Leita í fréttum mbl.is

Mikið svakalega...

...er kkkkkkallllt...!!!  Ég veit svo sem ekki neinar tölur en það er hvít jörð og norðangarri (er það ekki það sem maður kallar það??)

Ég fór út í morgun með Jóhannesi, á leikskólann í jólaföndur. Mjög notaleg stund, en ég hélt ég myndi andast úr kulda á leiðinni... "Það er afþví að þú ert kuldaskræfa", gall í syni mínum Tounge

Á eftir fórum við svo í smá snatt og ég er bara enn köld í gegn.  Er reyndar með smá rifu á gluggunum...maður þarf líka ferskt loft!! Og svo blæs aðeins inn með bílskúrshurðinni og þar sit ég akkúrat núna...!! birrrrrr...Pinch

Við buðum Birni Viktori með heim úr leikskólanum. Þeir eru svo miklir mátar þessir drengir. Og ekki má gleyma að þeir eru frændur...þeir leggja ofur mikla áherslu á það.  En langafi Jóhannesar (Gunnar afi minn) og langalangamma Björns Viktors voru systkini.
Mamma Björns Viktors sagði mér svo í morgun að hún og systir hennar hafi verið að ræða það um daginn hvað ég væri ótrúlega svipuð móðursystur þeirra...Jamm, svona geta genin skoppað. Ég þyki MJÖG lík mömmu en þeir sem ekki hafa séð mömmu segja að ég sé MJÖG líka pabba...þannig að ég get víst alveg verið lík einhverri frænku sem ég hef aldrei séð eða heyrt.

Jæja, ég er með bæði deig fyrir pizzasnúða og pylsuhorn í hefun og þarf að fara að sinna því.

Meira síðar...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Notalegur dagur hjá ykkur. Vona samt að þetta rok hverfi með kvöldinu, annars er enginn snjór hér í bæ.  Kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 27.11.2008 kl. 16:00

2 Smámynd: JEG

Dugnaðurinn í þér kona.  Ekki er ég svona duleg í gerinu.  Kveðja úr Hrútósveitó. 

JEG, 28.11.2008 kl. 11:19

3 identicon

sammála með kuldann brrrrrrrrrrr - alveg tek út fyrir að þurfa að fara út á eftir ussssss.  Er að fara að gera súpuna góðu í fyrsta sinn fyrir fjölskylduna á sunnudaginn - wish me luck!!!!!  Fór í Stígamót í gær - æðislegt alveg!!!!  Hlakka til að hitta ykkur í janúar og segja ykkur frá öllu - fer núna vikulega til Dóru!  Knús knús í kuldanum mín elskulega vinkona

Særún

Særún (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 16:06

4 Smámynd: Hugarfluga

 laugardagskoss til þín.

Hugarfluga, 29.11.2008 kl. 17:20

5 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 12:32

6 Smámynd: Úrsúla Manda

Bakaði pizzusnúðana á sunnudaginn og þeir eru búnir!! Segir allt sem segja þarf  Prufaði líka að setja skinkumyrju í nokkra snúða, mjög gott. Takk fyrir þessa uppskrift

Úrsúla Manda , 2.12.2008 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband