Leita í fréttum mbl.is

Konur yfir fertugu - Andy Rooney í 60 mínútum - tær snilld... :)

Eftir því sem ég eldist, kann ég betur að meta konur yfir fertugu og hér eru nokkrar ástæður fyrir því:

Kona yfir fertugu mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertu að hugsa?"

Henni gæti ekki verið meira sama.

Ef kona yfir fertugu vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir því.

Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en leikurinn.

Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskurkeppni við þig í óperunni eða á fínum veitingastað.

Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að þær komist upp með það.

Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að vera ekki metin að verðleikum.

Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti  þína fyrir þeim.

Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40 langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar.

Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú sért asni ef þú hagar þér sem slíkur.

Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær.

Já, við dásömum konur yfir fertugu af mörgum ástæðum.

Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel greinda konu yfir fertugu, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára gengilbeinu. Konur, ég biðst
afsökunar.

Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur fengið mjólkina frítt?" þá eru hér nýjar upplýsingar:

Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum.

Hvers vegna?

Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa heilt svín þótt þær langi í smá pylsu!


Andy Rooney

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hlýt að hafa fæðst 41! Gangi þér og ykkur vel með ferminguna og til hamingju.

Valdís Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 21:07

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk elskan :)

SigrúnSveitó, 2.4.2009 kl. 22:43

3 Smámynd: JEG

You make my day.  hahahahaha...... frábært ....takk fyrir mig.  Verð að fá að nappa þessu því þetta er snilld :)  Knús og kossar og gangi ykkur vel um helgina essgan :) 

JEG, 3.4.2009 kl. 10:02

4 identicon

Hahha, þessi er góður og örugglega bara nokkuð til í þessu þó ég sé nú laaaangt frá fertugu þá er ég í áttina.. gangi ykkur vel með prinsessu og veislu á sunnudaginn..knús

jóna björg (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 17:08

5 Smámynd: Þóra Elísabet Valgeirsdóttir

he he já þetta þetta er frábært. get ekki beðið eftir því að verða fertug he he;)

Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 6.4.2009 kl. 09:45

6 identicon

Góður.. :)

Salný (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 12:42

7 Smámynd: Renata

Þessi eru frábært!!! takk fyrir það

Renata, 8.4.2009 kl. 09:28

8 identicon

Ég er yfir 40

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.4.2009 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband