Leita í fréttum mbl.is

Ég er...

...þreytt! Var að koma heim úr vinnunni. Var á morgunvakt á LSH og svo kvöldvakt á Höfða, gamla vinnustaðnum mínum. Bæði var skemmtilegt og gefandi. Það var rosa gaman að koma í *gömlu* vinnuna og fá góðar móttökur, bæði af starfsfólki og vistmönnum. Ansi hreint notalegt :)

Annars er lítið að segja. Kannski erum við að fara að skipta um bíl...skipta picupnum hans Einars fyrir lítinn, sparneytinn fólksbíl...ef Einar týmir því...hann eeeeelskar picuppinn sinn...sem ég skil reyndar ekki, finnst bíllinn vægast sagt leiðinlegur og tek út fyrir þau skipti sem ég neyðist til að keyra hann!! 

En þetta kemur í ljós.

Svo fer væntanlega að styttast í að við getum tekið herbergin í notkun, amk styttist með hverjum deginum sem líður! En samt...Einar þarf víst að hafa tíííííma!! Jamm.

Svo hef ég bara ekki meira að segja í bili...held ég skríði undir sængina mjúku og heitu, til míns heittelskaða sem þar sefur sínum værasta svefni...SleepingInLove

Knús&kærleikur inn í nóttina ykkar allra. Megi Guð gefa ykkur ljúfa nótt, og góðan dag á morgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Eigðu góðan dag

Hrönn Sigurðardóttir, 25.11.2008 kl. 10:00

2 Smámynd: JEG

Ljúfar kveðjur úr Hrútósveitó. 

JEG, 25.11.2008 kl. 10:36

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ, vona að þú hafir ´hvílst vel dúllan mín.  Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 25.11.2008 kl. 17:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband