Við fórum fljótlega að vera saman og vorum hluti af lífi hvors annars næstu 3 árin. Mismikil...eða öllu heldur...mislítil hamingja þessi 3 ár.
Þegar ég var sem sagt 18 ára fórum við í sitt hvora áttina, hefðum átt að gera það strax fyrsta árið. Okkar samband hefði sennilega aldrei átt að vera meira en smá sumarást...en það fór sem fór. Við vorum ekki góð við hvort annað, eða góð fyrir hvort annað.
Í mörg ár notaði ég mikla orku í að hugsa neikvætt til Eyþórs, eiginlega hataði hann bara. En fyrir bráðum 3 árum gafst mér tækifæri til að gera upp okkar mál, og að bæta fyrir brot mín. Því ég átti sannarlega minn þátt í okkar neikvæðu samskipum, þótt ég hafi ekki alltaf getað séð það...!! Síðan þá hef ég getað hugsað með kærleika til Eyþórs með þá vissu að hann gerði sitt besta, alveg eins og ég gerði mitt besta. Við kunnum bara ekki betur á þeim tíma.
Mér þykir vænt um Eyþór vegna þess að hann er hluti af minni fortíð, og þar sem hluti af því sem gerir mig að þeirri konu sem ég er í dag.
Hvar sem Eyþór er niðurkominn í dag sendi ég honum mínar allra bestu hamingjuóskir og vona að sólin skíni í hjarta hans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.1.2007 | 06:50
Sjúklega góð kaka...
...sem ég bara VERÐ að deila með ykkur:
Botninn:
1 1/2 bolli lífrænt kókosmjöl
1 1/2 bolli Pekan hnetur
1/2 tsk. sjávarsalt
1/2 bolli döðlur, saxaðar
Dash cayenne pipar
Fyllingin:
2 avócadó
3/4 bolli agave sýróp eða hrátt hunang eða 1 bolli döðlur
1/4 bolli lime safi
Skraut og meðlæti:
Kíví, ferskir ávextir, ber eða hvað eina sem hugurinn girnist.
Botninn:
Allt sett í matvinnsluvélina og látið vélina ganga þar til döðlurnar hafa blandast vel inn í kókósmjölið og hneturnar og allt klístrast saman (nota smá vatn ef of þurrt). Setjið deigið í kökuform, (26 ca í þvermál) og þjappið botninum niður. Gott að setja botninn inní frysti á meðan þið búið til fyllinguna.
Fylling:
Setjið allt í matvinnsluvélina nema skraut og meðlæti:) og blandið þar til silkimjúkt. Hellið fyllingunni ofaná botninn og setjið inn í kæli í 2-3 klst. eðaí frysti í 1 klst. Skreytið svo kökuna að vild.
Gott að hafa rjóma með.
Fengum þessa köku í síðusta paragrúppu og hún er bara snilllllllld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2007 | 21:24
Handbolti
þessi mynd er víst frá leiknum áðan. Ég skal fúslega og með gleði viðurkenna að ég hef engan áhuga á handbolta (frekar en öðrum íþróttum...) og veit ekki hvað þessi ósigur íslendinga þýðir fyrir þá. Eru þeir dottnir úr leik?
Dóttir mín hins vegar sat yfir leiknum og ég heyrði hana klappa og einhver önnur skringileg hljóð bárust líka...svona hljóð sem heyrast í fólki sem dettur inn í sjónvarpið og tekur fullan þátt í því sem er að gerast á vellinum. Ég veit ekki alveg í hverju spennan hjá henni var samt fólgin þar sem hún hélt með báðum liðunum...!!!
Svo hennar lið sigraði, er óhætt að segja, og hefði líka verið hægt að segja það þótt "við" hefðum sigrað. Gaman að þessu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.1.2007 | 20:57
og meira...
You Are 12% Girly |
Um... you're a guy, right? If not, you're the most boyish girl in the world. And for you, that's probably the ultimate compliment. |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.1.2007 | 20:52
Just for the fun of it...!!
You Belong in Rome |
You're a big city girl with a small town heart Which is why you're attracted to the romance of Rome Strolling down picture perfect streets, cappuccino in hand And gorgeous Italian men - could life get any better? |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2007 | 18:37
Fiðrildi
Jóhannes fékk að taka vin sinn með heim úr leikskólanum í dag. Þeir eru ótrúlega líkir, kannski einmitt þess vegna sem þeir smella svona vel saman. Hér er grátur og gnístan tanna á kvöldin, því Jóhannes VILL FÁ Bergþór Loga!!! Heima hjá B.L. þarf mamma hans bara að segja eitt orð, "Jóhannes", ef sá stutti vill ekki í leikskólann og þá er hann hlaupinn af stað. Yndislegt að fylgjast með þeim.
Þeir eru svona litlar skopparakringlur, alger fiðrildi, flögra um...eða skoppa um. Þeir labba ekki, kunna það líklegast ekki, því þeir hlaupa alltaf við fót, báðir. Svo brosa þeir nánast stanslaust.
Algerir ormar.
Svo skemmtilega vill til að föðurbróðir B.L. býr á Norðfirði og er giftur Köllu, æskuvinkonu minni. Svona er Ísland nú lítið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.1.2007 | 13:31
Þyrnirós hér...
...jamm, var að vakna!! Þið minnist þess kannski að ég talaði um það í síðustu viku að ég ætlaði að LESA í þessari viku...!! Það hefur sem sagt ekki orðið neitt úr því, og einfaldlega vegna þess að það er ekki komið lesplan frá kennaranum ennþá, og ég nenni ómögulega að lesa alla bókina ef ég þarf þess ekki!!
Svo ég gerði eins og maðurinn minn sagði mér að gera; Ég fór að sofa aftur í morgun (hann segir að ég eigi það skilið að slappa ærlega af!!!) og var sem sagt að skríða fram. Lét vekjaraklukkuna hringja kl 12.00...en var að dreyma svo skemmtilega að ég stillti hana á 12.30 og hélt áfram að dreyma...þó ekki sama draum en samt skemmtilegan draum!!! Svo lét ég símann blunda til 12.40 og þá drattaðist ég lok framúr, enda alveg að pissa á mig!!! Ég opnaði líka gluggann á herberginu þarna kl 12.00 til að auka líkur á því að ég gæti yfirhöfuð einhverntímann vaknað!!!
Núna er ég að japla á grófu og góðu hrökkbrauði og drekka dýrindis kaffi með....
Er að spá í að skella mér í bankann og ná í pappírana (sem ég talaði um í gær...minnir mig), svo næsta skref í átt að húsbyggingu geti hafist.
Ég er sko búin að ná að gera ýmislegt þó ég sé ný vöknuð, var t.d. að panta endurvinnslutunnuna, svo við getum létt og leikandi flokkað ruslið okkar og farið vel með landið okkar!! Ekki leiðinlegt.
En núna ætla ég að skjótast í útréttingar...svo Jón Ingvi geti slappað af hérna heima þegar hann kemur eftir klukkutíma eða svo...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2007 | 23:15
Hvað er kærleikur?
Kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur
Kærleikur, er hvert bros sem þú gefur
Kærleikur, er að faðma þann sem grætur
Kærleikur, er að hugga þann sem syrgir
Kærleikur, er að gefa þeim sem þarfnast
Kærleikur, er að bera umhyggju fyrir öllu sem lifir
Kærleikur er að biðja fyrir öllum, góðum og slæmum
Kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra
Kærleikur er að dæma ekki
Kærleikur er ljósið sem býr í hjarta þínu......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar