Leita í fréttum mbl.is

afmælisbarn dagsins og fleira

Afmælisbarn dagsins er enginn annar er gullmolinn og systursonur minn hann Arnar Daði.  Þriggja ára prins.  Elsku Arnar, vona að þú hafir átt góðan dag og fengið fullt af skemmtilegum pökkum Smile

ad

Í morgun komu Rakel, Keld, Ásdís og Sophie í heimsókn.  Gaman að því.  Við fengum vöfflur, bakaðar í nýja vöfflujárninu - sagði ég ykkur í gær að það koma mega-stórar vöfflur úr járninu?  Og náttúrlega góðar líka.

Það var eiginlega bara frábært að hitta Rakel, við gátum aldeilis bablað út í eitt, og Keld örugglega töluvert mikið að mygla...en svona er það bara stundum. 
Jóhannes og Sophie náðu vel saman sem oft áður.  Spjölluðu mikið saman.  Ég spurði Sophie hvort Jóhannes talaði við hana á dönsku og hún svaraði mér, með hneykslun í röddinni; "JA!"  Og Jóhannes sagði, "Auðvitað get ég það, mamma"!!!  Gaman að því.

Svo var gestunum nánast hent á dyr kl að verða tvö því þá var á dagskrá næsti liður.  Nefninlega fjölskyldujólaboð hjá Skuldarættinni (kennd við húsið Skuld sem stóð við Akratorg sem langafi Einars byggði...eða langalangafi...).  Það var mjög gaman, reyndar þekktum við ekki alla sem þarna voru, enda ýmislegt breyst í fjölskyldunni síðan við vorum með síðast...8 ár síðan ég var síðast í jólaboði með þeim og 9 ár síðan Einar var með...  Sum börnin voru ekki fædd þá og önnur voru börn en eru nú unglingar.  Svo hafa sumir skilið og gift sig aftur og aðrir loksins gengið út.  Já, eins og gengur og gerist í fjölskyldum.  En gaman var þetta.  Og hið fræga Báru-bingó tekið og Jóhannes vann tvisvar.  Mjög ánægður með það, en bróðir hans minna ánægður.  Svona gengur það.

Núna er að koma að háttatíma hjá tveimur yndislegum drengjum...svo er ég að spá í að gera það sama og ég gerði í gær...nefninlega að LÆRA!!!  Ótrúlega dugleg stelpan!!!  

Á morgun er svo ekta íslenskur gamlársdagur, með brennu og tilheyrandi.  Vonum bara að veðrið verði gott svo brennunni verði ekki aflýst...en mér sýnist spáin bara vera nokkuð hagstæð.  Vona að skyggni verði gott svo við getum séð alla monningana sem Reykvíkingar puðra upp í loftið Devil

Að lokum ein orðsending til Jónu sætu í Herlev; Sakna þín líka og hlakka til að sjá þig í febrúar.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Sigrún mín,

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár!  Ég þakka innilega allan stuðninginn og kærleikann á liðnu ári.  Knús og Kveðja, Inga Japan

Inga (IP-tala skráð) 31.12.2006 kl. 01:46

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Sömuleiðis, dúllan mín.  Sjáumst vonandi einn góðan veðurdag

SigrúnSveitó, 31.12.2006 kl. 14:01

3 identicon

Gvvööð hann er svo mikið krútt hann Arnar Daði! :)  Svo stutt síðan Elín var í fæðingarorlofinu, tíminn flýgur!

Hafið það rosa gott í kvöld kæra frænka og familía.  Áramóta heitið mitt í ár er að komast í heimsókn til ykkar :-/   Ég skammast mín fyrir framtaksleisið!   *knús&kram*

ragnhildur + inga (IP-tala skráð) 31.12.2006 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband