Leita í fréttum mbl.is

Bloggleti

Ég er ekki að nenna að blogga þessa dagana, eins og þið kannski hafið tekið eftir.  Eflaust ýmsar ástæður sem liggja að baki. 

Langir vinnudagar, því er ekki að neita að vinnudagarnir hafa lengst ansi mikið við að fara að vinna í Reykjavík. Svo er facebook að stela tíma frá mér... Og að ég tali nú ekki um jólakortastússið. En nú er ég búin að klára þau, fyrir utan 3 umslög sem mig vantar heimilisföng á. Það hlýtur að koma. Annars missir þetta ágæta fólk bara af því að fá kort frá okkur í ár...

Bygginarvinnan hjá mínum heittelskaða gengur vel. Hann er snilli, segi það og skrifa það! Komin loft, svo er að mestu búið að mála veggina, gólfmálningin komin í hús og hurðirnar væntanlegar.

Talandi um hurðirnar... Við keyptum 4 hurðir í Parka í vor, og fengum þær á í kringum 25.000 stykkið þá. Í gær hringdi Einar í Parka og heyrði aðeins í þeim. Þeir reyndar eiga ekki hurðir sem stendur (því það hefur jú verið hálfgert viðskiptabann undanfarnar vikur...) en eiga von á hurðum í kringum 16. des. Það er reyndar dálítið seint...og hurðirnar orðnar dáááálítið dýrar...eða kringum 60.000 stykkið... Já, sææææælllllll!!!

Svo við fórum í Húsasmiðjuna og þar fáum við þær töluvert ódýrari. Svo ef það er einhver smá munur á hurðunum, svona sjáanlegur, þá er það bara í góðu lagi! 

--

Gleymdi alltaf að segja ykkur frá því að Jóhannes tók þátt í opinberum tónleikum, ásamt konunum *sínum* og börnunum af leikskólanum. Tónleikarnir voru haldnir í tónlistarskólanum á Vökudögum. Hægt er að sjá brot af tónleikunum HÉR. Rosalega flott hjá þeim og mikil vinna sem liggur að baki. Ég held mér sé alveg óhætt að fullyrða að það var fullur salur af mjög stoltum foreldrum :) Amk. var ég með kökk í hálsinum...en það eru reyndar ekki nýjar fréttir...þannig er égWink

Jæja, held ég smelli mér í bælið...

Ást og friður til ykkar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Vá engin smá hækkun úffff......

Knús og klemm á þig essgan og njóttu nú bara þess að eiga tíma með famelý á aðventunni á milli vakta.  kv úr Hrútósveitó. 

JEG, 5.12.2008 kl. 00:06

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég var einmitt farin að sakna svo til þín!

Flottir tónleikar og ábyggilega alveg hörkuvinna að baki! Fyndið líka að sjá hvað þau eru eitthvað eðlileg allan tímann - bara geyspað hástöfum í miðju lagi eins og ekkert sé ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 5.12.2008 kl. 00:08

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þvílíkt verð á þessum hurðum, það er nú allt í lagi þó þær séu ekki alveg eins. Ætla að kíkja á myndbandið, gott annars að heyra frá þér.  Krútt og knúskveðja til þín og þinna

Ásdís Sigurðardóttir, 5.12.2008 kl. 11:41

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Almáttugur hvað þau eru yndisleg þessi börn og þvílíkt flottur söngur, skemmtileg lög sem ég hef aldrei heyrt áður, takk fyrir mig

Ásdís Sigurðardóttir, 5.12.2008 kl. 11:46

5 identicon

mín loksins á smá blogg-rúnti og að sjálfsögðu ert þú fyrst á listanum.  Já þetta facebook er eiginlega til vandræða :o)  hahahha  Svekt að hafa misst af þér þegar þú komst upp í vinnu um daginn en nú er HH farin að fíla sig betur í bílstólnum svo vonandi förum við að komast í lengri bíltúa.  Vonast til að komast alla leið til ykkar í kaffisopa von bráðar :)

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 08:34

6 Smámynd: Tína

Tek undir með Hrönnslu hvað það er skemmtilegt að sjá hversu eðlileg börnin eru geispandi og sinna sínu hlutverki. Börn voru, eru og verða alltaf skemmtileg og mættum við sko alveg taka þau oftar til fyrirmyndar. Gaman að heyra að húsbyggingin gangi vel. Farðu vel með þig ljúfust og njóttu lífsins áfram eins og þér einni er lagið.

Knús í tonnatali

Tína, 6.12.2008 kl. 11:12

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ótrúlegur verðmunur !!

gangi þér vel með allt jólastúss kæra kona.

Kærleiksknús frá Lejre

s

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 6.12.2008 kl. 18:23

8 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson


Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.12.2008 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband